Er Úkraníu stríðið senn á enda?

Eins og flestir vita sem fylgjast með gangi stríðsins, hefur gagnsókn Úkraníu manna ekki gengið sem skyldi. Það var borin von enda Rússar ákveðnir í að vinna stríðið og hafa alla burði til þess enda með stærri her og úrræði til vopna framleiðslu og kaupa.

Nútíma stríð vinnast ekki síður í hergagna verksmiðjunum og fjármagni en á vígvöllunum.

Nú hefur Bandaríkjaþing skorið á fjárveitingu til Úkraníu stríðsins og þar með er skorið á vopnasendingar og fjármögnun stríðsins. Þegar er mikill skortur á vopnabúnaði Úkraníu manna og hætt við stríðsvél Úkraníu manna stöðvist fljótlega. Þetta staðgengis stríð er því búið og allir vita það nema Zelenski.

Bandaríkjamenn eru því að tapa enn einu stríðinu undir forystu Joe Biden.

Er það tilviljun að æðsti hershöfðingi Bandaríkjanna, Mark Milley,  sé að segja af sér eftir ömurlega frammistöðu í starfi? Ber þar hæst lítillækkandi undanhald og ósigur í Afganistan og nú framundan ósigur í Úkraníu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband