Vísir og Tucker Carlson

Þeir sem fylgjast með bandarísku samfélagi, hafa ekki farið varhluta af fréttum af uppsögn Fox News á vinsælasta þáttastjórnanda sínum, Tucker Carlson. 

Carlson hefur nú stigið fram og tjáð sig en allir fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa verið uppteknir af þessari frétt síðastliðna daga en öllum var sama þegar Dom Lemon sem var aðal stjarna CNN var rekinn á sama tíma. Munurinn á þeim tveimur, er að sá fyrrnefndi er vinsælasti þáttastjórnandi Bandaríkjanna en sá síðarnefndi þáttastjórnandi á hinu fallandi CNN.

Íslenskir fjölmiðlar hafa verið þögglir um þetta brotthvarf en nú bregður svo við að Vísir fjallar um málið. Af afkvæmunum þekkið þið þá, og það á sannarlega við um Vísir, þegar maður sér heimildina á bakvið frétt fjölmiðilsins. Vísir vísar í New York Times sem heimild. Sá fjölmiðill hefur haft horn í síðu alla þá sem kallast íhaldsmenn og Tucker Carlson telst vera einn af þeim.  

Hvernig sér maður að litið er neikvæðum augum á Carlson? Myndaval.  Carlson er sýndur með Donald Trump og Marjorie Taylor Green sem eru andlit MAGA hreyfingunnar. Þarna er verið að mála hann út í horn öfga hægri.

Ef maður horfir svo á myndskeiðið með Carlson, sem er ósköp saklaust (sjá hér að neðan), skammar hann báða flokka en er annars jákvæður. En Vísir/New York Times verða hins vegar að finna eitthvað neikvætt um hann og því endar greinin eftirfarandi:

"Fregnir hafa borist af því að smáskilaboð Carlson, sem hafa ekki verið gerð opinber, hafi átt þátt í því að stjórnendur hjá Fox News ákváðu að láta hann fjúka þrátt fyrir vinsældir hans. Eru þau sögð hafa verið afar gróf og meiðandi, jafnvel rasísk.

Carlson hefur ítrekað gerst sekur um meiðandi ummæli um ýmsa hópa sem eiga undir högg að sækja; konur, trans fólk og innflytjendur, svo dæmi séu nefnd."

Þetta er dæmigerð aðferð vinstri wokista, að saka andstæðinginn um alls kyns fordóma.  Hins vegar hefur Carlson einungis reynst vera sekur um að vera litla barnið sem bendir á keisarann og segir að hann sé nakinn þegar allir aðrir dást að því hversu flott klæddur hann er. Carlson hefur nefnilega verið óhræddur að fara í alla og kalla þá til ábyrgðar, og Repúblikanar hafa heldur ekki sloppið. 

Þetta er svo sjaldgæft í nútíma fjölmiðlun, að þáttastjórandi kalli alla til ábyrgðar, að þetta þykir undravert.  Fólk þyrstir i sannleikann sem það fær hvergi þveginn, og þar sem áhorfendur vita aldrei hvernig efnistök Carlson verða hverju sinni, þyrpist það að skjánum (jafnvel þótt spennandi íþróttaviðburður er í gangi) og fylgist með, enda vinsælasti sjónvarpsmaður Bandaríkjanna.  

Fox News blæðir fyrir vikið og Fox Nation mun líklega blæða mest enda Carlson aðalnúmerið þar og oftast eina ástæðan fyrir að fólk borgi fyrir áhorfið.

Tucker Carlson er hins vegar rétt að byrja og nú mun hann líklega stofna eigin fjölmiðlarás, eins og margir aðir á undan, svo sem Bill O´Reilly, og verða enn vinsælli en áður. 

Kapalsjónvarpsstöðvar eru nefnilega deyjandi fyrirbrigði og fólk horfir á uppáhalds sjónvarpsfólk sitt í gegnum Podcast sem er svo dreift í gegnum samfélagsmiðla eins og Facebook, Rumble, Twitter o.s.frv. Brotthvarf Carlson frá Fox News flýtir aðeins fyrir fall fjölmiðilsins.

 

Carl­son stígur fram og tjáir sig... en samt ekki

"See you soon..." Tucker Carlson releases first video message after leaving Fox News


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hvað er svo slæmt við Donald Trump og Marjorie Taylor Green?

"...jafnvel rasísk."

Það er rasískt að mæta í vinnuna, hlusta á tónlist og að vera ekki barnanauðgari.

Allt bara jákvætt um manninn að segja.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.4.2023 kl. 17:14

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Ekkert rasískt við þetta fólk (dóttir Trump er t.d. gift gyðingi), bara hjá Vísir...þau kallast á manna máli íhaldsfólk sem aðhyllast íhaldsstefnu og er frábær stefna. Stefna sem er ekki til á Íslandi í dag. Sjálfstæðismenn þurfa að fletta upp í orðabók til að skilja hugtakið í dag.

Birgir Loftsson, 27.4.2023 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband