Svíþjóðar-demókratar öfgaflokkur?

Hér er Morgunblaðið að misskilja hugtak og hugsun. Í frétt blaðsins segir eftirfarandi: "Öfga-hægri flokk­ur­inn Svíþjóðardemó­krat­ar bættu við sig tölu­verðu fylgi í nýj­ustu skoðana­könn­un­inni í Svíþjóð en tvær vik­ur eru nú til stefnu fram að kosn­ing­um þar í landi. 

Flokk­ur­inn er nú með næst mest fylgi á eft­ir Sósí­al­demó­kröt­um sem hef­ur lengi verið stærsti flokk­ur­inn í Svíþjóð. Svíþjóðardemó­krat­ar hlutu á milli 20 til 23 pró­senta fylgi í þrem skoðana­könn­un­um sem voru birt­ar í þess­ari viku."

Hvernig getur flokkur sem nær fimmtug atkvæða talist vera jaðar og þar með öfgaflokkur? Mér sýnist þetta vera stimpill sem er límdur á flokkinn og að af óathugu máli. Eins og með aðrar fréttir erlendis, ber fréttin merki um leti íslenskra fjölmiðla og í raun vanrækslu á gagnrýni á málflutning erlendra fréttaveita.

Eins og flestir vita, sem fylgjast með erlendum fjölmiðlum, er hlutleysið löngu horfið úr fréttamennskunni og nú er markmið að segja "fréttir" frá einu eða öðru sjónarhorni. Ég veit voða lítið um Svíþjóðar-demókrata nema það sem Útvarp saga segir (eina sjónarhornið sem maður fær). Kannski eru þeir öfga eða bara venjulegir, veit það ekki, en öfga stimpillinn sem er lagður á flokkinn segir mér ekkert (nema ef vera skildi fordómar?). 20% kjósenda er sagt þar með vera öfgafólk.

Sjá hlekkinn:

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/08/26/svithjodardemokratar_med_naest_mest_fylgi/ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

SD er einmitt ekki öfgaflokkur, en það það eru miklar öfgar að halda áfram með óbreytta stefnu í Svíþjóð.  Landið er eiginlega orðið víti sem Danir vilja fyrir alla muni forða Danmörku frá.

Sigurjón Þórðarson, 27.8.2022 kl. 09:06

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Sigurjón. Og dæma 20% kjósenda öfgafólk fyrir að kjósa flokkinn!

Birgir Loftsson, 27.8.2022 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband