Trump neitað um réttláta málsmeðferð

Í einu af fjórum furðumálum fyrir bandarískum dómsstólum er Trump sakaður um að ofmeta verðmæti eigna sinna er hann sótti bankalán.  Bankinn, einn af virtustu bönkum heims, gerði auðvitað eigin könnun á virði eigna Trumps. Niðurstaðan var að lánið var veitt, það greitt upp í top og allir málsaðilar ánægðnir nema saksóknarar á vegum demókrata. Þarna sáu þeir möguleika á að koma höggi á Trump.

Búið var til eitt furðulegasta dómsmál í sögu New York, og dómari sem dæmdi í málinu, talinn vera hliðhollur demókrötum dæmdi Trump sekan (ekkert fórnarlamb í málinu, enginn kærði).  Sektin, á sér ekki fordæmi í sögu Bandaríkjanna, já bókstaflega hæsta sekt sem dæmt hefur verið í bandarískri dómssögu. Til marks um hversu pólitískt málið er, að sá "seki", Trump, fær ekki nægilegan tíma til að safna upp í sektargreiðsluna, og hann á samt að reiða fram tryggingar upp á $450 milljónir, þótt málið hafi verið skotið áfram á æðra dómsstig.

Eins og sagði, málið er hið furðulegasta. Hver hefur ekki sett verðmiða á húseign sína er hann sækir um lán og reynt að gera eign sína sem verðmætasta í augum bankans? Mat eigna er alltaf háð verðmati viðeigandi aðila.

Merkilegt við dóminn er að það er enginn kviðdómur, einn dómari og einn aðalsaksóknari. Réttarhöldin eru dómsuppkvaðning, sem þýðir að endanleg ákvörðun um hvort meðákærðu séu ábyrgir og hvers kyns skaðabætur eða refsingar hvílir á Engoron dómara einum.

Erfitt er fyrir jafnvel milljarðamæring að reiða fram $450 milljónir dollara í reiðuféi en ljóst er að hann á eignir fyrir dóm sektinni og því eru skilyrðin sem dómarinn setti ansi ströng.

Fyrr á þessu ári áætlaði Forbes Magazine að eignir hans í New York einar og sér væru 720 milljóna dala virði af áætluðum 2,5 milljörðum dala í heildareign.  Trump segist ekki eiga þessa upphæð handbæra. Hann mun hitta Elon Musk í næstu viku. Mun sá síðarnefndi bjarga honum úr snörunni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Samkvæmt Forbes tímaritinu á Trump 2.6 milljarða dollara, þar af eru 426 milljónir reiðufé. 

Wilhelm Emilsson, 20.3.2024 kl. 09:13

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir þetta Wilhelm.  Tölurnar eru á reiki, t.d. er sektin meiri en $450 eða $454 milljónir, en það er aukaatriði og svo hef ég líka heyrt töluna 2,6 milljarðar eins og þú. En málið hefur haft skaðleg áhrif á New York, því nú treysta kaupsýslumenn ekki lengur á dómskerfið í New York. Það er búinn að vera stanslaus flótti fólks og fyrirtækja úr borginni í valdatíð demókrata. Svona dómsmorð, eykur bara hraðann á flóttanum.

Birgir Loftsson, 20.3.2024 kl. 09:37

3 Smámynd: booboo

Mér skilst að lánveitandinn Deutche Bank hafi sent eigin matsmenn og metið eignina hærri heldur en matsmenn Trump. Lánið var veitt af DB og svo greitt á sínum tíma. Ekkert fórnarlamb, engin skaði,....

Allt er gert til þess að leggja stein í götu þessa manns. 

booboo , 22.3.2024 kl. 09:38

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Bóbó, vissi ekki af því. Takk fyrir viðaukann!

Birgir Loftsson, 22.3.2024 kl. 17:38

5 Smámynd: Birgir Loftsson

Rumble virðist ætla að bjarga karlinum...hann á 350 milljónir á reiðu, en svo....

Birgir Loftsson, 22.3.2024 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband