Samfylkingin hugsar glatt til glóðarinnar þegar fyrirséð er að ríkisstjórnin er í andaslitum. Fylgið mælist hátt í skoðanakönnunum og nýtt andlit er komið á flokkinn með nýjum formanni. Allt í glimmrandi gengi.
Formaður Samfylkingarinnar bendir með vandlætingarsvip á formann Sjálfstæðisflokksins og talar um spillingu en sá síðarnefndi var "dæmdur" af umboðsmanni Alþingis vanhæfur vegna fjölskyldutengsla við sölu Íslandsbanka.
En er það ekki verra að vera sjálf(ur) viðriðin banka hneyksli? Grípum niður í nýlega frétt frá því í sumar.
"Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, greiddi 25 milljónir til Skattsins í vor eftir tilmæli sem send voru til allra sem höfðu starfað hjá Kviku banka og fjárfest í áskriftarréttindum eða kaupréttum, sem voru í boði fyrir starfsmenn bankans.
Það var mat Skattsins að greiða ætti tekjuskatt, en ekki fjármagnstekjuskatt, af hagnaðinum. Heimildin greinir frá."
Hvað þýðir þetta á mannamáli? Viðkomandi reyndi að greiða sem minnsta skatta en fjármagnstekjuskattur er helmingi lægri en tekjuskattur. Allt í lagi með það, fólk finnst nóg um hversu djúpt í vasann ríkisvaldið seilist með skattlagningu og reynir að borga minna.
En pólitískt séð, kemur þessi vandlæting úr hörðustu átt. Formaður Samfylkingarinnar boðar nefnilega skattahækkanir þegar flokkurinn kemst til valda. Það er ekki nóg að fólk sé að sligast vegna verðbólgu, það á að herða skattaskrúfuna á puttanna enn frekar. Sjá hér: Ýmis viðtöl við Kristrúnu á Útvarpi sögu
Það á sem sagt að efla velferðakerfið. En það verður aldrei gert nema a) tilfærsla skattfés frá einum málaflokki í annan; b) spara í ónauðsynlegum málaflokkum eða c) hækka skatta.
Samfylkingin boðar ekki skattalækknanir. Kaldhæðislega séð en formaður Sjalla vill bankaskatt. Það er eflaust vinsæl skattlagning hjá almenningi enda er hann orðinn þreyttur á ofurhagnaði bankanna. En bankarnir munu bara hækka gjöld á þjónustu sinni til að missa ekki spón úr aski. Það er nefnilega fákeppni á bankamarkaðinum.
Formaðurinn vill skattleggja arðinn af fiskveiðiauðlindinni. Það er líka vinsælt að gera og uppi á pallborði hjá almenningi. En þetta er enn ein skattlagningin á atvinnulífið.
Og svo koma boð og bönn og afskiptasemi ríkisvaldsins af markaðinum. Formaðurinn segir að það verði að skylda lífeyrissjóði til að fjárfesta í húsnæðisuppbyggingu. Þetta hljómar saklaust á yfirborðinu en getur haft ófyrirséðar afleiðingar fyrir lífeyrissjóðina. Það er nefnilega skylda þeirra, fyrir hönd umbjóðenda sinna - launafólkið í landinu, að fjárfesta í atvinnulífinu þar sem það er hagkvæmast og gefur mestan arð. Tökum ímyndað dæmi. Lífeyrissjóður á 1 milljarð. Hann er neyddur til að fjárfesta í húsnæðis í stað, segjum bara fiskeldi, sem gefur kannski helmingi meiri arð af sér. Sjóðir lífeyrissjóða eru í einkaeigu sjóðsfélaga og stjórnmálamenn eiga ekkert með að skipta sér af sjóðum, sparifé eða atvinnulífinu yfir höfuð.
Flokkurinn vill setja á leiguþak. Hvað þýðir það? Enn ein afskiptin af atvinnulífinu. Frjálst framboð og eftirspurn ekki látin ráða. Markaðurinn leiðréttir sig ekki vegna þessara afskipta. Af hverju fyrir verktakann að bjóða fram fleiri leiguíbúðir ef arðurinn er skertur? Hvatningin, græðgin, er tekin úr sambandi. Menn eru ekki í atvinnurektri til að tapa sparifé sínu eða í sjálfboðavinnu. Kapitalískt hagkerfi virkar ekki þannig. Í Kína er offramboðið á íbúðum svo mikið að nefndar eru tölurnar 1,4 milljarðar til 3 milljarða íbúða sem standa tómar, einmitt vegna þess að stjórnvöld hafa skipt sér af hvernig fólk fjárfestir sparifé sitt (fáir möguleikar fyrir venjulegt fólk en að fjárfesta í íbúð).
Svo kemur þessi venjulega rulla: "Almennar launahækkanir koma aldrei í staðinn fyrir öflugt velferðarkerfi og aðgengilegan húsnæðismarkað og ef menn ætla að setja fram hóflegar kröfur í kjaraviðræðum þá sé nauðsynlegt að velferðarkerfið verði gert öflugra á móti sem og félagslega húsnæðiskerfið. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristrúnar Frostadóttur formannns Samfylkingarinnar í síðdegisútvarpi Sögu." Sem sagt, launafólk á steinhalda kj..., ekki biðja um launahækkanir vegna verðbólgu en taka á sig skattahækkanir því að það á stækka velferðakerfið.
Hvað á að gera í sambandi við verðbólguna? Formaðurinn segir "...að það sé mat Samfylkingarinnar að til þurfi að koma tvíþætt nálgun, annars vegar aðgerðir til þess að halda aftur af verðbólgu (innskot, það er ekki útskýrt hvernig) og hins vegar aðgerðir til þess að vernda ákveðna hópa fyrir verðbólgunni. Hún segir mjög mikilvægt að þungi verðbólgunnar verði lagður frekar á þá sem geta betur tekist á við hana heldur en þá sem minnst hafa."
Hvernig ber að túlka þessi vísu spakmæli og vísidóm? Jú, skattlagning á millistéttina, efri og neðri og þá sem eru efnaðir. Tilfærsla fés fólk sem það hefur unnið sér inn á heiðarlegan hátt, til annarra. Jafnaðarmenn eru og verða alltaf ójafnaðarmenn.
30% kjósenda vilja þetta (búnir að gleyma hruninu) og ætla sér að kjósa Samfylkinguna í næstu kosningum. Verði þeim að góðu en því miður fyrir okkur hin, við þurfum að líka lepja úr þessari þunnu naglasúpu með þeim.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 11.10.2023 | 09:15 (breytt kl. 09:55) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.