Hvernig berst maður gegn ríkis/fyrirtækis einokun?

Danska einokunarverslunin er fyrirrennari íslensku einokuninni. Skömmtunartímabilið eftir seinni heimsstyrjöld  upp úr 1947 var einn angi af einokun en það skapaði spillingu og flokksdrætti. Ríkið að skipta sér af frjálsum markaði sem einmitt lengdi í hengingaólinni.

Íslenska ríkið var lengi að sleppa klónni af valdi sínu sem það fékk með skömmtun vara. Það vildi helst hafa alla þræði atvinnulífsins í hendi sér og fyrir vikið var þjónustan, verð og úrval vara lélegt hjá ríkisreknum fyrirtækjum á markaðinum. 

Það er nefnilega þannig að tæknikratar eru lengur að bregðast við minnkandi eða aukna eftirspurn á markaði og þeim var sama, því að aukinn gróði kom ekki í vasa þeirra. Enginn hvati til að gera betur. Man einhver eftir Bifreiðaeftirliti ríkisins? Arfaslök þjónusta sem fór fram utandyra.

Alls kyns ríkisfyrirtæki á markaði hafa horfið og skömmtunaráráttan með.  En það þurfti menn eins og Davíð Scheving Thorsteinsson sem mótmælti og kærði bann á sölu bjórs nema í gegnum fríhöfn Keflavíkurflugvallar og annarra ferðaþjónustu aðila til að aflétta bjórbann. Í minningargrein í Morgunblaðinu um hann segir: "Á tím­um viðskipta­hafta og skömmt­un­ar lagði Davíð til at­lögu við hið op­in­bera í því skyni að geta boðið Íslend­ing­um upp á meira úr­val og fjöl­breytni. Þannig hef­ur at­hafna­semi hans og út­sjón­ar­semi í viðskipt­um verið meðborg­ur­um hans til hags­bóta.“

Alltaf þarf ríkið að hafa vit fyrir fullorðið fólk og sjálfráða, slík er stjórnunaráráttan.

Nú eru komnir brestir í ÁTVR einkunina á smásölu. Íslenska ríkið myndi loka á einkafyrirtæki sem eru byrjuð að selja áfengi í smásölu ef það gæti en það getur það ekki vegna þess að við erum í EES.Nú ætti áfengisverð að lækka með aukinni samkeppni sem og vöruúrval. Helstu rök fyrir smásölu áfengis í gegnum ÁTVR er baráttan fyrir lýðheilsu. Eins og ríkið með sölu sinni á "eitrinu" sé að vernda heilsu almennings!? Hljæilegt.

Önnur peningasuga íslenskra skattborgara, RÚV, situr sem fastast og ekki getur borgarinn hunsað nauðunga "áskrift" að þessum ríkisrekna miðli, því að gjaldið er hirt beint af honum í gegnum skattkerfið. Réttlæting fyrir RÚV er almannavarnir en þau rök eru löngu farinn með nútímatækni. 

Það er alveg sama hversu mikil samkeppni verður á fjölmiðlamarkaðinum, við losnum ekki við RÚV. Þetta mikla peningahít sem örfáir nota og drepur alla samkeppni á fjölmiðlamarkaðinum.  Ekki er hægt að sjá aðra leið en að fara í gegnum dómstólaleiðina. En hefur hún verið farin? Vantar okkur Davíð Scheving nútímans til að hjóla í RÚV?

Að lokum. Svo er það sérkapítuli fyrir sig fákeppni fyrirtækja sem ríkið tekur stundum þátt í.  Það er viss einokun á markaði en af hálfu einkafyrirtækja sem við sjáum reglulega með verðsamráði.

Forstjóri Haga efast um að matvöruverðið á Íslandi sé of hátt nú í fjölmiðlum. Hvernig er t.d. matvöruverðið í Færeyjum, á þeim örmarkaði? Á margan hátt lægra, þrátt fyrir smæð markaðarins og fákeppni. Jú, það er rétt hjá Finni Oddsyni að verðbólgan spilar inn í vöruverð en það er líka verðbólga á meginlandi Evrópu.  Samt er matvöruverðið lægra almennt þar.

Gaman væri að vita hvernig vöruverð er á Grænlandi, á markaði sem mjög erfitt er að koma vörur á og smæð markaðarins mjög lítil. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Fáir muna, fyrir örfáum misserum, þegar fyrirtæki nokkurt var eyðilagt af Samkeppnisstofnun og fékk "dóm" stofnunar leiðréttan og skriffinnar stofnunar fóru með leiðréttinguna fyrir dómstóla og keyrðu rústun sína í gegn.

Guðjón E. Hreinberg, 6.9.2023 kl. 12:56

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir innlitið Guðjón.

Birgir Loftsson, 7.9.2023 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband