Endurlífgun Sjálfstæðisflokksins vonlaus?

Nú hefur einn ágætur bloggari hér á Moggablogginu, og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, verið skeleggur í að reyna að endurreisa flokkinn. Það sem virðist hafa fyllt mælir hans er bókun 35 um að reglugerðir (ekki lög) ESB séu rétthærri en íslensk lög nema þau síðarnefndu segja annað. Hann hefur reynt að virkja grasrótina með t.d. fundum Félags Sjálfstæðismanna sem einmitt hefur reynst trúrri stefnu flokksins en flokksforustan.

En það hljóta að vera önnur mál sem hafa gert margan Sjálfstæðismanninn reiðan. Af mörgu er að taka.  Fyrir hið fyrsta er að flokkurinn hefur ekki reynst standa vörð um stóru málin í efnahags- og stjórnkerfismálum, t.d. bálknið burt en í framkvæmd bálknið stækkað!  Kvótakerfið og sægreifarnir koma fyrst upp í huga en Framsóknarflokkurinn er reyndar faðir fiskveiðikerfisins. Kvótakerfið er ekki alveg byggt á frjálsum markaði. Veit ekki hvort hægt sé að hafa það öðruvísi.

En nærtækasta dæmið er hvalveiðibannið. Þjóðin skiptist í tvennt í afstöðu sinni til málsins en hógværar veiðar sem viðheldur jafnvægi geta ekki verið annað en jákvætt fyrir dýralíf sjávar. Flokkurinn sem gefur sig út fyrir að vera verndari frjáls framtaks, markaðshyggjuflokkur og einstaklingshyggju, guggnaði á að vernda þann hluta sjávarútvegar sem skiptir máli fyrir hundruð manna.

Að gerræðisákvörðun, tekin á augarbragði, annað er ekki hægt að segja með banni tveimur dögum fyrir vertíðarbyrjun, þótt ráðherra segist hafa hugleitt málið lengi. Mér virðist ráðherrann hafa byggt ákvörðun sína á drápi eins hvals. Hefur hann séð hvernig háhyrningar drepa hvalkálfa? En hvað um það, alvöru flokkur sem styður frjálst atvinnulíf, hefði sprengt ríkisstjórnina.

Innflytjendamál, ótrúlegt að maður sé að ræða þau mál, eru hreinlega farin úr böndunum.  Flestir útlendinganna hérna, og ég þekki marga, eru hingað komnir að vinna. Frábært fólk en svo eru það hinir sem koma hingað til að leita inn á kerfið. Það veit að það fær fría framfærslu í tvö ár (umsóknarferilinn er svo langur) og nýtir sér það. Þetta eru velferðaflóttamenn sem flakka á milli landa undir yfirskyn flótta og nota velferðakerfi Vesturlanda.  Mörg ríki hafa lokað á þetta og þá leitar fólk þangað sem varnirnar eru veikastar og þær eru veikastar á Íslandi.

Fyrir Jón og Gunnu, skapar þetta vandamál, því að velferðakerfið á Íslandi er lélegt. Margra vikna bið eftir viðtali við heimilislæknirinn (ef maður hefur slíkan), bráðamóttakan sprungin (6 klst bið síðast er ég fór) framfærsla öryrkja, aldraðra og atvinnulausra skorin við nögl o.s.frv.

Húsnæðismarkaðurinn er sprunginn vegna þessa og ótal margt annað, allt vegna of mikið innflæði innflytjenda.  Innflæðið er stýrt eftir þörfum atvinnulífsins, ekki þörfum hins almenna borgara. Reyndar hafa landamærin verið galopin um langt skeið og engin stjórn á innflæði gerviflóttamanna.

Hinn almenni borgari er látinn gjalda rangrar stefnu í innflytjendamálum. Með öðrum orðum, þetta er farið að hafa áhrif á daglegt líf Jóns og Gunnu. Þá er hægt á að fari að þykkna í hinum umburðalinda Íslendingi. Það er svo auðljóst að þetta gengur ekki upp. En vinstri flokkarnir, með Pírata fremst í flokki, vilja ekki almenna skynsemi í málaflokknum og því er allt í kalda koli. Flokksforyrsta Sjálfstæðisflokksins hefur brugðist í þessu máli. Aðeins einstaka þingmenn hafa staðið í lappirnar.

Annað er algjör fylgispeki við stefnu Bandaríkjanna og NATÓ í Úkraníu stríðin. Það er gott og vel að svo sé gert, en Sjálfstæðisflokkurinn (með utanríkismálin á sinni könnu) og sérstaklega VG skuli ekki beita sér fyrir friði í þessu ljóta stríði er hreint ótrúlegt.

Nei, það er beinlínis hvatt til átaka, farið og kysst og kjassað Zelenský, og ekki einu orði minnst á að kannski gæti Ísland verið sáttasemjari í málinu, boðið deilendur til Íslands til viðræðna í Höfða. Það er ekki hægt, enda búið að reka rússneska sendiherrann heim! Það er engin sjálfstæð utanríkisstefna Íslendinga til. Ísland er ein kindin í sauðarhjörðinni.

Þetta er í annað sinn sem diplómatísk samskipti eru rofin við erlent ríki (þriðja þorskastríðið og Bretland var fyrra skiptið). Stór mistök í utanríkispólitíkinni enda lýkur stríðinu einhvern tímann og samskipti við Rússa tekin upp á ný (hafa Bandaríkjamenn gert það?).  Þá verður alltaf farið í minnisbókina þegar eitthvað stórt gerist á milli Íslands og Rússlands og Rússinn segir...."aha, Íslendingar settu á okkur viðskiptabann (á meðan við hjálpuðum þeim í viðskiptabanni Breta og V-Þjóðverja í þorskastríðinu), þeir styðja óvini okkar bein með fjármagni og þjónustu. Þeir eru ekki vinveittir Rússum og Rússlandi."

Fjármálagerningar og spillingin í bankamálum hlýtur að gera margan flokksmanninn reiðan. Enginn lærdómur dreginn af bankahruninu 2008? Og alltaf er formaður flokksins tengdur spillingarmálum, enda fjármálaráðherra. Svo er reyndar með Kristrúnu formann Samfylkingarinnar sem var innsti koppur í Kviku. Ekki er sá flokkur gæfulegur.

Verst af öllu hlýtur að vera hugsjónarleysi flokksforystu Sjálfstæðisflokksins. Hvar eru gildi og hugsjónir flokksins? Varðveisla íslenskrar tungu og menningu? Tengingin við hinn almenna borgara? Formaðurinn hefur smá saman raðað í kringum sig já-fólk en slíkt gerist þegar formaður flokks hefur verið lengi við völd. Hefur einhver heyrt formanninn flytja eldmessu eða verið reglulega í fjölmiðlum að ræða vanda dagsins? Það kann ekki góðri lukku að stýra að vera með leiðtogalausan flokk. Jarðtenging flokksforystunnar hefur rofnað og fylgið horfið út í veður og vind. 20% fylgi fyrir eina hægri flokk landsins? Er það eðlilegt?

Ég er hræddur um að varaþingmaður flokksins sé að berjast við vindmyllu. Flokksforystan er kyrfilega föst í eigi neti og ekki er hlustað á grasrótina frekar en fyrri daginn. Þá er tvennt í stöðunni, stofna nýjan alvöru hægri flokk eða ganga í raðir Miðflokksins sem virðist hafa öll gildi Sjálfstæðisflokksins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Íslenskir dómstólar hafa ítrekað staðfest að reglugerðir og tilskipanir ESB hafa ekkert lagagildi á Íslandi.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.7.2023 kl. 19:07

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Komdu með dæmi Guðmundur, ekki setningu sem ekki er hægt að sanna eða afsanna. Annað hvort harðkjarna dæmi eða a.m.k. röksemdarfærslu fyrir fullyrðingu þinni. Svo snýst málið (bókun 35) ekkert um íslenska dómsstóla, heldur HVAÐ íslensk stjórnvöld ætla að gera. Annars er grein mín ekki um bókun 35, þótt ég hafi minnst á hana hér.

Birgir Loftsson, 13.7.2023 kl. 21:54

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Alveg sjálfsagt, hér er "grjóthart" dæmi.

Í greinargerð með frumvarpinu um forgangsreglu samkvæmt bókun 35 er fjallað um nokkur slík tilvik, þar á meðal í dómi Hæstaréttar 26. nóvember 2015 í máli nr. 243/2015. Eftirfarandi er orðrétt upp úr þeirri umfjöllun:

Í málinu reyndi á ákvæði laga sem voru ekki í samræmi við tiltekna tilskipun sem tekin hafði verið upp í EES-samninginn og var í gildi en hafði hins vegar ekki verið innleidd. Í dómnum segir: „Við mat á afleiðingum slíks ósamræmis er þess að gæta að tilskipunin hafði ekki lagagildi hér á landi. Í 3. gr. laga nr. 2/1993 er mælt svo fyrir að skýra skuli lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja. Slík lögskýring tekur eðli máls samkvæmt til þess að orðum í íslenskum lögum verði, svo sem framast er unnt, gefin merking sem rúmast innan þeirra og næst kemst því að svara til sameiginlegra reglna sem gilda eiga á Evrópska efnahagssvæðinu. Lögskýring samkvæmt 3. gr. laga nr. 2/1993 getur á hinn bóginn ekki leitt til þess að orðum íslenskra laga verði gefin önnur merking en leidd verður af hljóðan þeirra, sbr. meðal annars dóm Hæstaréttar 9. desember 2010 í máli nr. 79/2010. Þau fyrirmæli 1. mgr. 12. gr. laga nr. 121/1994 að í áætlun um greiðslur samkvæmt lánssamningi, þar sem fjárhæð skuldar væri verðtryggð, skyldi miðað við óbreytt verðlag voru eins og kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 160/2015 ótvíræð. Er því ekki svigrúm til að miða við aðra forsendu á grundvelli skýringar á þessu ákvæði samkvæmt 3. gr. laga nr. 2/1993.“

Til fróðleiks má bæta við að ef þessi tilskipun hefði haft lagagildi hér á landi hefði óhjákvæmilega þurft að dæma öll verðtryggð neytendalán hrunbankanna ólögleg. Það var ekki gert því íslensk lög voru á annan veg en tilskipunin mælti fyrir um og Hæstiréttur dæmdi eftir íslensku lögunum. Ég veit fyrir víst að íslenskir neytendur sem sátu uppi með þessi stökkbreyttu lán voru ósáttir við þá niðurstöðu.

Eitt af því fyrsta sem er kennt í Evrópurétti við lagadeildir íslenskra háskóla er að munurinn á ESB og EES er einmitt sá að í ESB-ríkjum hafa reglugerðir sambandsins sjálfkrafa lagagildi en aftur á móti er það ekki þannig í EES-ríkjum eins og Íslandi. Þess vegna þarf að innleiða þær reglur með íslenskum lögum til að þær öðlist gildi hér. Þetta er meginmunurinn á þessum tveimur réttarkerfum.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.7.2023 kl. 22:36

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ósjálfstæði flokkurinn mun aldrei verða aftur íhaldsflokkur. Eina leiðin til að hér verði aftur ábyrg og frjálsræðisleg íhaldsstefna, sem endurbyggir siðmenningu okkar og vitsmunalíf, er að endurstofna og rifja upp Íhaldflokk Jóns Þorlákssonar og þau gildi sem þar voru varðveitt.

Þessu þora krossgötu hræsnararnir ekki, því vinstri-öfgar hafa eytt fimmtíu árum að að útata heiti flokksins, og hræsnarar búa ekki yfir dyggðum, göfgi eða hugrekki.

Ísland er búið að vera, og það verður ekki búandi hér næstu 80 árin.

Flótti héðan er eina leiðin til að koma Íslenzkunni í skjól.

Guðjón E. Hreinberg, 13.7.2023 kl. 22:51

5 Smámynd: Birgir Loftsson

Ég gapi af undrun Guðmundur við svar þitt og nenni varla að svara þér, því við höfum átt í rökræðum áður um bókun 35. Þú ert hér að ræða um bókun 35, þegar greinin fjallar um pólitík flokksforystu Sjálfstæðisflokksins. Hvað kemur bókun 35 við þessa greinar umfjöllun? Ég sagði bara að varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins væri óánægður með þessa bókun. Punktur!!!

Bókun 35 virðist vera þér hjartans mál að verja en ég er ekki að ræða um hana hér sérstaklega. En ég mun örugglega taka málið fyrir aftur þegar það kemst aftur á dagskrá í íslenskri stjórnmálaumræðu. Velkomið að gagnrýna málflutning minn þá.

En takk samt fyrir innlitið Guðmundur og þú Guðjón sem heimsækir blogg mitt reglulega.

Birgir Loftsson, 14.7.2023 kl. 00:02

6 Smámynd: Birgir Loftsson

Enginn maður tekur að sér iðn, sem hann hefur ekki lært, jafnvel sú vægasta; þó þykja allir sig nægilega hæfa til allra erfiðustu starfa, ríkisstjórnar. - Sókrates.

Birgir Loftsson, 14.7.2023 kl. 10:47

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Birgir.

Þetta innlegg mitt snerist alls ekki um neina afstöðu til bókunar 35. Það eina sem ég var að benda á er að reglugerðir og tilskipanir ESB hafa ekki lagagildi á Íslandi.

Þú þarft ekkert að svara þeirri staðreynd.

Að benda á staðreyndir er ekki "vörn" eða málflutningur með eða á móti tilteknu málefni. Ef ég væri til dæmis að benda á að manndráp af gáleysi sé ekki það sama og morð af köldu blóði, væri ég ekki með því að verja morðingja.

Svo getum við fjallað um það hvort við séum með eða á móti því að Alþingi ákveði að sum lög sem það setur gangi framar öðrum lögum sem það setur. Ég myndi fagna slíkri umræðu og er til í rökræðu um það álitaefni hvenær sem er.

Guðmundur Ásgeirsson, 14.7.2023 kl. 12:32

8 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Guðmundur, takk fyrir innlegg þín. Þau eru vönduð, því neita ég ekki. En kannski ættir þú að taka slaginn við varaþingmanninn sem var að skrifa enn eina greinina gegn EES í dag?  Ég ætla að halda mig hér við pólitík flokksforystu Sjálfstæðisflokksins, í annarri athugasemd.

Birgir Loftsson, 14.7.2023 kl. 12:40

9 Smámynd: Birgir Loftsson

Já, miðað við lestur þessarar greinar, hef ég greinilega komið við kviku margra.  Og ég er ekki einn um að tala um hættu á klofningu Sjálfstæðisflokksins.  En ég held að flokkurinn í sjálfu sér sé ekki klofinn, heldur hafi æðsta forysta flokksins komið sér fyrir í fílabeinsturni og er ekki jarðtengd. Það þarf að skipta henni út í heilu lagi, því að formaðurinn er bara búríkrat, ekki leiðtogi og hann hefur myndað í kringum sig hirð sem er jafnvel ekki sjálfstæðissinnuð.  Margir hirðmenn formannsins eru að mínu mati sósíaldemókratar, ekki hægri menn og þar á ég við um kvenfólkið í kringum formanninn.

Hér kemur niðurstaðan úr óformlegri könnun Útvarps sögu um klofning Sjálfstæðisflokksins:

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja Sjálfstæðisflokkinn klofinn. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni í mörgun.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú að Sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já 88,6%

Nei 8,9%

Hlutlausir 2,5%

Birgir Loftsson, 14.7.2023 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband