Ætlar Ísrael ekki að hefna sín?

Samkvæmt nýjustu fréttum ætla Ísraelar ekki að hefna sín eftir eldflauga- og drónaárás Írans á landið.  Það verður að teljast óvenjulegt ef satt er.  Spurningin er hvort þeir séu í refskák og ætli óvænt að gera árás á óvæntum tíma?

Þetta er nefnilega kjörið tækifæri, sem Ísraelar hafa beðið eftir í meir en áratug, að gera árásir á kjarnorkustaði Írana. Það er mjög erfitt fyrir Ísarelar að ráðast á leynilega kjarnorkustaði Írana en auðvelt að ráðast á innviðina, á olíuframleiðslu þeirra og lama efnahag þeirra.  Líklegt er að netárásir verði gerðar á skotmörk í Íran.

Taktíkst er betra að gera árás á Íran núna, en að bíða eftir að kjarnorkuvopnabúr Írana verði stórt. Deilt erum hvort þeir séu þegar komnir með kjarnorkuvopn eða ekki. En svo er það að Ísraelar eru að bíða eftir efnahagspakka frá Bandaríkjunum og þeir mega ekki við að styggja stjórn Bidens sem er mjög tvístígandi í öllum sínum aðgerðum. Svo geta þeir beðið eftir niðurstöðum forsetakosningana í Bandaríkjunum í nóvember og nýtt sér tímabilið frá 5. nóvember til 20. janúar þegar vald forsetans er í lamasessi. Ágreiningur Ísarela og Írana er nefnilega ekkert að fara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mig grunar að kostnaðurinn sé að sliga þá.

Og þá er tekið með að USA fjármagnar þetta allt.  USA er nfnilega þegar á hvínandi kúpunni - sem sést best á að almenningur þar er byrjaður að sligast undan verðbólgu.

Það kemur þannig út þegar lönd verða gjaldþrota.

Það getur verið að það sé að síast inn að stuðningur við demókrata hræiðfellur einmitt þess vegna.  Þá þarf að draga úr.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.4.2024 kl. 16:40

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Það var eins og mig grunaði, Ísraelar sögðust ekki ætla að hefna fyrr en eftir 30. apríl en gerðu nú í nótt árás(ir) á Íran. Ísraelar og fleiri eru komnir með geisla vopn (fer í notkun seint á þessu ári eða næsta) og það mun ekki kosta meira en $10 að skjóta niður flugskeyti/dróna. Kosnaðurinn af núverandi stríð fellur á Kanann.

Birgir Loftsson, 19.4.2024 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband