Málaferli Donalds Trumps og fleira mál - íslenskir fjölmiðlar fjarverandi

Kalda stríðsmenn hérlendis er mein illa við Donald Trump.  Hann er of mikil friðardúfa (kjaftfor reyndar!) en hann segist vilja binda endi á Úkraníu stríðið einn, tveir og þrír og hann gerði þá megin synd að krefja NATÓ - ríki um að þau standi á skuldbindingum sínum um 2% framlag í varnarmál af vergri landsframleiðslu.

En Trump stóð í nýverið og tapaði einkamál í New York en ekki er allt sem sýnist þar. Því máli var þegar áfrýjað.

Sjá slóð hér.

Shock: Epstein Pal Paid for Civil case That Trump Just LOST in NY

Það sem menn gleyma eða minnast ekki á varðandi þessi málaferli er að þetta er einkamál og hann var dæmur "liable" fyrir kynferðisárás og meinyrði en er ekki sekur samkvæmt lögum. Málið fer ekki inn á sakaskrá Trumps.

Sönnunarbyrði er minni í einkamálarekstri en mál fór fyrir dóm í New York sem er þekkt bæli demókrata og kviðdómara eru líklegri en ekki að vera demókratar en repúblikanar.

Það sem Trump átti að hafa gert var að hitta konu í anddyri byggingar nálægt Plaza (sem hann á) fyrir tuttugu árum, þau samstundis fallið fyrir hver öðrum og farið í næsta búningsklefa, þar sem Trump átti að hafa þreifað  kynferðislega á giftri konu.  Er þetta trúleg saga? Dæmi hver fyrir sig. Konan man ekki dagsetninguna þegar mein brot átti að hafa átt sér stað né mörg önnur smáatriði.

Á sama tíma. Íslenskir fjölmiðlar sleppa mesta skúppi 21. aldar en fjölmiðar vestra eru uppfullir af fréttum af afhjúpun Biden fjölskyldunnar en það er að búið er að búa til mál gegn glæpafjölskyldunni Biden og birtist sú frétt í bandarískum fjölmiðlum á sama tíma og mál Trumps rataði í fjölmiðla.

Munurinn á málunum er sá, að annar er fyrrverandi forseti en sá seinni er sitjandi forseti sem situr undir ásökunum um mesta spillingamál forsetaembættis Bandaríkjanna sögunnar; að Bandaríkjaforseti gangi mála erlendra og fjandsamlegra ríkja, með öðrum orðum að hann sé múturþægur og selur þjóð sína fyrir einka hagsmuni sína og fjölskyldu sinnar.

En ekkert um þetta í íslenskum fjölmiðlum nema kannski Útvarpi sögu. Annað hvort eru þeir sinnulausir og arfaslakir að leita upplýsinga eða þeir séu sáttir við hlutdrægan fréttaflutning vinstri sinnaðra fjölmiðla Bandaríkjanna sem þeir copy/paste.

Að lokum. Vísir kallaði Tucker Carlson nýyrði/orðskrípi sem er "fjarhægrisinnaður"! Er það sama hugtakið og hægri öfgamaður? Var það síðarnefnda ekki nóg sterkt til að lýsa Carlson?  Er Vísir þá "fjarvinstrisinnaður" fjölmiðill?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég er farinn að hallast að því að stórbloggarinn Páll Vilhjálmsson hafi rétt fyrir sér. Rúv er orðið óhæft til að flytja fréttir, því þær eru hreinn vinstriáróður, og sést bezt á því hvernig þeir sleppa því hvernig Joe Biden situr undir ámæli fyrir mesta spillingarhneyksli í sögu Bandaríkjanna, eins og þú lýsir því.

Hefur verið til verri forseti en Joe Biden og er hann ekki ábyrgur fyrir Úkraínustríðinu að einhverju leyti? 

Var ekki Hunter Biden tengdur því að koma inn fjármagni, fólki og áhrifum í Úkraínu 2014? 

Er ekki leppstjórnin í Úkraínu studd af demókrötum í Bandaríkjunum?

Hvað myndu hlutlausir stjórnmálaskýrendur segja ef RÚV hefði stutt annaðhvort kommúnistana í Sovétríkjunum alla þeirra tíð eða þá nazistana í Þýzkalandi á sínum tíma? 

Stuðningur RÚV við demókrata í Bandaríkjunum er of augljós.

Ingólfur Sigurðsson, 12.5.2023 kl. 14:40

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Því miður hefur þú Ingólfur Sigurðsson 100 prósent rétt fyrir þér. Svona er veruleikiinn.  Lífið er einfalt: hægri eða vinstri....

Birgir Loftsson, 12.5.2023 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband