Athyglisverðar eru nýjar upplýsingar sem hafa borist um morðið á Kennedy. Leyniskjöl hafa verið birt og ný tækni komið fram.
Alltaf hefur verið talað um að Kennedy hafi kannski verið skotinn frá grasbalanum fyrir ofan veginn, þ.e.a.s. ef Oswald hafi ekki kálað honum.
Oswald átti að hafa 7 sekúndur til að drepa hann með þremur skotum, skotið úr fjarlægð og ofan frá, sem er einstakt afrek og næsta ómögulegt.
Samkvæmt einni kenningu var hann skotinn úr ræsi sem er enn til. Op er á ræsinu og er eins í laginu og skotgat. Byssumaður gat staðið uppréttur og náð góðri skotstöðu. Auðvelt er fyrir laumumorðingja að flýja óséður þaðan, enda neðanjarðar, og komið upp í fjarlægð og tekur það um 45 mínútur neðanjarðar.
Þetta passar við höfuðskotið, sem splundraði helminginn af höfðinu en útgöngugatið kom út um hnakkann eftir að hafa farið skáhalt í ennið framanverðu (ekki í gegnum hnakkann ofan frá!). Athugið að vitnin sem voru fyrir framan grasbalann fræga og hinum megin við götuna, sögu öll að skotið hafi verið þaðan og sést hafi til eins eða tveggja manna. Hópur fólk hljóp þangað til að reyna góma tilræðismanninn /-mennina.
Líklega hafi hálsskotið komið annars staðar frá, samt ekki frá byggingunni sem Oswald var í, því að þá hefði skotið þurft að fara 360 gráður til að hitta hann. Menn skilja ekki af hverju kúlugatið á framrúðunni hafi aldrei verið rannsakað til fullnustu og olli hálssárinu en það kom á undan höfuðskotinu.
Sjá má Kennedy fá kúlu í gegnum hálsinn, því að hann grípur um hálsinn og svo aðra kúlu í gegnum ennið eða gagnaugað en sjá má blóðið þyrlast upp og höfuð hans snúa í hægri sveig (sem er eðlilegt ef kúlan kemur að framan og neðan frá ræsið). Sum vitni segja að 11 kúlum hafi verið skotið. Líklegt að skotið hafi verið 3 kúlur á 7 sekúndum úr riffli sem er einskota og þarf að hlaða? Nei, held ekki. Annað skot kom frá grasbalanum en skotið fór framhjá og í grasið fyrir aftan forsetabílinn. Sjá má menn taka upp kúluna þar á myndum.
Svo fékk einn maður steinflísar úr vegkanti á sama tíma. Sem sé: ein skot í gegnum hálsinn, annað í gegnum vinstra herðarblað þegar hann féll við hálsskotið og lokaskotið í gegnum gagnaugað og út um baksvæði hauskúpunnar en þar má sjá að hauskúpan hafði splundrast. Sjá má á mynd að höfuð forsetans kippist vinstri og upp við síðasta skotið og bendir það til skotið hafi komið frá annarri átt en frá bókasafninu.
Kenningin segir að 8 menn hafi staðið að morðinu, tveir af þaki byggingarinnar með einum stjórnanda, sem Oswald var í, einn í byggingunni við hliðar og vitni sá standa í glugganum með riffill í hendi, einn í ræsinu og einn á grasbalanum fyrir framan forsetabílinn. Aðrir stóðu í mannfjöldanum. Af 90 manns sem spurðir voru hvar þeir héldu að skotin hefðu komið frá, sögðu 57 að þau kæmu frá grassvæðinu þar sem girðingin er.
Sjá slóð: https://www.youtube.com/watch?v=4f3mlbrwXjg
Vitni eða fólk sem sagt hefur haft upplýsingar, týndi lífið margt hvert á voðfengalegan hátt eða hátt í 60 manns. Svo verður að líta á að lífvörðurinn sem átti að standa á bíl Kennedys, fékk ekki að standa á bílnum á flugvellinum (sem sést á myndum að hann mótmælir á flugvellinum) og þar með opnaðist skotfæri úr öllum áttum að skjóta forsetann!
Aðrir bílar í bílalestinni höfðu leyniþjónustumenn standandi á bílunum. Sjá má bremsuljósin á myndbandinu þegar fyrsta skotið hafði hitt Kennedy! Bíllinn var nánast stopp fyrir dauðaskotið.
En það er augljóst að það voru margir sem stóðu að morðinu. Núverandi og opinber útgáfan stenst ekki. En hvort að CIA og mafían eða/og Kúbverjar hafi staðið á bakvið, veit ég ekki. --- Það ætti að grafa lík Kennedy upp og skoða aftur höfuðkúpuna og gera DNA. Eitt er ljóst og það er CIA klúðraði vernd Kennedy 100%. Maðurinn er án lífvarða á bílnum (á meðan hinir bílarnir eru stútfullir af CIA mönnum) sem meira segja krakkar í byssó myndu fatta að væri ekki í lagi; hann látinn fara inn í dauðagildrusvæði þar sem hægt er að salla hann niður í rólegheitum vegna lítils hraða og engar skyttur frá CIA eða fulltrúar sem pössuðu upp á nærliggjandi byggingar. Ef þetta er ekki gildra, þá veit ekki ég hvað.
En hver stóð að morðinu? Lyndon B Johnson er grunaður en Allen Dulles, yfirmaður CIA, hataði hann fyrir brottreksturinn og J.E. Hoover, stofnandi og forstjóri FBI þoldi heldur ekki afskipti þeirra bræða. Veit ekki hvort stjórnkerfið hafi snúist gegn þeim og drepið þá bræður.
Sumir segja að menn úr CIA og mafían hafi unnið saman og leigumorðingjarnir hafi verið 8 talsins. Að minnsta kosti hafði Robert Kennedy sett saman sveit CIA sem á móti notaði sama mannskap og mafían en hún átti að ráða F. Castro af dögum. Þessi sveit var sem sé til staðar og svo fengu þeir JFK beint upp í hendurnar þegar hann flaug beint í gin óvinarins í Dallas en þar átti hann marga andstæðinga, sem gátu ekki fyrirgefið honum Svínaflóainnrásina sem misheppnaðist og það að hann vildi ekki gera aðra tilraun. Menn innan CIA hötuðu hann fyrir það, einnig hershöfðingjar og stjórnmálamenn. Svo var það líka það að hann hafði hótað í ræðu að afhjúpa hið ,,leyndarsamfélag sem græfi undan lýðræðinu og stjórnkerfinu.
Kúbverjar vissu af fyrirhuguð drápi en gerðu ekkert. Rússar voru lemstraðir eftir næstu því kjarnorkustyrjöld við Bandaríkin en höfðu náð sátt við BNA í eldflaugadeilunni og höfðu því enga ástæðu til að drepa hann. En mafían hafði ástæðu til að drepa hann, því að hún hafði misst spón úr aski þegar Castro komst til valda og misst þar með spilavítin sín sem hann hafði gerð upptæk.
Þegar JFK gerði ekkert sem rétti hlut hennar (samkvæmt samkomulagi Joseph Kennedy við mafíuna) og stóð jafnvel í veginum, er ekki að spyrja að leikslokum auk sem hann og Robert voru að þjarma að mafíunni....
Eftir stendur mafían sem Robert Kennedy var þá að þjarma að og og samtök kúbverskrar útlaga sem hötuðu JFK fyrir meint svik vegna Svínaflóa árásarinnar. Óbeinar sannanir hafa tengt bæði mafíuna og kúbverskrar útlaga við morðið en meira við þá síðarnefndu og Oswald var sannarlega að vinna fyrir þá með dreifingu bæklinga.
Benda má á að CIA notaði mafíuna til launmorða innanlands og getur verið að einhver þar hafi staðið á bakvið, háttsettur einstaklingur eða deild innan CIA sem starfaði sjálfstætt.
Valdarán og aftökur erlendra stjórnmálaleiðtoga hafa verið einkennismerki CIA frá stofnun þess. Leyniþjónustustofnunin hefur framið ótal valdarán og aftökur á erlendum stjórnmálamönnum frá stofnun.
Hópur Kúbverja og mafíumanna hafi framkvæmt drápið að beiðni einhvers háttsettan embættismann. Samsæri væri því nærri lagi sem skilgreiningin á morðinu. Ef skotið var úr mörgum áttum, þá má kalla þetta launmorð aftöku! Sem eftirmáli má benda á að minnsta kosti 54 manneskjur, sem tengdust morðinu á einhvern hátt, hafa dáið á dularfullan hátt.
Að Oswald hafi verið drepinn í beinni útsendingu (hann hafði staðfastlega sagt að hann væri fórnarlamb eða blóraböggull) er ótrúlegur verknaður. Jack Ruby var sjálfur tengdur mafíuna og virðist hann hafa átt að reddi málum á síðustu stundu og drepa hann en verknaðurinn virðist vera gerður í flýti og af örvæntingu. Hann var illa skipulagður ef nokkuð.
Samkvæmt nýlegum upplýsingum, þá sagði Jack Ruby, næturklúbbseigandinn sem myrti Lee Harvey Oswald, uppljóstrara alríkislögreglunnar FBI að fylgjast með flugeldunum nokkrum klukkutímum áður en John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var ráðinn af dögum í Dallas þann 22. nóvember 1963. Ruby var svo sjálfur á torginu þar sem morðið átti sér stað. Þarf frekari vitnana við?
Nýjustu upplýsingar um dráp JFK 1963 komu fram fyrir skömmu en Donald Trump leyfði birtingu 50 þúsund skjala í forsetatíð sinni. Þau virðast staðfesta samsæri um morðið. LBJ er líklega heilinn á bakvið en hann átti hættu á að lenda í fangelsi vegna 3 hneykslismála. Dullas, sem JFK rak úr stóli forstjóra CIA, skipulagði aftökuna og notaði sveit CIA og mafíu morðingja. Mafían var þá illa stödd vegna handtöku 700 meðlima sinna og Robert Kennedy stóð fyrir. Morðið var í raun valdarán æðstu ráðamanna Bandaríkjanna samkvæmt kenningunni.
Ef þetta virkar ótrúlegt, þá þarf ekki annað að sjá aðförina að Trump. Nema núna er reynt, í stað þess að drepa hann, að velta hann úr sæti, með samsæriskenningu. En núna eru það æðstu valdamenn FBI, James Comey og fleiri, sem reyna ljúga upp á hann sakir. Það mistókst en ætla má að reynt verði að ráða hann af dögum næst. Reynt hefur verið ráða nánast alla Bandaríkjaforseta af dögum síðan Lincoln var drepinn en sjaldan hefur það heppnast.
Morðtilraunir og samsæri gegn forseta Bandaríkjanna hafa verið margar, allt frá því snemma á 19. öld og fram til 2010. Meira en 30 tilraunir til að drepa sitjandi eða fyrrverandi forseta eða kjörinn forseta hafa verið gerðar síðan snemma á 19. öld.
Fjórir sitjandi forsetar hafa verið drepnir, allir með byssuskot: Abraham Lincoln (1865), James A. Garfield (1881), William McKinley (1901) og John F. Kennedy (1963).
Að auki hafa tveir forsetar særst í morðtilraunum, einnig með byssuskoti: Theodore Roosevelt (1912; fyrrverandi forseti á þeim tíma) og Ronald Reagan (1981). Reynt var einu sinni að ráðast á Trump er hann var í forsetaframboði en viðkomandi var snúinn niður.
Hér koma athyglisverðar slóðir:
Hér er góður hlekkur en bendi á að ég er ekki sammála öllu: Nýtt sjónarhorn á morðmálinu
eða
Hér svo slóð sem sýnir tengsl Jack Ruby og mafíuna við CIA en hún notaði glæpasamtökin við skítverkin, að drepa andstæðinga:
Hér er CIA maður að viðurkenna þátttöku sína: Vitnisburður útsendara CIA
Mörg gögn um morðið hafa horfið á dularfullan hátt: Sönnunnargögn hverfa
Nýlegt myndband: Vitni hverfa
Mafíutengsl Kennedys (sem hjálpuðu hann til valda en urðu brjálaðir út í hann vegna þess að hann vildi ekki taka Kúbu með valdi en hún var leiksvæði þeirra. CIA hafði notað mafíuna til að reyna að drepa Castro.
Mafían virðist sjá almennt um launmorð CIA enda vanir að drepa andstæðinga sína í glæpaheiminum:
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | 16.4.2021 | 13:50 (breytt 7.8.2021 kl. 10:38) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Sæll Birgir.
Ég þakka þér fyrir stórgóðar færslur þínar og alveg sérstaklega þessa um morðsamsærið í Dallas.
Ég vona að þú getir fært þig enn nær nútímanum í pælingum þínum og t.a.m. litið á þann möguleika að vísbendingar og áform séu nú uppi að keyra allt hér á Íslandi í kaldakol, þannig að við neyðumst til að leita á náðir ESB og sækja á hnjánum um inngöngu til að forða þjóðargjaldþroti eða jafnvel eitthvað enn stærra samsæri á borð við vélabrögð um þriðju heimstyrjöldina eða eyðileggingu heilla þjóða eða heimsálfa.
Bara smá pæling.
Jónatan Karlsson, 17.4.2021 kl. 14:04
Sæll Jónatan og takk fyrir hrósið. Varðandi samtímasöguna og hvað er að gerast í nútímanum, þá eru allir hér á blogginu að fjalla um líðandi atburði og ekki mörgu við að bæta.
Ég er að klára þema, sem er ,,sagnfræði og sagnfræðingar" og hvernig þeir skrifa og eftir það ætla ég mér að demba mér í núið með ykkur hinum!
Nota bene, ég les allar þínar greinar og er 99,99% sammála!
Birgir Loftsson, 23.4.2021 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.