Nokkrir þættir verða til þess að þéttbýli myndast og koma þeir oft í mismunandi röð.
T.d. hof/kirkja/moskva eða tilbeiðslustaður sem dregur að sér samsafn af fólk til trúariðkana, sem dregur aftur á móti til sín kaupmenn og þetta allt dregur að sér þjóðarleiðtoga eða fursta, hirðina (herinn) og skattheimtumenn eða með öðrum orðum valdastéttina.
Dæmi: Sverrir konungur gerði Björgvin að aðsetur sitt, en þar var erkibiskupinn/dómkirkjan og millihöfn eða verslunarhöfn en Magnús konungur hafði Osló á móti.
Herbækistöðvar urðu oft að borgum, samanber limis eða landamærastöðvar Rómverja, en hermennirnir drógu að sér kaupmenn sem vildu versla við en þeir settust oft að við virkin, eignuðust konur og börn og mynduðu smá saman borgir. Dæmi Köln.
Hvað með Skálholtsstað? Örlög Íslandssögunnar eru sérstök. Það að Skálholt hafi orðið höfuðstaður Íslands sem og Hólar í Hjartardal var slæmt fyrir eyjuna Ísland. Báðir staðir voru staðsettir djúpt inn í landbúnaðarhéruð, langt til næstu hafnar en þeir voru stofnaðir þegar fískútflutningur var ekki hafinn frá Íslandi að marki. Þessir staðir, oft á stærð við þorp, gátu aldrei vaxið og dafnað, til þess voru aðdrættir of langir og erfiðir. Talað er um tvær leiðir við borgarmyndun:
- Stjórnsýslu- og viðskiptaborgir. Lifa á sveitum í kring. Feneyjar og Amsterdam byggðust fyrst og fremst á verslun og er þetta þeim sameiginlegt. Skálholt og Hólar höfðu ekki nægja aðdrætti til að stækka og lifa á sveitum í kring. Þetta viðurkenndu menn fyrst þegar landbúnaðurinn lagðist af á Íslandi í kjölfarið á Móðuharðindunum og sameinuðu biskupssetrin í eitt í Reykjavík.
- Framleiðsluborgir sem verða til vegna iðnaðar og lifa ekki á sveitum í kring. Þessar borgir urðu einkum til á 18. öld og síðar. Þó voru til framleiðsluborgir áður, sbr. hollensku borgirnar. Framleiðsluborgir hefðu getað myndast á Íslandi við sjávarsíðuna ef verslunin hefði verið frjáls og fiskveiðar frjálsar. En svo var ekki. Þetta tafði þéttbýlismyndun á Íslandi allt til seinni helmingi 19. aldar. Reykjavík kom fyrst með alla þætti borgar, sem er stjórnsýslueining bæði veraldlegs valds sem og geistlegs, höfn, iðnaður og framleiðsla í lok 18. aldar.
Engin tilviljun að Reykjavík er eina borg Íslands, þótt segja megi að Kópavogur og Hafnarfjörður nálgist það kalla megi borgir. Áður fyrr var miðað við íbúafjöldann 25 þúsund manns eða 50 þúsund. En borg þarf að hafa meira en ákveðinn íbúafjölda. Hún þarf að hafa höfn/flugvöll, iðnað, framleiðslu, vera stjórnsýslueining og hafa þjónustu á öllum sviðum. Í því samhengi er Hafnarfjörður meiri borg en Kópavogur þótt íbúafjöldinn er minni.
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.