Pólitík strútsins. 6-2 fræðimönnum í vil

Ég kalla þetta pólitík strútsins, að stinga höfuðinu í sandinn þegar stjórnmálamenn vilja ekki viðurkenna neinn vanda í varnarmálum.

En núna, ef ég hef talið rétt, hafa sex fræðimenn og sérfræðingar gagnrýnt stefnu íslenskra stjórnvalda í varnarmálum og vilja kanna hvort þörf sé á breytingar og hverjar raunverulegar varnir Íslands eru. Tveir stjórnmálamenn hafa svarað og telja engar breytinga þörf, annar þeirra sjálfur utanríkisráðherra landsins.

Og mbl.is fór á stúfana og spurði utanríkisráðuneytið hver eru eiginlega raunverulegar varnir landsins. Það var fátt um svör og borið var við "hernaðarleyndarmál".

Pia Hans­son, for­stöðumaður Alþjóðamála­stofn­un­ar Há­skóla Íslands er nýjasti fræðimaðurinn sem bættist í landslið fræðimanna á sviði öryggis- og varnarmála. Viðtal við hana í Morgunblaðinu ber heitið "Hrein­skil­in umræða um ör­ygg­is- og varn­ar­mál ætti að telj­ast eðli­leg í sjálf­stæðu og full­valda ríki."

Og hún segir: "Ísland er eft­ir­bát­ur annarra ríkja þegar kem­ur að þekk­ingu og rann­sókn­um á ör­ygg­is- og varn­ar­mál­um. Nauðsyn­legt er að breyta þessu svo stuðla megi að yf­ir­vegaðri umræðu um mála­flokk­inn. Um of langt skeið hef­ur op­in­ber umræða ein­kennst af tak­markaðri þekk­ingu."

Vandi Íslendinga í varnarmálum eru sjálfir stjórnmálamennirnir. Þeir vilja ekki einu sinni vita hver staðan er í varnarmálum og vilja ekki sækja sér þekkingu þar sem hún er að finna.

Hér er nýjast grein mín í Morgunblaðinu í dag um varnarmál Íslands.

Varnir Íslands í höndum Íslendinga í ýmsum sviðsmyndum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Loftsson

Fræg eru ummæli Henry John Temple, sem varð tvisvar forsætisráðherra Bretlands á Viktoríutímanum, um að þjóðir eigi enga varanlega vini eða bandamenn, aðeins varanlega hagsmuni. Þessi sömu ummæli hafa einnig verið höfð eftir Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkjaher yfirgaf Ísland 2006 þrátt fyrir óskir þáverandi ríkisstjórnar um annað. Sú ákvörðun snerist um bandaríska hagsmuni sem skiljanlegt er. Þetta þarf að hafa í huga komi fram óskir frá bandarískum stjórnvöldum um enn frekari uppbyggingu hernaðarmannvirkja eða viðveru hermanna. segir í grein í  Fréttablaðinu.  Nafnið á höfundi er stolið úr mér í  augnablikinu. 

Birgir Loftsson, 11.3.2023 kl. 13:12

2 Smámynd: Birgir Loftsson

https://www.frettabladid.is/skodun/eydimerkurganga-islenskra-landvarna/

Birgir Loftsson, 11.3.2023 kl. 13:15

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Ólafur Ragnar segir íslensk stjórnvöld hafa klúðrað herstöðvamálinu.                                            

https://www.frettabladid.is/frettir/olafur-ragnar-segir-islensk-stjornvold-hafa-kludrad-herstodvarmalinu/

Birgir Loftsson, 11.3.2023 kl. 13:28

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Nafnið er komið: Sighvatur Arnmundsson.

https://www.visir.is/g/2019190909758/hagsmunir-

Birgir Loftsson, 11.3.2023 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband