Holur hljómur hjá Samfylkingunni

Pólitískur vindhaninn má kalla slíkan flokk sem segir eitt í dag en annað í gær. Flokkurinn varð allt í einu vinsæll á ný eftir mörg mögur ár í pólitík. Flokkurinn á stóran þátt í hruninu og eftirmála þess og það birtist í fylginu sem var lítið lengi vel.

Hvað er það sem hefur breyst hjá Samfylkingunni? Ekkert í raun nema að skipt var um skipstjóra. Hægri kratinn, Kristrún Frostadóttir, var kosin til valda. Hún virkar geðþekk út á við og virðist boða ferskar áherslur hjá flokknum. 

Flokkurinn var kominn langt til vinstri undir forystu Loga Einarssonar og formaðurinn virtist ekki hafa kjörþokka sem heillar kjósendur.

Guð­­­mundur Árni Stef­áns­­­son, odd­viti Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar í Hafn­­­ar­­­firði,var vinsæll á sínum tíma og hann því dreginn úr geymslu í varaformannsembættið. Tvíeykið virkar vel út á við.

Þessi nýja forysta (ekki stefna í raun) virðist ætla að taka næstu kosningar og komast til valda. Styrrinn sem nú er um flokkinn eftir að Kristrún sagðist vilja stunda raunsæisstefnu í hælisleitendamálum skiljanlegur enda ekki hægt annað miðað við að hælisleitendakerfið er fallið. Mesta andstaðan kemur úr hennar eigin flokki. Kjósendur ættu því að hafa varan á við málflutning rétt fyrir kosningar um breytta stefnu. Þetta er kosninga þvaður sem samþingsmenn hennar munu hunsa er þeir komast til valda. Kristrún, þótt öflug er, er ekki ein í flokki.

Hér er í raun alvöru stefna Samfylkingarinnar í málefnum hælisleitenda: Opnum faðminn 

Hér koma gullmolar úr greininni sem er frá september 2021: "Samfylkingin vill taka við fleira fólki á flótta." Og "Lykilatriði er að greiða leið fólks af erlendum uppruna inn í íslenskt samfélag...."

Úlfur í sauðgærum er gamalt og gott orðtiltæki og það á við um Samfylkinguna. Fláræði og flámæli fer alltaf vel í múginn sem lætur alltaf blekkja sig á fjögurra ára fresti. 

Nota bene, aukið fylgi Samfylkingarinnar má rekja til fylgishrun VG.  Það er bara þannig að vinstri kjósendur flakka á milli vinstri flokkanna, eftir því hver er vinsælastur. VG er út og Samfylkingin inni. Annars hafa vinstrisinnaðir kjósendur um marga flokka að velja, Pírata, Viðreisn, Sósíalistaflokk Íslands, VG og Samfylkinguna og ef í harðbakkann slær, má kjósa pólitíska viðundrið Framsókn sem er til í allt með öllum.

Enn eitt nota bene, fyrir þá sem eru hrifnir af bálkninu og háa og aukna skatta, þá er Samfylkingin flokkur sem á að kjósa. Kristrún beinlínis boðaði tekjutilfærslur úr vasa millistéttarinnar í vasa lágstéttrinnar. Og aukna skatta á vörur og þjónustu - vei fyrirtækjaeigendur.

Gullmoli úr greininni Jafnaðarstefna í efnahags- og atvinnumálum ..."...með réttlátu skatt- og tilfærslukerfi sem jafnar lífskjör, spornar gegn því að auður safnist á fárra hendur og tryggir afkomuöryggi allra."  Hvað þýðir þetta á mannamáli? Sama tuggann sem marxistar hafa haldið fram í áratugi, að auðmenn séu vondir (þótt þeir séu uppspretta skatta og stækkunnar þjóðarkökunnar og halda uppi velferðakerfinu). Án fjármagns og fjármagnseigendur, væri ekkert velferðakerfi á Íslandi og fólkið hefði ekki vinnu og ríkisapparatið gæti ekki rekið sig. Ekki býr ríkið til pening. Punktur.


Bloggfærslur 19. febrúar 2024

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband