Yfirmaður CIA skipaði Lee Harvey Oswald að skjóta John F. Kennedy samkvæmt niðurstöðu sérfræðings
Þetta kemur fram í frétt Newsmax. Ég ætla ekkert að skrifa sjálfur, bara þýða greina sem skýrir sig sjálf.
Lee Harvey Oswald, maðurinn sem myrti John F Kennedy fyrrverandi forseta árið 1963, starfaði undir stjórn fyrrverandi yfirmanns CIA, samkvæmt nýrri bók um efnið, segir í frétt New York Post.
Dr. Cyril Wecht, 90 ára réttarmeinafræðingur sem hefur rannsakað atvikið í næstum sex áratugi, skrifar í The JFK Assassination Dissected að fyrrverandi forstjóri CIA, Allen Dulles, hafi skipað Oswald að skjóta Kennedy.
Oswald, fyrrverandi skytta hjá landgönguliðinu, var nýlega kominn heim frá Sovétríkjunum.
Hann hafði nánast örugglega verið einhvers konar umboðsmaður CIA, sagði Wecht í viðtali við Post.
Dulles, sem starfaði sem yfirmaður CIA frá 1953 til 1961, hafði verið vikið úr embætti af Kennedy eftir misheppnaða árás Svínaflóa á Kúbu og að sögn höfundar var hann svo argur að hann lét Oswald skjóta forsetann.
Seinna var Dulles einn af meðlimum Warren-nefndarinnar sem rannsakaði morðið.
Kennedy hafði rekið Allen Dulles vegna þess að hann var virkilega reiður yfir því sem CIA var að gera, sagði Wecht við New York Post. Hver er þá skipaður í Warren-nefndina? Dulles.
Wecht sagði þingnefndinni um morð árið 1978 að hann teldi kenninguna um eina byssumanninn ekki trúverðuga vegna mismunandi ferla skotanna sem hittu Kennedy þegar hann sat í eðalvagni sínum í gegnum Dallas, að því er The Independent greindi frá.
Hann segir að annar byssumaður hljóti að hafa verið staðsettur á bak við grindverk á nærliggjandi grösugum hæð.
"Samkvæmt kenningunni um eina byssukúlu er Oswald eini morðinginn, hann er að skjóta úr glugganum á sjöttu hæð í Texas School Book Depository byggingunni, þannig að byssukúlan færist ofan, niður, ekki satt? Svo hvernig í fjandanum gat hún farið upp á við?
Wecht var fyrsti réttarmeinafræðingur sem fékk aðgang að gögnum bandaríska þjóðskjalasafnsins um JFK-drápið árið 1972, og hann heldur því fram að misferli hafi verið í kringum krufningu á líki forsetans, að því er Post greindi frá.
Þegar hann fór á Þjóðskjalasafnið sá meinafræðingurinn að heili Kennedys hafði verið fjarlægður og er enn ófundinn.
Wecht var ráðgjafi við samsærishugsuðu kvikmyndina JFK frá Oliver Stone frá 1991 og tileinkaði kafla í nýrri bók sinni reynslu sinni á kvikmyndasettinu. Stone skrifaði formála bókarinnar.
Árið 1992 samþykkti þingið JFK Assassination Records Collection Act, sem fyrirskipaði að allar JFK morðskrár yrðu gefnar út fyrir árið 2017. Fresturinn hefur ekki verið uppfylltur, en Joe Biden forseti hefur áætlað birtingu lokaskjalanna fyrir desember 2022.
Þýðingu lýkur. Sjá heimild að neðan.
Ég hef skrifað áður á þessum vettvangi um aftökuna, já ekki bara morð, heldur aftaka. Þar fer ég mun nákvæmar í málið. Það sem heillar mig við þetta mál er sú ósvífni að taka Bandaríkjaforseta af lífi fyrir framan alþjóð og komast upp með það. Samsæri sem gékk nánast 100% upp vegna þess að þeir sem áttu að rannsaka voru sekir! Hinn fullkomni glæpur.
Heimild:
JFK Assassination Expert: Shooter Lee Harvey Oswald Ordered by CIA Chief
Blogggrein mín: Helstu samsæriskenningar um morðið á J.F. Kennedy
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál | 12.2.2022 | 12:03 (breytt kl. 17:51) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Sæll Birgir.
Þessi grein þín - eða þýðing og fyrirsögnin á henni er ekki þitt besta, því eins og gamli réttar- meinafræðingurinn Dr. Cyril Wecht hefur sagt í fjölda viðtala, þá var Oswald örugglega ekki skotmaðurinn, þó svo hann hafi verið á launaskrá CIA og undir stjórn Allan Dulles, sem reyndar var bróðir borgarstjóra Dallas og síðar formanns Warrens yfirhylminganefndarinnar sem gekk endanlega frá lausum endum morðsins, eða stjórnarbyltingarinnar.
Önnur bloggfærsla þín um sama efni var hinsvegar frábær og meðfylgjandi heimildir góðar.
Jónatan Karlsson, 12.2.2022 kl. 16:14
Sæll vertu Jónatan. Það er takmarkað hvað hægt er að koma fyrir í titli og oft þarf að lesa textann með til að ná samhenginu.
Lee H Oswald var hluti af morðsveit CUA og hann tók þátt í samsærinu um að drepa Kennedy og hann var á morðstaðnum til að taka þátt í drápinu.Hann var þjálfaður skytta sem var hluti af skyttusveit. Það er aðalatriðið. Aukaatriði í raun hvort hann tók í gikkinn eða aðrir staðsettir í bókasafninu sem hann var starfsmaður á.Það verður seint sannað eða aldrei.
Aðalatriðið er ekki maðurinn með fingurinn sem tók í gikkinn, heldur hver skipaði morðið eins og titillinn segir. Allen Dulles....beggja meginn við borðið, í morðinu og morðrannsókninni! Ef það tækist að sanna að CIA hafi staðið á bakvið morðið, yrði pólitískt fárviðri í BNA. Því að þetta jafngildir valdaráni. Sannað er að CIA og aðrar leyniþjónustur í BNA hafa skipulagt valdarán á bakvið tjöldin síðan í seinni heimsstyrjöld. Þær eru svo valdamiklar, að þær eru hættulegar lýðræðinu.
Skemmst er að minnast ,,mjúkt valdaráns" er ríkisstjórn Trumps tók við Obama 2016, þegar kerfið (æðstu yfirmenn CIA og FBI) lögðu Demókrata lið við að eyðileggja fyrstu mánuði forsetatíð Donalds Trumps. Demókratar virðast eiga kerfið.
Það er eitthvað að kosningakerfinu í Bandaríkjunum, svo mikið að menn komast til valda eins og Kennedy með stuðningi glæpalýðs (mafíunnar). Mjög skrítið að geta kostið án þess að fara á kjörstað eða sýna skilríki. Það eru kosningasvindl í hverjum einustu kosningum, spurningin er bara hvort það sé nógu mikið til að hafa áhrif á úrslit kosninganna.
Birgir Loftsson, 12.2.2022 kl. 17:45
Sæll Birgir.
Ég skil hvað þú meinar og vissi að hann var tengdur samsærinu.
Jónatan Karlsson, 12.2.2022 kl. 23:40
Hér er athyglisvert viðtal.
https://fb.watch/b8K3IGeD_D/
Birgir Loftsson, 13.2.2022 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.