Herlaust Ísland kaupir skotfæri í stríði utan svæði NATÓs

Erlingur Erlingsson hernaðar sagnfræðingur segir í viðtali um enga stefnubreytingu að ræða. Íslendingar hafi áður gert slíkt og vísar í stríðið í Afganistan. En það stríð var háð á forsendum NATÓ og aðildaþjóða þess og ekki hægt að bera saman. Hann er greinilega hlutdrægur og talar um ólöglegt stríð af hálfu Rússa. Sagnfræðingur á ekki að taka afstöðu.  Ef hann gerir það, þá á hann að segja þetta sé hans persónulega skoðun. Og hvað á hann við með ólöglegt stríð?

Veruleikinn er hins vegar mun flóknari en hann lætur í veðri vaka og nær aðrangandinn hundruð ár aftur í tímann. Núverandi stríð hófst fyrir 10 árum, ekki 2 árum. Vegna mistaka og hroka Biden stjórnarinnar breyttist staðgengilsstríð Rússa í Donbass í staðgengilsstríð BNA og NATÓ með tilheyrandi hættu fyrir heimsfriðinn.

Diplómatarnir gátu ekki afstýrt stríði enda varla hægt þegar höfuðið er illa haldið af elliglöpum. 

Bloggari telur að Íslendingar eigi að líta sig nær og huga að eigin vörnum, ekki erlendra ríkja. Ísland er veikasti hlekkurinn í vörnum NATÓ.  Þetta er eitt af þeim stríðum sem hægt hefði verið  að afstýra. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/03/27/engin_stefnubreyting_af_halfu_islands/?origin=helstu

Birgir Loftsson, 28.3.2024 kl. 13:52

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Birgir.

Ég er sammála þér og tel enn fremur að varnir okkar felist helst í hlutleysi og Íslands sem vettvang friðar.

Þessi svokallaði hernaðarsagnfræðingur var bara enn ein áróðurspípa NATO sem mér sýndist að auki svipljótur, sem gæti þó stafað af hlutdrægu áliti mínu á þeim sem bera út lygaspuna.

Jónatan Karlsson, 28.3.2024 kl. 18:24

3 Smámynd: Birgir Loftsson

 Sæll Jónatan. Já þú hefur rétt fyrir þér. Við getum ekki alveg hunsað öryggismál Íslands og verðum gera eitthvað í þeim málum. Það þarf ekki að vera her, getur verið heimavarnarlið, á stærð við undirfylki, sem er 200-250 manna lið. Hægt að kalla út ef til dæmis hryðjuverk,  náttúru vá eða önnur hætta steðjar að. Lögreglan hefur t.d. aldrei verið eins fá menn á höfuðborgarsvæðinu en í dag. 270 manns sem skiptast á vaktir. Fyrir áratug voru þeir yfir 300. Á stríðsárunum voru aðeins færri menn á vakt en er í dag. Ríkið er ekki að tryggja öryggi okkar, ekki einu sinni á sviði löggæslu.

Birgir Loftsson, 29.3.2024 kl. 10:09

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Móta bene,  ég er ekki í liði með neinum. Rétt svo í liði með Íslendingum, bara vegna þess að ég bý hérna og íslenska ríkið ber því að tryggja öryggi mitt og annarra búsetta á Íslandi. 

Birgir Loftsson, 29.3.2024 kl. 10:13

5 Smámynd: booboo

Sammála þér Birgir. 

Hitt mætti svo við bæta að það er ekki stór hópur bandaríkjamanna sem vill þá stefnu sem stjórnvöld þar við hafa. 

booboo , 29.3.2024 kl. 22:25

6 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir Bóbó fyrir innlegg þitt. Mikið rétt. 

Birgir Loftsson, 30.3.2024 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband