Líkt og Arnór Sigurjónsson gerði allt "vitlaust" með hugmyndir sínar um íslenskan her hér á Íslandi, þá er þáttastjórnandinn Tucker Carlsson á Foxnews að gera stjórnmálaelítuna brjálaða í Washington. Af hverju?
Jú, hann fékk aðgang að video upptökum frá 6. janúar þegar uppþotið átti sér stað í Washington og hópur fólks ruddist inn í þinghúsið 2021. Starfslið hans hefur farið yfir þúsundir klst. af upptökum frá þessum degi í samtals þrjár vikur.
Í ljós hefur komið að frásögnin sem þingmenn demókrata (og sumra repúblikana) af atburðum dagsins hefur reynst vera hugarburður einn. Meira en það, helber lýgi. Fjölmiðlar sem flestir eru á bandi demókrata hafa lepið upp hráa lýgina sem hefur verið borið á borð fyrir þá, engin rannsóknarvinna unnin, bara copy/paste blaðamennska (líkt og á Íslandi).
Ég skrifaði um þetta á sínum tíma, birti hér atburðarásina frá klst. til klst og lýsti atburðum. Mér varð strax ljóst að frásögn demókrata stóðst ekki. T.d. að fimm lögreglumenn hefðu verið drepnir. Það er lýgi. Einn dó einhverjum dögum síðar (heilablóðfall) og sjá má hann sprelllifandi á göngum þinghússins allan daginn. Hinir fjórir létust einnig löngu síðar, allir vegna sjálfsmorða. Og aðallýgin, frásögnin af seiðmanninum með hornin, sýnir á svart á hvítu hversu viljugir menn voru að ljúga. Allan tímann, hægt er að fylgjast með honum mínútu til mínútu, var hann friðsamur, var í lögreglufylgd (þeir sýndu honum þinghúsið) og aldrei lyfti hann hendi nema til að reisa upp bandaríska fánann! Svo er það meintur FBI maðurinn sem kvatti fólk utandyra til að fara inn í þinghúsið og fólkið í kringum hann, hrópaði að hann væri á vegum FBI, hann hefur ekki setið eina mínútu í fangelsi. Er það ekki undarlegt?
Demókratar og vinir þeirra (sem eru nokkrir) í Repúblikanaflokknum, hafa viljað gera sem mest úr þessum óróa, sem var í mesta lagi uppþott, ekki uppreisn, til að koma sökina á Donald Trump. Já, hann á óvini í Repúblikanaflokknum. Á meðan situr hundruð manna saklaus í fangelsi fyrir meinta uppreisn og árás á þinghúsið. Það skal taka fram að slagsmál áttu sér stað og lögreglumenn meiddust, það er á hreinu, en uppreisn og þetta er mesta árás á Bandaríkin, meiri en Pearl Harbor 1941...eru mestu ýkjur sem til er. Eina manneskja sem drepin var þennan dag var fyrrverandi hermaður, kona sem var skotin af færi vopnlaus.
Hvaða lærdóm getum við dregið af þessu? Jú, það er stöðugt verið að ljúga að okkur, sbr. um uppruna covid veirunnar.
Ef 99 manns segir að sólin snúist í kringum jörðina en 1 segir að því sé öfugt farið. Hver hefur rétt fyrir sér? Verum óhrædd að vera í minnihluta og segja meiningu okkar, við gætum haft rétt fyrir okkur!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | 9.3.2023 | 18:31 (breytt kl. 19:01) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Algerlega sammála þér Birgir.
Tómas Ibsen Halldórsson, 9.3.2023 kl. 20:05
Takk fyrir Tómas, við erum þá a.m.k. tveir sem höldum að jörðin fari í kringum sólina en ekki öfugt.
Birgir Loftsson, 9.3.2023 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.