Þegar maður heldur að ríkisstjórn Joe Biden gæti ekki sokkið dýpra, þá gerir hún það. Maður eigilega trúir þessum fréttum ekki sem berast frá Bandaríkjunum. Nú er búið að stofna til deildar sem á að vera eins konar lögga á hvað teljist vera falsupplýsingar (disinformation). Það er náttúrulega ekkert fjallað um þetta í íslenskum fjölmiðlum enda fara þeir í smiðju vinstri fjölmiðla í Bandaríkjunum sem passa sig á að segja sem minnst um þetta.
Sagan er á þessa leið. Biden forseti sætti gagnrýni á fimmtudaginn fyrir stofnun dystópískrar falsupplýsinga-skrifstofu sem stofnuð var undir heimavarnadeild hans (Homeland Security department), sem gagnrýnendur gagnrýna sem enn eina leið fyrir stjórnvöld til að hefta tjáningarfrelsi á netinu.Íhaldsmenn gagnrýndu það sem þeir kalla nýtt stjórnarráð Orwells og vísa þar í George Orwell og bók hans 1984 og sumir benda á að tímasetningin sé hentug í ljósi þess að Elon Musk hét því að gera Twitter opið á nýju á dögunum og leyfa á ný tjáningarfrelsinu eftir 44 milljarða dala yfirtöku hans á samfélagsmiðlinum sem er alræmdur fyrir valkvæða ritskoðun á hægri sjónarmiðum. Hér má sjá gagnrýni Eric Bolling hjá Newsmax á þessari deild og hann líkir henni einnig við "fyrirmyndaríkið" í bókinni 1984. Nú er stóri bróðir ánægður með Joe Biden, fyrirgefið, Winston Smith.
Eric Bolling hjá Newsmax
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | 29.4.2022 | 18:14 (breytt kl. 22:50) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Sæll Birgir.
Ég er að klára síðustu daga sumarfrís 2021 fyrir 1. maí, svo það fyrnist einfaldlega ekki, svo ég er duglegur við að lesa mbl bloggið, en ég nota ekki facebook, vegna áróðurs og ritskoðunar þeirra, þó ég hafi reyndar skráð mig inn í byrjum, en aldrei notað, þó ég viti að Ingi bróðir minn hafi sett t.a.m. ljósmyndir inn á þá síðu mína.
Ég les flestar, eða margar færslur þínar og tek eftir að álit þitt á vestrænum og sérstaklega bandarískum stjórnvöldum verður með hverri færslu krítískari, sem gleður mig, því fyrir ekki alllöngu þótti mér þú loka augunum fyrir ýmsu slæmu vestan megin, en síður gagnvart Rússum og Kínverjum.
Ég hvet þig líka til að kíkja á Russian news, CGTN og Al jezeera og held auðvitað áfram að fylgjast með blogginu þínu.
Jónatan Karlsson, 30.4.2022 kl. 11:23
Blessaður Jónatan, takk fyrir innlitið. Facebook er ástæðan að ég er hér, þeir hættu að vera með glósur/Notes. Ég nota hana núna sem myndaalbúm en segi aldrei neitt þar, enda ritskoðun þar með ólíkindum. Þeir eru enn með covid viðvöruna miða á "hættulegar" skoðanir sem birtast það.
Varðandi gagnrýni mína, þá segi ég það sem ég sé :) og eina liðið sem ég er í, er mitt eigið sem er ég sjálfur...hahaha.
Birgir Loftsson, 2.5.2022 kl. 18:10
Svo er ágætt að hafa þetta á bakvið eyrað.... https://biggilofts.blog.is/blog/biggilofts/entry/2271765/?preview=1
Birgir Loftsson, 2.5.2022 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.