Álitsgjafar RÚV hlutdrægir upp fyrir eyru?

Virðing fyrir RÚV er löngu horfin hjá mörgum aðilum í þjóðfélaginu. Áður fyrr var virðingin fyrir þessari stofnun nokkuð mikil og var hún lengi vel eini fjölmiðillinn í landi.

En ríkisapparat á sinn vitjunartíma og vitjunartími RÚV var þegar Stöð 2 og Bylgjan, frjálsir fjölmiðlar í einkaeigu voru stofnaðir. RÚV starfar nú á samkeppnismarkaði, þar sem stofnunin ein þarf ekki að keppa á jafnréttisgrundvelli. Af hverju er RÚV enn á samkeppnismarkað?  Allar einokunarstofnunir á vegum ríkisins eru horfnar, svo Grænmetissala ríkissins, Bifreiðaeftirlit ríkissins og fleiri börn síns tíma.

En það sem verra er að stofnunin, sérstaklega fréttastofan, er orðin hlutdræg í umfjöllun sinni. Á yfirborðinu virðist eins og fréttamennirnir greini frá fréttaefni á hlutlausan hátt, en það er hægt að fara í kringum hlutleysið á tvenns konar hátt. Annars vegar með vali á fréttaefni (t.d. hunsun á fréttaefni eða vali á efni sem hentar hugmyndafræði fréttamanna á fréttastofunni) eða velja álitsgjafa sem segja bara aðra hliðina.

Þetta er áberandi þegar fjallað er um bandarísk stjórnmál. Álitsgjafi fréttastofunnar í þeim efnum er Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði en hún virðist vera fylgjandi demókrötum frekar en repúblikönum í stjórnmálum. Það virðist skína í umfjöllun hennar. Af hverju er hún bara spurð?

Í dag er frétt á RÚV um áhlaup FBI á heimili Donalds Trumps og virðist hún álita að það sé byggt á lögmætum hætti. "Heimildin (til húsleitar) þarf að hvíla á mjög skýrum vísbendingum um brot sem þarf að rannsaka,“ segir Silja." Hún sagði jafnframt: „Þetta er ferli sem er utan pólitíkurinnar. Forseti Bandaríkjanna vissi ekki af því fyrr en þetta kom í fréttum. Og vegna þess að hér er um að ræða fyrrverandi forseta og mögulegan forsetaframbjóðanda þá þarf þetta ferli að fara mjög varlega í gegn." Hvernig veit hún það? Hefur hún beinan aðgang að Hvíta húsinu og veit hún hverjir vita hvað innan starfsliðs þess? Hún er ekki eini álitsgjafinn sem virðist vera hlutdrægur.

En þetta er mikið álitamál. Jafnvel þótt Donald Trump hafi tekið skjöl með sér heim, þá skiptir máli hvaða skjöl það eru.  Einnig ber að hafa í huga að FBI hefði getað farið aðra leið en að gera áhlaup á heimili fyrrum Bandaríkjanna sem er einstakt í sögunni, en það er hreinlega að stefna skjölunum í gegnum dómstól. Athuga verður að Bandaríkjaforseti hefur sérstök forrétti og hann getur upp á eigið einsdæmi dæmt skjöl "secret" eða leyndarskjöl, m.ö.o. aflétt leynd af skjölum eða leyndarhjúpað þau.

Hún heldur einnig fram að forsetaembættið undir forystu Joe Biden hafi ekkert vitað. Það er afar vafasamt álit, en svona einstök aðgerð í sögu Bandaríkjanna hefur farið í gegnum dómsmálaráðherra sem heyrir undir forseta Bandaríkjanna og forstjóra FBI. Lágt settir embættismenn hefðu aldrei vogað sér að fara í svona aðgerð nema með leyfi æðstu ráðamanna og þá komum við að pólitíkinni.

Málið er með öllu pólitískt. Hvers sem er, með eða á móti Donald Trump, verður að viðurkenna að reynt hefur verið með öllum tiltækum ráðum að koma í veg fyrir að hann yrði forseti; hann feldur fyrir embættisglöp í embætti (tvisvar var það reynt) og eftir að hann lét af embætti. Sérstakur saksóknari var stefndur honum til höfuðs og hann fann ekkert.  Sérstök nefnd í Fulltrúardeildinni er í fullu starfi við að klína skít á DT og dæma hann fyrir landráð í sambandi við 6. janúar óeirðirnar.

Sem sagnfræðingi finnst mér óþolandi að þurfa að verja einn aðila, Donald Trump, og geri ég það nauðbeygður. Allir Bandaríkjaforsetar hafa sína galla og kosti, bæði sem einstaklingar og leiðtogar. Donald Trump er þar engin undantekning og hægt er gera langan lista yfir mistök og "strik yfir mörkin" sem hann hefur farið. En hann á sinn rétt til að vera dæmdur eftir leikreglum lýðræðisríkis rétt eins og aðrir.

En málið með Donald Trump er bara birtingarmynd á skiptingunni í bandarísku samfélagi. En svo virðist vera að réttarkerfið og stjórnkerfið í Bandaríkjunum er ekki lengur hlutlaust og þegar kerfið er notað í pólitískum tilgangi einum, einhliða af öðrum flokki landsins, er það stórhættulegt lýðræðinu í landinu.

Lýðræðið í Bandarikjunum skiptir okkur máli, því að BNA er forrysturíki lýðræðisríkja og ef það fellur, þá á lýðræðið almennt í heiminum erfiða tíma framundan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

fyrrum aðstoðarforstjóri FBI undrandi á framgöngu stofnunar og segir hana vera nú pólitískt verkfæri.... https://fb.watch/eOsuCjl6YR/?fs=e&s=cl

Birgir Loftsson, 9.8.2022 kl. 19:46

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Gústaf á Útvarpi sögu: Gústaf segir að ástæða húsleitarinnar sé sögð vera að þegar hann hafi hætt í embætti hafi hann haft á brott með sér skjöl sem innihéldu ríkisleyndarmál, en rétt er að geta þess að samið hafði verið við Trump um hvaða skjöl hann myndi taka með sér og því virðist lögregluaðgerðin vera bein pólitísk aðgerð framkvæmd að undirlagi andstæðinga Trump í stjórnmálum í þeim tilgangi að koma höggi á hann fyrir komandi forsetakosningar, sem líklegt er talið að Trump ætli að bjóða sig fram.

Gústaf bendir á að Trump hafi lýst því yfir að hann undraðist aðgerðir lögreglunnar sem væru algjörlega þarflausar enda sé ekkert að finna í skjalasafni hans sem ekki þoli dagsins ljós, enda hafi hann verið að vinna að því að setja upp bókasafn þar sem skjölin verða sýnileg eins og hefð sé að fyrrverandi forsetar geri.

Birgir Loftsson, 9.8.2022 kl. 22:37

3 Smámynd: Birgir Loftsson

 Hin svokallaða hlutlausa Silja á RÚV: "Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump sætir rannsókn. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur til dæmis ákært hann tvisvar sinnum fyrir embættisglöp. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir Trump hafi tekist að láta þær rannsóknir líta út eins og það sé kerfið að ráðast gegn sér. „Sem er auðvitað það sem hann bauð sig fram gegn, að ráðast gegn talsmanni lítilmagnans, almennings. Og auðvitað er mögulegt að honum takist að gera það með þetta líka. Það eru rúm tvö ár í næstu forsetakosningar, það eru þrír mánuðir í þingkosningar. Trump hefur ekki enn þá lýst yfir í framboði en í nótt þá kom myndband frá honum þar sem hann komst mjög nálægt því að lýsa því yfir að hann myndi bjóða sig fram. Þetta getur snúist auðveldlega upp í vopn fyrir hann og margir af hans stuðningsmönnum eru strax farnir að nota þá orðræðu.“

Birgir Loftsson, 9.8.2022 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband