Hér má sjá gamalt varðskip Hvítabjörn sem sinnti landhelgisgæslu í kringum Færeyja.
Ráðdeild er góð og nýting hluta er góð en fyrr má rota en dauðrota. Öryggismál hafa ekki verið sterkasta hlið íslenskra stjórnvalda. Stjórnvöld hafa aldrei til fullnustu getað varið land eða borgara landsins gagnvart erlendum óvinum eða ótíðum glæpamönnum.Fjár- og mannaflsskortur lögreglunnar er efni í aðra grein.
Séð er eftir hverri einustu krónu sem fer í landhelgisgæslu á fiskimiðunum í kringum landið að best verður séð, samt hefur fiskurinn í sjónum haldið íslenska lýðveldið á floti síðan það var stofnað 1944.
Ekki er tímt að reka herflota (samt er Ísland eyja og á allt sitt undir að samgöngu við landið haldist sjóleiðis) heldur er erlendir flotar látnir sjá um hervernd á Íslandsmiðum.
Misvitrir stjórnmálamenn, oftar en ekki til vinstri í stjórnmálunum, berja sig á barm og gala um holt og hæðir að Ísland sé herlaust land sem getur ekki verið meir fjarri sanni. Hægri menn er heldur ekki betri og þegja þunnu hljóði og reyna sem mest að hunsa málaflokkinn.
Varnarsamningurinn við Bandaríkin frá 1951 er enn í gildi og sér bandaríski herinn; floti og flugherinn um að vernda íslenska fullveldið. Það væri ankanalegt ef Bandaríkjamenn tækju líka að sér landhelgisgæslu landsins og því hafa íslensk stjórnvöld drattast til þess að fara í vasana og taka upp nokkrar krónur til að reka Landhelgisgæsluna. Það er gert með lágmarksmannskap og eldgömlum varðbátum. Ægir sem sagður er vera í rekstri á vefsetri Landhelgisgæslunnar er til að minna smíðaður 1968! Týr sem er yngri og ,,aðeins" 46 ára gamall er að gefa upp andann.
Það er ótrúlegt hve lengi íslensk stjórnvöld reka ríkisskip. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson er t.a.m. smíðaður 1970 og fleiri skip eru komin á aldur. Þessi skip (og loftför) eru höfð svo lengi í rekstri að þau eru nánast ónýt, en mun hagkvæmara og ódýrara væri að smíða ný skip og kaupa nýjar þyrlur. Nýjar vélar þurfa minna viðhald og eyða minna eldsneyti og eru fljót að borga sig upp.
Alltaf kemur stóri bróðir, Íslendingurinn, illa út í samanburði við litla bróður, Færeyinginn. Færeyingar hafa bæði varðskip og danska flotann sér til varnar en það er efni í nýja grein að fjalla um landhelgismál Færeyinga.
Þyrlan Alouette sá um eftirlit úr lofti í kringum Færeyjar.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Löggæsla, Stjórnmál og samfélag | 6.3.2021 | 12:45 (breytt kl. 12:51) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.