Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025
Það voru þrír ræðumenn á fjöldafundinum 31. maí á Austurvelli en það er bara einn ræðumaður tekinn fyrir, Brynjar Barkarson. Hann virðist auðvelt skotmark, ungur maður sem lá ýmislegt á hjarta, og því tekinn fyrir. Sjá umfjöllun DV um Brynjar:
Brynjar hafnar því að bera nasistatölu á bakinu Kærasta min fekk þessa treyju i afmælisgjöf
Dæmigerð aðferð fjölmiðla til að taka einstaklinga niður er að kast skít á vegg og sjá hvað situr eftir eins og Kaninn orðar þetta. Og tengja viðkomandi við slæman málstað, eins og gert var við forsvarsmann Ísland - þvert á flokka, með að láta hann segja í fyrirsögn: "Við erum engir rasistar" og þannig tengja viðkomandi ómeðvitað við slæma málstaðinn.
Sama aðferð var beitt á Brynjar. Manngarmurinn fékk íþróttabol frá kærustu sinni og allt í einu var bolurinn orðinn að nasistabol með nastistatölu. Bolurinn var hins vegar merktur "Bjarnadóttir" eins og sjá má af myndum og Brynjar var þar með greinilega að segja satt. Hvernig er hægt að tengja tölu á íþróttabol við nasistma er ráðgáta.
Tölur um fjölda þátttakenda á fjöldafundinum. Þær eru á reiki en bloggritari tók eftir að lögreglan var með dróna yfir Austurvöll og hefur því auðveldlega getað kastað tölu á fjöldann. Hún segir að hátt í þúsund þátttakendur hafi verið á svæðinu en erfitt er að dæma um það, því Austurvöllur var stútfullur af fólki, margt á kaffihúsum eða á röltinu eða á þessum fjöldafundi.
DV og fleiri fjölmiðlar hafa dregið upp þá mynd að þetta sé bara hálfgerður hópur rugludalla en bloggritari var þarna og eins og segir í annarri grein um fundinn, var þarna hnotskurður af íslensku þjóðinni.
Fólk þorði að mæta, vitandi að ef til vill muni No border Iceland (geta ekki einu sinni skrifað á íslensku eða mótmælt á íslensku) beita ofbeldi. Sem betur fer kom ekki til þess en reynt var að trufla með sírenuvæli.
Samkvæmt könnun Mbl. birt í dag, er meira en 60% þjóðarinnar komin með nóg af opnum landamærum og vill a.m.k. halla landamærahliðinu. Meira en 60% telja of marga fá hér hæli
En fyrirstaðan er mikil, innan kerfisins, sbr. brottrekstur lögreglustjórans á Suðurnesjum, woke fréttamenn (útskrifaðir úr woke Háskóla Íslands) og aðgerðarsinnar af vinstri væng sem eru háværir og hafa hrætt ráðamenn til hlýðnis.
Þetta fólk sem mætti á Austurvöll sýndi í verki hugrekki sitt. Það þarf nefnilega átak að fara af stað og skunda niður á Austurvöll. Þetta gæti verið upphafið að viðvarandi mótmælum eins og nú tíðkast víða um Evrópu. Fólk finnst ráðamenn sem eiga að vera fulltrúar þjóðarinnar, hafi skilið það eftir, ekki sinnt öldruðum, öryrkjum og aðra hópa sem standa höllum fæti, en lagt forgang í móttöku fólks utan úr heimi sem hefur ekkert gert fyrir íslenskt samfélag. Með öðrum orðum, fólk finnst rangt gefið og það skilið eftir á blautri snúru.
Bloggar | 2.6.2025 | 14:11 (breytt kl. 14:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fréttaflutningur fjölmiðla af fjöldafundinum á Austurvelli laugardaginn 31. maí, er ekki upp á marga fiska. Dæmi: Vísir birtir mynd af forgöngumanni mótmælanna sem sýnir hann með svipgrettu undir fyrirsögninni: "Við erum engir rasistar"! Svo kunna blaðamenn ekki einu sinni að stafa rétt en greinin er morandi af málfræðivillum.
Byrjum á DV sem er sýnna verst. þar er birt grein sem ber titiilinn: "Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima - Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning." Rýnt í ræðu Brynjars sem hjólaði enn á ný í múslima Samsæriskenningar, Tyrkjaránið, vistarbandið, sjóræningjar og íslensk menning
Að sjálfsögðu er allt illt lagt út af ræðu Brynjars sem talaði blaðalaust og frá hjartanu eins og aðrir ræðumenn gerðu. Farið er ýtarlega í ræðu Brynjars og klikkir ritstjórn DV á að segja: "Eins og áður gerði Brynjar enga tilraun til að færa rök fyrir staðhæfingum sínum og óljóst er hvað á hann við með þess alhæfingum og orðinu "sjóræningjar"."
Bíðum nú aðeins hæg, þetta er ræða á almennum mótmælafundi en ekki vísindaráðstefna stjarneðlisfræðinga með nýjustu vísinda uppgötvun með sönnunarbyrði. Ekki veit bloggritari hvað er átt við með "sjóræningjar" en hvernig væri að spyrja?
Tökum eina samsæriskenningu Brynjars skv. DV fyrir, fjöldi erlendra glæpamanna í íslenskum fangelsum. Tölur frá fangelsismálastofnun. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá árinu 2024 voru erlendir ríkisborgarar 33% þeirra sem afplánuðu dóm innan og utan fangelsa á Íslandi, sem er hæsta hlutfall sem mælst hefur hér á landi.
Þessi þróun hefur verið stigvaxandi á síðustu árum:
Árið 2021 voru erlendir fangar 17% af heildarfangafjölda.
Árið 2022 hækkaði hlutfallið í 21%.
Hver er með þessar heimildir? Sjálft DV! Hlutfall erlendra fanga aldrei verið hærra hér á landi (2024)
Þetta er geisi hátt hlutfall þegar haft er í huga að útlendingar eru aðeins 80 þúsund af 383K+. íbúum landsins. Þetta segir okkur að misjafn sauður slæðist hingað inn til að fremja afbrot. Reyndar segir þetta okkur að erlendu glæpamennirnir eru ekki fleiri en þetta er sú staðreynd að þeir fljúga hingað til Íslands til að fremja glæpi og fljúga strax á braut. Aðrir taka við og halda áfram. Þess vegna næst ekki nema í hluta þeirra erlendu glæpamanna sem fremja glæpi á Íslandi. Þjófahópa, vændiskvennahópar og fleiri hópar staldra stutt við en fremja glæpi á þessum stutta tíma sem þeir eru hérlendis.
Og aðeins til að staðreynda kanna tölur sem DV kemur með, þá segir fjölmiðillinn að það séu aðeins 1300 múslimar á Íslandi. Þó að þessi tala gefi vísbendingu um fjölda múslima á Íslandi, þá eru ekki allir múslimar skráðir í formleg trúfélög. Rannsóknir frá öðrum löndum benda til þess að aðeins um 2025% múslima séu skráðir í slík félög. Ef gert er ráð fyrir svipuðu hlutfalli á Íslandi, gæti raunverulegur fjöldi múslima verið á bilinu 5.0006.500 einstaklingar.
En ritstjórn DV var greinilega á móti þessum fjöldafundi Íslendinga, það er nokkuð ljóst. Flestum er ljóst að fjölmiðlar yfirhöfuð, líka íslenskir, eru ekki hlutlausir. Þeir starfa eftir ákveðinni hugmyndafræði, annað hvort eigenda eða ritstjóra. Engin furða að traust almennings til fjölmiðla er lítið. Sem betur fer hefur almenningur valkosti í leit að upplýsingum. Almenningur er almennt fullfær um að ráða við "samsæriskenningar" sem það kemst í tær við, m.a. líka frá fjölmiðli eins og DV sem er með "fréttir" af fljúgandi furðuhlutum (UFO) vikulega!
Bloggar | 1.6.2025 | 13:48 (breytt kl. 16:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020