Hvað er blogg?

Vinsælasti bloggarinn á mbl.is/blogg.is kemur með skemmtilega útfærslu á hvað blogg er í blogggrein sinni. Hann segir að blogg sé fjölmiðill. En er bloggið fjölmiðill? Hvað segir blogg.is? Í spurt og svarað er eftirfarandi lýsing:

  • Hvað er blogg?
    Blogg eru pistlar sem skrifaðir eru reglulega á Vefnum. Stundum eru blogg persónuleg lýsing og þá einskonar dagbók. En oft er blogg almennt sem nútíma annáll og ræðir þá um það sem er að gerast í samfélaginu, vinnunni, pólitíkinni o.s.frv.
  • Hvað er Blogg.is?
    Blogg.is er vettvangur fyrir þá sem vilja halda úti persónulegu bloggi á íslensku á einfaldan máta. Ekki er leyfilegt að nota þjónustuna í atvinnuskyni.

Eru við ekki komin hérna að kjarnanum, að flestir, ef ekki allir bloggarar skrifa pistla út frá persónulegu sjónarhorni, eru skoðanapistlar (sbr. Tucker Carlson á Foxnews) en ekki fréttir. En munurinn á Tucker og venjulegum bloggara er að hann er launaður starfsmaður formlegs fjölmiðils. 

Bloggarar er einstaklingar, ólaunaðir, sem skrifa um skoðanir sínar en blogg.is segir skýrum orðum að "Ekki er leyfilegt að nota þjónustuna í atvinnuskyni."

En allir bloggarar þurfa að lúta lögum og getað staðið fyrir máli sínu fyrir dómstólum og það á reyndar við um alla borgara sem fara fram í opinberum fjölmiðlum (og jafnvel samfélagmiðlum).

En umræddur bloggari hefur rétt fyrir sér að því leitinu til að mörkin milli fjölmiðla og þess sem einstaklingar segja hafa nánast þurrkast út. Einstaklingur getu sett upp vefsetur og búið til sinn eigin fjölmiðill. blogg.is segir að þeir haldi úti vettvangi fyrir þá sem vilja vera með persónulegu bloggi á íslensku og ekki megi nota þennan vettvang í atvinnuskyni. blogg.is er með öðrum orðum ekki fjölmiðill.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Mest lesinn er ekki endilega sama og "vinsælastur".

Samanber þau orða sem stundum hafa verið látin falla um meintar "vinsældir" verðtryggðra lána. Ástæða þess að margir velja þau hefur ekkert með vinsældir að gera, heldur hefur fólk sem tekur slík lán ekki um annað að velja.

Að eitthvað sé í miklu magni jafngildir ekki vinsældum.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.3.2023 kl. 14:31

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Guðmundur. Hárrétt hjá þér. Ég hefði átt að orða þetta betur! Takk fyrir ábendinguna!

Birgir Loftsson, 15.3.2023 kl. 15:47

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sæll Birgir, í viðbót við þetta sem þú telur upp í ágætum bloggpistli þá er það náttúrulega fyrst og síðast sérviskan sem aðgreinir blogg frá ritstýrðri fjölmiðlun. En sjálfritstýrðir sérvitringar geta samt sem áður miðlað málunum af meiri sannleika en fjölmiðlar.

Magnús Sigurðsson, 15.3.2023 kl. 18:20

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Magnús. Rétt er það hinn mest lesni bloggarinn hefur átt marga góða spretti. Mjög gaman að lesa blogg hans.  En draumur hans um starf blaðamanns rætist ekki hérna á blogginu. 

Birgir Loftsson, 16.3.2023 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband