Mun forseti Íslands stöðva bókun 35?

Nei er stutta svarið.  Núverandi forseti hefur ekki sýnt neina leiðtogahæfileika, ákveðni né þor.  Í þau fáu skipti sem hann tjáir sig um alvarleg mál sem snerta forsetaembættið, og ekki bara að klippa borða og segja fín orð, hefur hann verið ákveðinn í að vera óákveðinn.

Athuga verður að forsetinn er ekki bara upp á punt á Bessastöðum sem er dreginn fram við hátíðlegar athafnir, hann hefur raunverulegu hlutverki að gegna í íslensku stjórnkerfi. Oft er vísað til hans sem öryggisventil. Forsetinn sem var á undan honum sannaði rækilega að forsetinn hefur hlutverki að gegna. Hann sparaði íslenska þjóðarbúið hundruð milljarða króna í Icesave málinu, þegar Alþingi Íslendinga brást hlutverki sínu og umbjóðendum sínum með kolólöglegri lagasetningu.

Talað er um að hópur manna ætli eða sé byrjaður að safna undirskriftalistum gegn lagasetningu fyrir bókun 35. Sel það ekki dýrara en keypti.

 

Frumvarp til laga

 

um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35).

Frá utanríkisráðherra.



1. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:
    Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.  

 

Svo kemur greinagerð um frumvarpið sem ekki er birt hér.

Fyrir áhugasama, er slóðin inn á frumvarpið hér: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35).

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Svona er umræðan brengluð í dag:

Gæti verið mynd af 2 manns og Texti þar sem stendur

Birgir Loftsson, 29.9.2023 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband