Dvaldi Kólumbus á Íslandi veturinn 1477?

KólumbusKristófer Kólumbus var ákveðinn í að finna vesturleiðina til Asíu. Til að undirbúa hina miklu ferð, fór Kólumbus í margar smærri æfingaferðir meðfram vesturströnd Evrópu og Afríku. Sumarið 1476 sigldi hann í samfloti með þremur skipum frá Feneyjum til Englands. Var þá siglt um Gíbraltarsund. Þar réðust franskir sjóræningjar á flotann og tvö skipanna fórust. Hann staldraði við í Portúgal.

Í desember sama ár hélt hann för sinni áfram og komst til Englands. Vitað er að hann fór til Bristol og Galway, en sú borg er á vesturströnd Írlands. Englendingar höfðu verslað við Íslendinga í langan tíma og stundað fiskveiðar við Íslandsstrendur eða allt frá 1412 og mun Kólumbus sennilega hafa heyrt um landið frá þeim, líklega í Bristol en þangað komu fiskuduggur hingað til lands. 

Að eigin sögn heimsótti hann Ísland árið 1477 og dvaldi heilan vetur en hingað hefur hann komið um sumarið. Að sögn dvaldi hann á þeim bæ sem heitir Ingjaldshóll (Ingjaldshvóll) á Vesturlandin nánar tiltekið á Snæfellsnesi.

 

 Ingjaldshóll

 

   

Wikipedia segir eftirfarandi: 

,,Ingjaldshóll er um 1 km frá Hellissandi og þar hefur staðið kirkja frá árinu 1317 og var hún fram á 19du öld þriðja stærsta kirkja landsins, á eftir dómkirkjunum í Skálholti og á Hólum, en áður var þar bænhús. Bæði var að sóknin var fjölmenn og eins mun hafa verið þar margmenni víða að af landinu á vertíðum og mun kirkjan hafa rúmað um 400 manns. sjá má merki um stærð hennar út frá hornsteinum sem þar sjást enn í kirkjugarðinum."

Kólumbus fræddist tvímælalaust um landnám Íslands, um víkingana sem sigldu til nýja heimsins og um ferðir Leifs Eiríkssonar, Þorfinns Karlsefni, Guðríði Þorbjarnardóttur, litla barnsins Snorra og hinna sem höfðu verið í Norður-Ameríku fimm aldir fyrir. Eflaust var Grænland enn í minni Íslendinga enda rofnuðu tengslin við það ekki seinna en 1412. Það sem er eftir er af sögu Kólumbusar, er mannkynssaga en eins og kunnugt er, ,,fann“ hann Ameríku 1492 í leiðangri þriggja skipa (Santa Maria, Pinta og Nina).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Ég hef skrifað um málið í Lesbók Morgunblaðsins. Ef þú finnur ekki greinarnar, get ég sent þér hlekk. Æi hér eru þeir https://timarit.is/page/3314626#page/n3/mode/2up og hér https://timarit.is/page/3314626#page/n3/mode/2up

FORNLEIFUR, 20.4.2021 kl. 18:01

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir innlitði  dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson,  Ég vissi ekki um grein þína og mun ég lesa hana með athygli.  Takk fyrir að benda mér á hana. Ég skrifaði mér til ánægju  og til að ná utanum viðfangsefnið, um þrælahaldarann Kólumbus grein, held að hún sé herna á blogginu einhvers staðar.  Björn heitinn Þorsteinsson kom mér fyrst á sporið með bókum sínum.  En þessi grein eins og allar mínar greinar á blogginu, eru mér til skemmtunar (skrifa ofaní skúffuna eins og maður segir) en einnig til að raða saman upplýsingum um viðfangsefnið hverju sinni.  Þess má geta að örlög norrænna manna, á Grænlandi leiddu til þess að ég fór í sagnfræðinám í upphafi (og forleifafræði að hluta til). Ég á eftir að setja hér inn grein eftir mig um grænlenska samfélagið á miðöldum. Athyglisvert samfélag.

Birgir Loftsson, 23.4.2021 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband