Apar fara í stríð

Það er ágætis þáttaröð á Netflix um ættbálk apa, nánar tiltekið simpasa. Hún heitir Chimp Empire.  Hún er heillandi en vekur um leið umhugsun.  Það sem kemur mest á óvart er hvað aparnir eru líkir okkur. 

Þeir mynda ættbálka, með báðum kynjum, karldýr og kvendýr (já bara tvö kyn hjá þeim) og afkvæmi þeirra.  Það er einn leiðtogi, alfa api sem situr völtum fótum á toppnum. Aðrir karlapar mynda hóp eftir virðingastöðu sem og kvenaparnir með afkvæmin. Allir hafa hlutverk og sumir eru utangarðs.

Hegðun þeirra er afar lík mannanna. Þeir eigna sér land eða svæði sem þeir verja með harðri hendi.  Þeir vakta landamærin og sjá til þess að aðrir apahópar komist ekki inn á svæðið.  Þeir veiða sér apaketti til matar.

Svo er farið í stríð. Þáttaröðin sýnir hvernig það gengur fyrir sig. Einn apinn varð hræddur að vera við landamærin í eftirlitsferð og hélt heim á leið. En hann var óheppinn, því að hann gekk í flas innrásarhóps annans ættflokks og var drepinn.

Það er greinilegt að maðurinn er ekkert þróaðri en aðrir mannapar.  Við erum villidýr sem drepum allt sem verður á vegi okkar (milljarða dýra árlega sem og aðrar manneskjur) og pökkum "veiðina" inn í fallega pakka sem við verslum í næstu matvælaverslun. Það er mjög "þróað" að þurfa ekki að standa í drápum sjálf.

Nú stendur yfir fundur Evrópuráðsins í Hörpu til að ræða stríðið í Úkraníu. Ekki er minnst einu orði á að koma á friði, nei, það á að búa til tjónaskrá.  Mun hún hvetja Rússa til að leita friðar? Held nú ekki. 

Maðurinn hefur ekkert lært á milljón ára þróunarferli sínum. Og svo velta menn fyrir sér af hverju geimverur hafi ekki samband við mannkynið.  Kannski hafa þær komið og hreinlega ekki líst á blikuna. Á þessari plánetu drepa allir alla og dýrin eru jafn dugleg við drápin.

Verður einhvern tímann friður á jörðu? Hef enga trú á því á meðan eðli mannsins er eins og það er.  Því er best fyrir örþjóð eins og Íslendinga að mynda bandalög  sér til verndar en einnig að tryggja eigið öryggi með til dæmis her.  Það hefur enginn eins mikla hagsmuna að gæta en við sjálf við að verja land og þjóð. Þegar á reynir geta bandamenn okkar verndað okkur?

P.S. Það var ein niðurstaða á fundinum. Það var staðfest að Íslendingar lúta algjörlega ESB en "samþykkt" var að Ísland fengi undanþágu varðandi mengun í flugi. Katrín Jakobsdóttir þóttist vera ansi hörð á sameiginlegum blaðamannafundi með Ursula von der Leyen framkvæmdarstjóra ESB með undanþágu í farteskinu til 2026!  Ísland er hreinasta land í heimi hvað varðar mengun en samt haga leiðtogar Íslendinga sér eins og hamfara hlýnun eigi sér stað á landinu í miðri norðan hríð maí mánaðar. Fólk verður stundum galið þegar það fylgir hugmyndafræði og skynsemin fljót að hverfa.

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Menn gleyma alltaf að ræða ástelskandi Bonobo apana í sömu hendingu og ofbeldissinnaða bræður þeirra Sjimpansana.

Guðjón E. Hreinberg, 17.5.2023 kl. 11:15

2 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Menn (konur og karlar) í vestrinu eiga meira skylt við sauði sem láta leiða sig til slátrunar, kindur, heldur en apa, eftir bólusetningar, genabreytingar og andlega innrætingu í áratugi.

Apagenin eru óvirk í flestum eða önnur gen sem hjálpa til við mannlegt vit, menningu. 

Sést það bezt á því að fæðingartíðni er í frjálsu falli. Þannig er okkur útrýmt, ekki með stríðum, þau eru punkturinn yfir i-ið. Þegar fólki er sama segir það eitt: Geimverur eða andlegur máttur útrýmir okkur innanfrá, sem er fær um heilaþvott og lýðstjórnun. Hvort Medúsúkenning Guðjóns er rétt er óvíst, en góð tilraun til útskýringar.

Ingólfur Sigurðsson, 17.5.2023 kl. 13:08

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir innlitið báðir. Ég hef engu við að bæta við orð ykkar, vel mælt.

Birgir Loftsson, 17.5.2023 kl. 16:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband