Umræðan um Moggabloggið

Nú hefur samræðutorgið blog.is (Moggabloggið) verið gagnrýnt af þekktum fjölmiðlamanni á Facebook sem er annað samræðutorg sem hefur einnig reynst vera umdeilt og það sem verra er, beitt ritskoðun á "óæskilegar" skoðanir.Svo á einnig við um Twitter sem ekki bara gróf andstæðar skoðanir í ruslakistu netsins, heldur hnaut aðstoðar FBI við njósnir og útilokanir. Sjá grein mína: Barist um málfrelsið á Twitter

Ég hef ekki orðið var við Morgunblaðið hafi beitt ritskoðun á skrif einstaklinga á blogginu og ber það blaðinu/fjölmiðlinum góðan vitnisburð enda hefur það lifað af 100 ár á síbreytilegum fjölmiðlamarkaðinum.

Nú eru þessir miðlar opinberir vettvangar og fólk frjálst að tjá sig eins og því sýnist svo fremur það brýtur ekki á rétt annarra eða hvetur til ofbeldis. Það er merkilegt en málfrelsið er betur varið í Bandaríkjunum en á Íslandi sem er efni í aðra grein.

Það sem ég sagði í grein minni um Twitter (áður en Elon Mask tók yfir) er eftirfarandi:

"Alls staðar er tekist á um málfrelsið, í háskólum, í skólum almennt, í viðskiptum, í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og í samskiptum fólks almennt, í daglegu tali manna á milli. Meira segja berst þessi barátta hér inn á bloggið. Við sem skrifum hér, vitum hvað mál ég er að tala um.

Það hallar á málfrelsið sem er grunnstoð lýðræðis.  Það er hin frjálsa hugsun og skoðannaskipti sem leiða til efnahagslegra framfara. Er það tilviljun að vestræn ríki eru enn brautryðjendur á svið tækni og vísinda en einræðisríkin skapa lítið sem ekkert, og stela sem mest og copy/paste það sem þau stela? Er það ekki staðreynd að kommúnisminn og efnahagsstefna hans varð gjaldþrota á endanum, því þrátt fyrir valdboðið að ofan, skorti hugsunafrelsi einstaklingsins sem einmitt skapar verðmæti."

Umræddum fjölmiðlamanni er frjálst að hafa eigin skoðanir og viðra þær, alltaf gaman að heyra aðrar hliðar á málum, en það er óþarfi og ósanngjarnt að draga heilan umræðuvettvang niður í svaðið, bara vegna þess að honum mislíkaði skrif einhvers. Þá er tvennt í stöðunni fyrir hann að gera: annað hvort að hrekja skoðanir hans (sem besta leiðin að sýna fram á villu hans vegar) eða hins vegar að draga hann fyrir dómstóla.  Þetta eru leikreglunar. Ég myndi vilja sjá hann hrekja skoðanir bloggarans lið fyrir lið í stað kvartana með enga efnislega rökfærslu að baki.

Rökfræði var kennd í aldir á Íslandi sem hluti af hinar svokölluðu sjö frjálsu listir eins og erlendis; það er málfræði, rökfræði, mælskulist, stærðfræði, flatarmálsfræði, stjörnufræði og tónlist. Á blogginu á fara saman rökfræði og mælskulist. Kvartanir án röksemdarfærslu eru bara hróp og köll, sama í hvaða miðli þær birtast.

Kannski megum við þakka fyrir að hafa samræðutorg eins og Moggabloggið, ekki virðast fjölmiðlarnir sjálfir vera hlutlausir og segja rétt frá (stundum þegja þeir um fréttnæma atburði).

Ég get fullyrt að við fáum brenglaðar myndir af umheiminum hér á Íslandi, hreinlega vegna skort á fjölbreytni fjölmiðla á landinu. Þökk sé netinu, get ég horf á indverska, arabíska, ástralska, breska, bandaríska (og færeyska!) fjölmiðla og reynt þannig að fá rétta mynd af hvað er að gerast í umheiminum. En ég get líka farið á podcast og aðra samfélagsmiðla og fengið viðbótarupplýsingar (sem oft á tíðum eru betri en hjá opinberum fjölmiðlum). Dæmi: Joe Rogan video podcast on Spotify. Rætt er við alla og ítarlega, allt að 3 klst viðtöl.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Birgir.

Ég veit ekki hvað þú hefur verið lengi hér á blogginu, en jafnvel hér eru dæmi um að síðum hafi verið lokað vegna þess að einhverjum þótti eitthvað ekki við hæfi.

Sjálfur hef ég aldrei eytt neinum athugasemdum sem hafa komið inn á mína síðu, jafnvel þó sumar þeirra hafi verið ansi rætnar. Reyndar var ein alveg sérstaklega vond en hún hvarf þegar höfundurinn eyddi notandanafni sínu sjálfur.

Það vonda við ritskoðun er nefnilega að hún kemur í veg fyrir að orð manna standi sýnileg þannig að þeir þurfi sjálfir að bera ábyrgð á þeim og svara fyrir þau. Tjáningarfrelsinu fylgir einmitt sú ábyrgð.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.4.2023 kl. 22:41

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Guðmundur, takk fyrir innlitið. Ég hef ekki verið lengi hér, 2-3 ár held ég og hafði engan áhuga á blogginu fyrr en Facebook lokaði á notes/glósur en sá valmöguleiki bauð upp á skrifa langar greinar.

Ég vissi ekki að Moggabloggið loki á bloggara. En hvar liggja mörkin? Ég horfði aftur á bíómyndina "Hotel Rwanda" um páskana og þar var ein útvarpsstöð notuð til að ræsa út morðingjaherinn í þjóðarmorð. Grunnmörkin hljóta að vera að leyfa ekki hvatningu til ofbeldis eða haturs. Svo þarf bloggarinna að vera tilbúinn að standa fyrir máli sínu fyrir dómstólum. 

Annars dæma ummæli manna sig sjálf. Setning eins og "þú ert nú meiri hálf..." segir ekkert, er ekki staðreynd, heldur lýsir tilfinningaástandi viðkomandi (oftast honum sjálfum til minnkunnar). Hróp og köll á torgi (til dæmis á knattspyrnuvelli) dæma sig sjálf. Á að eltast við hvern einasta tittlingaskít og bull sem veður upp úr fólki?

Orðræðan er oftast sjálfsprottin og kannski best að viðbrögðin séu líka sjálfsprottin, án afskipta ríkisvaldsins?

En stundum myndi maður vilja taka orð sín til baka. Hvernig tekur maður út athugasemd (eða breytt) sem maður hefur sett inn á blogg annarra?  Maður sér nefnilega stundum eftir á að maður hefur rangt fyrir sér eða er hreinlega ósáttur við málfræðina eða stafsetningavillur í athugasemdinni.

Birgir Loftsson, 11.4.2023 kl. 12:20

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sæll Birgir.

Ég held að maður geti ekki eytt eða breytt athugasemdum sem hafa verið gerðar á öðrum bloggum, en í gegnum stjórnborðið er hægt að eyða/fela athugasemdir á eigin bloggi, bæði eigin athugasemdir og annarra.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.4.2023 kl. 14:11

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Kærar þakkir Guðmundur, fann þetta undir blogg, athugasemdir. 

Birgir Loftsson, 11.4.2023 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband