"Útvarp Saga er frjáls og óháð íslensk útvarpsstöð sem byggir dagskrá sínna nánast eingöngu á talmálsdagskrá 24. tíma á sólarhring.
Útvarp Saga var stofnuð árið 1999 af Norðurljósum sem þá var í eigu Jóns Ólafssonar athafnarmanns. Í upphafi var dagskrá stöðvarinnar lögð undir íslenska tónlist. Stefnunni var umbreytt árið 2002 þegar Útvarp Saga varð að talmálstöð. Árið 2003 keypti starfsfólkið Ingvi Hrafn Jónsson, Arnþrúður Karlsdóttir, Sigurður G. Tómasson og Hallgrímur Thorsteinsson stöðina af Norðurljósum.
Árið 2003 stóð Arnþrúður eftir ein sem eigandi stöðvarinnar, eftir að hafa keypt þá félaga út úr félaginu. Arnþrúður hefur verið 100% eigandi í tæpa tvo áratugi og er að hefja 20. starfsárið sitt sem útvarpsstjóri. Arnþrúður Karlsdóttir er ein kvenna á Íslandi sem hefur verið eigandi og rekið ljósvakamiðil.
Deilur hafa gjarnan verið í kringum Útvarp Sögu, bæði hvað varðar dagskrá og rekstur. Þá hefur Útvarp Saga staðið í deilum við Póst- og fjarskiptastofnun um útsendingartíðni. Árið 2019 var Arnþrúður dæmd til að greiða 3,3 milljónir auk dráttarvaxta til aðdáanda stöðvarinnar. Deilt hafði verið um hvort fjármunir sem Arnþrúður fékk hefði verið styrkur eða lán."
Það sem hefur einkennt stöðina, þrátt fyrir augljósan hægri halla, en þeir útvarspsmenn og þulir sem starfa hafa á stöðinni teljast til hægri ef marka má orð þeirra sjálfra. Stöðin sjálf segist vera frjáls og leyfir allar raddir að tjá sig. Sumir hafa ekki þolað þetta frelsi og var útvarpsstöðin eitt sinn kærð fyrir ummæli í innhringingatíma og fór málið fyrir dómstóla. Saga vann málið. Allir stjórnmálamenn sem vilja, sama hvaða flokk þeir tilheyra geta komið í viðtal á stöðunni, til vinstri eða hægri. Hún nýtur því töluverðrar virðingar þess vegna.
Stöðin hefur sinn dyggja aðdáendahóp, sumir hringja inn daglega árum saman. Líklega er meðalaldur þeirra sem hlusta í hærri kantinum en það er kannski ekki að furða er haft er í huga að hér er um að ræða talmálsstöð, lítil tónlist heyrist og mikið fjallað um pólitík.
Þar eð útvarpsstöðin er ekki ríkisstyrkt og þarf að berjast á hálffrjálsum auglýsingamarkaði, þá hefur kreppt stundum að er varðar afkomu. Ég held að fastir styrkgjafar, einstaklingar út í bæ, hafi bjargað stöðinni oftar en einu sinni. Stöðin hefur verið talsvari aldraðra, fátækra og öryrkja, sem er kannski engin furða, því að innhringjendur eru margir hverjir úr þessum hópi, sem hefur tíma á morgnanna til að hringja.
Stöðin hefur reynt fá einhvern meðbyr í landi ríkisstyrkrar fjölmiðla, en ekki orðið ágengt. Getur verið að Framsókn sé á móti stöðinni?
"Auk Útvarps Sögu var það Nordic Times Media ehf. sem gefur út landkynningarblöð, og Snasabrún ehf. sem rekur vefinn Handbolti.is", segir í frétt Morgunblaðsins. Þarna er útvarpstöðin í hópi óþekktrar miðla og er rökstuðningurinn fyrir höfnun styrkjar vafasamur. Á sama tíma fékk RÚV hátt í fjögur hundruð milljónir í aukaframlög en aðrir fjölmiðlar aðeins 380 milljónir. Er RÚV ekki að fá heildina um 7 miljarða?
Það er því ekki skrýtið að Arnþrúður Karlsdóttir stefni á að selja tuttugu prósenta hlut í fjölmiðli sínum, Útvarpi sögu eins og kom fram í fréttum nýverið Hún segir það vera erfitt að sjá um fyrirtækið ein.
Útvarp saga á sér ekki bara óvini innan raða stjórnmálaelítunnar, heldur einnig hjá öðrum fjölmiðlum. Ætli megi ekki segja að Stundin sé helsti andstæðingurinn, og ætla má sé á hinum væng stjórnmálanna en hún var stofnun í febrúar 2015. Stofnendahópur Stundarinnar samanstóð af fjölmiðlafólki sem hafði hætt störfum á DV eftir fjandsamlega yfirtöku á miðlinum vegna umfjallana. Hún hefur mónitorar gengi útvarpsstöðvarinnar árlega í fjölda ára og tilkynnir samviskusamlega gengi hennar samkvæmt árreikningum.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Útvarp | 18.12.2022 | 20:39 (breytt kl. 20:42) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Útvarp Saga átti sitt blómaskeið þegar þar var varað við kreppunni sem varð 2008. Þrátt fyrir að þetta sé eina útvarpsstöðin enn þar sem fólk tjáir sig um raunveruleg stjórnmál en ekki áróður, þá er eins og kjarkurinn sé minni vegna fjárhagsþrenginga. Arnþrúður og Pétur eru farin að draga í land og efast um margt sem innhringjendur segja, en voru ákveðnari áður.
Inni á Póst- og fjarskiptastofnun eru væntanlega margir andvígir stöðinni vegna vinstripólitíkur. Innan fjármálakerfisins má búast við að sé andstaða einnig.
Útvarp Saga var í miklum blóma þegar Sverrir Stormsker var með þætti þarna og Hermundur talnaspekingur.
Það vantar fleiri svona stöðvar. Fjölmiðlarekstur hér á landi eins og annarsstaðar á Vesturlöndum lýtur þessum sömu lögmálum mafíustarfseminnar, erlendir einokunarmilljónerar læsa hingað klónum og koma með stöðlun spillingar, sem margir taka misgrip á og kalla fagmennsku.
Ég er raunar aðdáandi Útvarps Sögu, en krafturinn er minni í henni en áður. Þegar fólk þorir að segja óvinsælar skoðanir er frelsið í fullkomnu lagi.
Ég man að meiri kraftur var í umræðunni um flóttamannamál á þessari stöð áður og allskonar önnur mál.
Sterkir fjárhagsaðilar kúga þau til þöggunar og hlýðni.
Ingólfur Sigurðsson, 19.12.2022 kl. 16:37
Sæll Ingólfur. Ég er alveg sammála þér í öll sem þú segir. Krafturinn er lítill í dag miðað við áður. En athyglisvert er að það urðu mannaskipti áður og aðrir sáu um stöðina. Ef til vill kemur annar svona fjölmiðill ef þessi deyr en Arnþrúður er að selja 20% og kannski hann geri eitthvað. Svo eru vinstri miðlarnir Stundin og Kjarninn að renna saman. Það er bara ekki hægt að keppa við RÚV.
Birgir Loftsson, 19.12.2022 kl. 18:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.