Jón Sigurðsson vildi beita pennanum og sverðinu samtímis


Varnarmál voru Jóni hugleikinn af ýmsum ástæðum.

Nútíma Íslendingar hafa lyft hann svo hátt á stall að hann er nánast orðinn að Gandhi norðursins. Jón var hins vegar raunsær maður og vissi sem var og er að sjálfstætt ríki yrði að tryggja varnir sínar með ný til komnu frelsi.

Nú þykist ég skynja, samkvæmt skoðanakönnunum að meirihluti Íslendinga vill ekki stofna íslenskan her. Það viðhorf er skiljanlegt enda erum við girt með belti og axlarbönd með veru okkar í NATÓ og varnarsamningnum við Bandaríkin.
Fallvalleiki einkennir heiminn og hernaðarveldið Bandaríkin alveg örugglega ekki til staðar fyrir Ísland um alla eilíf. Hvað gerum við þá?

Ég lít svo á að síðasta hamarshöggið í smíði íslenskt sjálfstæðis er trygging eigin varnar með íslenskum vörnum. Þetta er nefnilega sjálfstæðismál. Það getur nefnilega verið hættulegt að vera kjölturakki stórveldis, það getur nefnilega dregið fylgiríkin niður með í fallinu.

En rifjum upp hvað Jón Sigurðsson sagði um varnarmál.

Fyrir hið fyrsta er að hann áleit að sérhvert ríki þyrfti á góðum vörnum að halda og sjálfstjórnað land þýddi varið land.

Í öðru lagi kynntist hann hermennsku af eigin raun og vissi út á hvað slík þjónusta gengur enda var það skylda hvers stúdents að ganga í stúdentahersveitir konungs. Þessum hersveitum var komið á fót árið 1807 til að verja Kaupmannhöfn fyrir Bretum.

Í þriðja lagi voru Napóleon styrjaldirnar Íslendingum ferskar í huga enda hafi fámennur hópur undir forystu Jörund hundadagakonung sýnt veikleika danskra varna á Íslandi og getuleysi Dana gagnvart flotaveldi Breta.

Jón Sigurðsson skrifaði einmitt um meinta getuleysi Dana í fyrsta tölublaði Nýrra félagsrita árið 1841 og ályktaði að landsmönnum væri hætta búin af þessu getuleysi Danakonungs.

Íslendingum væri nauðsynlegt að fá fulltrúaþing meðal annars í þeim tilgangi að tryggja sér vettvang sem gripið gæti til viðunandi varna eða annarra úrræða til dæmis ef eitthvert ónefnt ríki hernæmi Danmörku sem einmitt gerðist 1940 og Ísland hernumið af Bretum í kjölfarið.

Jón var fylgjandi innlendu fulltrúaþingi sem gæti virkjað samtakamátt þjóðarinnar og gert landið síður fýsilegt en ella fyrir ríki sem legði Danmörku undir sig. Þá virðist Jón hér greinilega hafa séð fyrir sér að þingið stofnaði hér til einhvers konar landvarna.

Árið 1843 skrifaði Jón aftur grein í Nýrra félagsrita um varnarmál. Tók hann dæmi af vígbúnaði Íslendinga fyrr á öldum þegar þeir hefðu ekki verið eftirbátar nokkurrar þjóðar í hernaði og benti á að þessu skeiði hefði lokið með ólögmætri eyðileggingu konungsmanna á vopnabúrum Íslendinga, vopnabroti Jóni Magnússyni sýslumanns.

Jón var svo óánægður með ræktar- og skilningsleysi Íslendinga hvað varðar hermennsku á seinni öldum að hann gat ekki annað en skrifað að Íslendingar hefðu sýnt ræktarleysi, tvídrægni og hvorki meira en minna ragnmennsku margra ættliða...þegar vernda skyldi gagn landsins og verja réttindi þess og frelsi.Tilvitnun: Jón Sigurðsson, „Um verzlun á Íslandiâۥ, Ný félagsrit, III, 1843, bls. 1-127

Jón ítrekaði að fulltrúaþing Íslendinga væri nauðsynlegt til að tryggja varnir landsins og Íslendingar þyrftu nauðsynlega að taka upp vopnaburð á ný.

Grípum niður í greina og sjáum hvernig Jón teldi landvörnum Íslendinga best hagað í framtíðinni:

Þess er einkum að gæta að mér virðist um varnir á Íslandi, að þar er ekki að óttast aðsóknir af miklum her í einu, og þar þarf að eins fastar varnir á einstöku stöðum, þar sem mestar eignir og flest fólk er saman komið. Það bera sumir fyrir, að ekki stoði mikið varnir á stöku stöðum, þegar óvinir geti farið á land hvar sem stendur annarstaðar, en þess er að gæta, að útlendir leita fyrst og fremst á hafnir, eða þá staði sem landsmönnum eru tilfinnanligastir, einsog menn sáu á ófriðarárunum seinustu að þeir leituðu á Reykjavík og Hafnarfjörð, og þarnæst, að væri nokkur regla á vörninni yrði hægt að draga saman nokkurn flokk á skömmum tíma hvar sem stæði, þar sem líklegt væri nokkurr legði að landi, og að síðustu, að þó óvinir kæmist á land, þá yrði hægt að gjöra þeim þann farartálma, ef landsmenn brysti ekki hug og samtök, að þeir kæmist skammt á götu, þar er þeir yrði að flytja með sér allt sem við þirfti, og skjóta mætti á þá nær því undan hverjum steini. –Eptir því sem nú er ástatt mætti það virðast haganligast, að menn lærði einúngis skotfimni og þvílíka hernaðar aðferð sem skotlið hefir, eður veiðimenn, og ríður einkum á að sem allflestir væri sem bestar skyttur, og hefði góð vopn í höndum. Smáflokkar af þvílíkum mönnum um allt land, sem vildi verja föðurland sitt og sýna hverra synir þeir væri, mundi ekki verða síður hættuligir útlendum mönnum á Íslandi enn þeir hafa orðið annarstaðar...

Jón var sem sagt fylgjandi skæruhernaði enda fámennt land og ekki margir hermenn sem stæðu til boða. en svo virðist sem Jón hafi einmitt talið slíkar hernaðaraðferðir henta Íslendingum vel til landvarna.

Jón Sigurðsson gerði sér grein fyrir því að það kostaði töluverða fyrirhöfn að koma upp slíkum liðsafla á Íslandi. Hann hafði ráð undir rifi hverju, því hann lagði til að ungir menn kepptust um að eiga sem bestar byssur og að vera sem markvissastir í skotfimi. Þá myndi mönnum vart þykja tilkostnaðurinn of mikill. Það væri gaman að grafa upp afstöðu Jóns gagnvart Herfylkinguna í Vestmannaeyjum sem komið var á fót í hans tíð. Hef a.m.k. ekki lesið neina grein sem fjallar um það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég er sammála Birni Bjarnasyni og fleirum að það þarf íslenzkan her á þessu landi, þótt ekki væri nema táknrænan, til að sýna fram á viljann til sjálfstæðis. Annars held ég að einhverskonar flugvélar með varnargetu eða lítill flugfloti til að verjast flugárásum gæti verið áhrifamestur. Svo þarf að fylgjast með kafbátaferðum og hafa upplýsingar hvað er að gerast í kringum landið.

Til að ungt fólk - og fólk á öllum aldri taki sjálfstæði þjóðar og lands alvarlega þarf að sinna vörnum landsins af eigin rammleik.

Ég á þó erfitt með að trúa að auðvelt sé að koma upp innlendum landher, slíkt er of fjarri hugmyndum flestra.

En það sýnir gott vit að velta þessu fyrir sér og skilning á hugtakinu sjálfstæði.

Ingólfur Sigurðsson, 19.6.2023 kl. 01:02

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Ingólfur. Við sem ræðum þetta erum kallaðir bjánar hér á blogginu, mjög málefnalegt og kurteistlega orðað eða þannig!

Ég tel að eitthvað þurfi að gera. Það þarf ekki mikinn mannskap,  frá 200-1000 manns. Loftvarnarkerfi (Iron dome) fyrir Suðurland og helstu þéttbýli og mannskap til að eiga við hryðjuverkamenn eða sérsveitir óvinahers.

Athyglisvert er að Bandaríkjaher er ekki að gera þetta fyrir okkur enda hugsa þeir aðeins um eigin þarfir og NATÓ í heildina. Ef Íslendingar sæju sjálfir um varnirnar, væru áherslurnar aðrar.

Birgir Loftsson, 19.6.2023 kl. 08:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband