Stríð fjölmiðla við Donald Trump og afleiðingar þess

_112546457_trump-ncSkoðanakannanir í Bandaríkjunum hafa sýnt út allt árið og í raun löngu fyrr, að áhorf á bandaríska fjölmiðla og lestur stórra fjölmiðla sem telja má vera vinstrisinnaða, hefur dalað gífurlega. Svo mikið að t.d. CNN hefur að meðaltali aðeins um fimm hundruð þúsund manna áhorf á þætti sína. Svo má segja um aðra fjölmiðla, fólk er hætt að horfa og auglýsendur borga minna. Hægri fjölmiðlarnir koma betur út úr þessu en áhorf þeirra hefur eitthvað minnkað en ekki eins mikið. Hvað veldur?

Í fyrsta lagi var að Donald Trump ákvað að fara í stríð við fjölmiðla, þegar þeir hæðnstu að honum og framboð hans og kölluðu hann trúð og framboð hans grín. Í stað þess að þegja og taka þessu með þögninni, ákvað hann að fara í alsherjar stríð og stóð það í fimm ár og stendur enn, en hann kallaði þessa fjölmiðla Fake news. Þegar stríðið byrjaði var viðhorf Bandaríkjamanna til fjölmiðla almennt jákvætt, um 80% en nú er það komið niður í 20%. Þeir lögðust svo lágt, að vönduð fréttamennska var varpað út um glugga og margir tóku eftir því og hættu að treysta fréttaflutningi þeirra.

Í stríðinu voru öllum meðulum beitt og Trump lýstur sem rússneskur njósnari og hvað sem þeim datt í hug hverju sinni. En þeir tóku ekki einn þáttinn með inn í stríðið, almenning, sem var búinn að fá nóg af lygum fjölmiðla og fúamýri Washington og tók ekki undir þessar árásir. Ef eitthvað er jukust vinsældir Trumps og hann bætti við sig 13 milljónir atkvæða í síðustu kosningum sem hann þó tapaði. Ótrúlegt en satt, einum manni tókst að koma fjölmiðlaveldunum niður á hné.

Annar veigamikill þáttur er tilkoma samfélagsmiðla. Fók sækir sína þekkingu og fréttir af t.d. podcast og samkeppnin um athygli almennings hefur aldrei verið meiri. Nú er einnig svo komið að traustið á stóru samfélagsmiðlunum hefur minnkað, til dæmis á Facebook og Twitter, vegna ritskoðunartilburði þeirra.

Eins og staðan er í dag, hafa þeir vinninginn með dyggan stuðning Demókrata (sjálfur Bandaríkjaforseti burtrækur af Twitter), en það kann að vera skammgóður vermir, því að búist er við að þegar Repúblikanar taki völdin í báðum deildum Bandaríkjaþings í næstu kosningum og þá taka þeir slaginn við samfélagsmiðlana en þeir hugsa þeim þeigjandi þörfina eftir meðferðina sem hægri menn hafa þurft að þola, að sögn Repúblikana. 

Stríðið er því aðeins hálfnað og óvíst eru endalokin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband