Gleðilegan þjóðhátíðardag Íslendingar!

Þetta er merkisdagur í dag, 17. júní, og á sama tíma afmæli Jóns Sigurðssonar (212 ár) frelsishetju og íslenska lýðveldisins sem var stofnað á Þingvöllum 1944.

Gleymum ekki að við erum fámenn þjóð sem hefur lifað af 1200 ár í þessu harðbýla landi. Aðeins sterkasta fólkið lifði af allar hörmungarnar af manna völdum og af hálfu náttúrunnar þetta rúmlega árþúsund. Er ekki viss um að við verðum til sem þjóð eftir hundrað ár, en ef ekki, þá eigum við a.m.k. að fagna daginn í dag sem er afmælisdagur núlifandi Íslendinga og þeirra sem eru horfnir á braut.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

"Þjóðin" hefur ekki lifað af hér í 1200 ár; hún verður 1100 ára í júní 2030, á fyrsta fimmtudegi eftir sumarsólstöður.

Guðjón E. Hreinberg, 18.6.2023 kl. 00:34

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Æi Guðjón, þetta rúnuð tala sem ég er að nota. Hver veit hversu lengi fólk hefur búið hér? Veist þú það? Held enginn.

Athyglisverðar eru fornleifa rannsóknirnar í Stöðvarfirði sem virðast færa búsetu nær árhundraðinu 800 en 900.

Móta bene, það var haldið upp á 1100 afmæli búsetu í landinu 1973....Er það bara fín tala eins og önnur?

Birgir Loftsson, 18.6.2023 kl. 09:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband