Sjóvarnir Íslands

GIUK-gapet-kilde-GrønlandskortetÍslendingar hafa stigið misgáfuleg skref í tryggingu eigin varna. Stundum hafa þeir verið neyddir til ákvörðunartöku, samanber í Napóleon stríðunum og í fyrri og seinni heimsstyrjöld en stundum hafa þeir tekið af skarið. Það gerðu þeir þegar landið gékk í Atlantshafsbandalagið 1949 og gerði tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin 1951 sem hefur verið endurnýjaður reglulega.

Íslendingar gengu svo langt að leyfa erlenda hersetu (í merkingunni  boðs Íslendinga) frá 1951-2006 þegar Bandaríkjaher ákvaða að pakka saman einhliða og fara úr landi. Margir misstu spón úr aski og íslenskir ráðamenn lögðust á hné og grátbáðu Bandaríkjamenn, sem vinstri elítan hafði skammað í áratugi (og gerir enn) um að fara ekki úr landi.

Eftir á að hyggja, er það gott mál að Bandaríkjaher fór og í staðinn fáum við flugsveitir samherja í NATÓ reglulega til landsins sem hjálpast að við verja loftrými Íslands. En það vill gleymast að Íslendingar sjá sjálfir um loftrýmisgæslu og við höfum fjórar ratsjárstöðvar af bestu gerð sem halda uppi daglegu eftirliti. Kostað af NATÓ og okkur að hluta til. 

Á vef Landhelgisgæslunnar segir:

„Íslenska loftvarnakerfið er hluti af samþættu loftvarnakerfi Atlantshafsbandalagsins (NATO). NATO hefur kostað uppbyggingu loftvarnakerfisins. Flest mannvirkin eru á eignaskrá Atlantshafsbandalagsins.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar annast rekstur loftvarnakerfisins og mannvirkja Atlantshafsbandalagsins, þ.m.t. ratsjár- og fjarskiptastöðvar hérlendis.   Sá rekstur er eitt veigamesta framlag Íslands til sameiginlegra varna ríkja NATO.“

En loftrýmisgæsla er eins og orðið gefur til kynna loftrýmisgæsla.  Ísland er eyríki, umkring Atlantshafi og er staðsetning landsins hernaðarlega mikilvægt og hefur altaf verið það, sama hvað menn segja. Landið spilaði stóra rullu í orrustunni um Atlantshafið og í dag er það hliðið í GIUK varnarkeðjunni en það er hafsvæði milli Íslands og Grænland og Íslands og Skotlands. Sá sem stjórnar þessari varnarlínu stjórnar Norður-Atlantshafinu og í raun einnig Mið-Atlantshafinu. GIUK á að vera varnarkerfi gegn kafbátaárás , væntanlega þá Rússlands, en í tryggir í raun aðflutningsleiðir aðfanga milli Norður-Ameríku og Evrópu, rétt eins og í seinni heimsstyrjöld. Slíkt er ekki hægt að meta til fjár.

Eins og ég hef margoft komið inn á, er Landhelgisgæsla Íslands í fjársvelti og lág punkturinn var þegar við þurftum að senda byssubát okkar og flugvél til Miðjarðarhafssins við landmæraeftirlit Evrópusambandsins vegna þess að íslenska ríkið skar niður fjárframlög til stofnunnar. En eftir að Varnarmálastofnun Íslands var lögð niður af vinstri mönnum, hefur Landhelgisgæslan annast varnartengd verkefni, síðan 2011 ef ég man rétt.

En hver eru helstu verkefnin? Kíkjum á vef Landhelgisgæslunnar (LHG):

Helstu verkefni varnamálasviðsins eru: 

  1. Rekstur íslenska loftvarnakerfisins, þ.m.t. fjarskiptastöðva og ratsjárstöðva Atlantshafsbandalagsins hérlendis.
  2. Þátttaka í samræmdu loftrýmiseftirliti og loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins samkvæmt varnarmálalögum og á grundvelli þjóðréttarsamninga sem Ísland er aðili að.
  3. Rekstur, umsjón og hagnýting öryggissvæða og mannvirkja þar í eigu íslenska ríkisins og Atlantshafsbandalagsins í samræmi við notendaríkis- og gistiríkishlutverk Íslands.
  4. Undirbúningur og umsjón varnaræfinga sem haldnar eru hérlendis. 
  5. Úrvinnsla upplýsinga úr upplýsingakerfum Atlantshafsbandalagsins og undirstofnana þess. 
  6. Þátttaka í starfi nefnda og undirstofnana Atlantshafsbandalagsins er varðar þau verkefni sem Landhelgisgæslu Íslands eru falin samkvæmt samningi þessum.
  7. Verkefni sem varða framkvæmd varnarsamningsins. 
  8. Samstarf við önnur stjórnvöld, stofnanir eða opinber hlutafélög sem hafa með höndum verkefni sem tengjast varnarmálum. 
  9. Samstarf við alþjóðastofnanir og framkvæmd alþjóðasamþykkta á sviði varnarmála er varðar þau verkefni sem Landhelgisgæslu Íslands eru falin. 

Gistiríkjastuðningur

Landhelgisgæslan annast daglega framkvæmd gistiríkjastuðnings fyrir liðsafla Atlantshafsbandalagsins og Atlantshafsbandalagsþjóðanna hér á landi. Í verkefninu felst m.a. að taka á móti erlendum liðsafla sem til Íslands kemur, til æfinga, loftrýmisgæslu og annarra tengdra verkefna, tryggja hópunum gistiaðstöðu, aðgang að fæði, hreinlæti, afþreyingu og ferðum innan öryggissvæðisins.   

Öryggissvæðin

Öryggissvæðin eru lokuð, afgirt og þau vöktuð. Öryggissvæðin eru á þessum stöðum: 

  1. Ratsjár- og fjarskiptastöðvarnar á Miðnesheiði, Stokksnesi, Gunnólfsvíkurfjalli og Bolafjalli.
  2. Olíubirgðastöðin í Helguvík
  3. Öryggissvæðið við Keflavíkurflugvöll.

Tilvísun endar. Heimild: https://www.lhg.is/varnarmal/loftrymisleit-og-islenska-loftvarnarkerfid

Þannig sé er LHG tæknilega hernaðarstofnun þótt stjórnmálamennirnir þverneita slíku og tala fjálglega um friðsama Ísland (sem er þó meðlimur í hernaðarbandalagi!).

Ísland myndi aldrei hafa neina burði, jafnvel þótt það kæmi sér upp standard her, til að taka þátt í hernaðaraðgerðum NATÓ á meginlandi Evrópu en landið getur þó sjálft passað upp á hliðið GIUK og sjálft sig um leið sem er veikasti hlekkurinn í vörnum bandalagsins í vestri.

Við ætlum því að bjóðast til að sjá um sjóvarnir eða réttara sagt eftirlit á hafsvæðinu í kringum Ísland. LHG, eftir að hlutverk þess hefur verið endurskilgreint í lögum enda er stofnunin í dag fyrst og fremst löggæslustofnun, gæti séð um þetta eftirlit og NATÓ borgar kostnaðinn. Helsti kosturinn yrði að tækjabúnaður LHG myndi stórbatna og hún fengi tól og tæki til þessara verka. Hér má nefna ratsjárflugvél og tundurspillir sem LHG fengi til umráða.

Ef menn lesa örlítið í sögubækur, þá sjá menn út að það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær ófriður ber næst að ströndum landsins. Allt frá tímum Napóleon styrjaldanna, hefur sjóhernaður í Atlantshafi haft bein áhrif á landið. Í næstu stórstyrjöld verður Ísland þátttakandi, viljugt eða óviljugt.

Bolafjall5

 

Mynd. Af vef LHG. Ratsjárstöðin á Bolafjalli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband