Svarið er já. Það er í raun auðvelt að fá íslenskan ríkisborgararétt miðað við margar aðrar þjóðir.
Hér kemur rökstuðningur fyrir því mati. Engin krafan er gerð um þekkingu á íslenskri stjórnskipan, sögu eða menningu, sem margir myndu telja vera sjálfsagðan hluta af ríkisborgararétti.
Tungumálaprófið er aðeins á A2B1-stigi, sem er lægra en það sem íslensk börn hafa lokið í 7. bekk. Það þýðir að manneskja getur orðið ríkisborgari með grunnskilning, sem jafnvel myndi ekki duga í grunnskólastarfi.
Svo er gerð skilyrði um búsetu tíma (7 ár) sem er stuttur miðað við að fá full þátttökuréttindi í þjóðríki með eigin menningu, sögu og tungu. Og undanþáguleiðin um Alþingi gerir mögulegt að sniðganga venjulegt umsóknarferli með stuðningi þingmanna.
Afleiðingar veikra krafna er að samfélagsleg þátttaka verður takmörkuð þegar ríkisborgarar hafa takmarkaðan skilning á samfélaginu sem þeir fá að kjósa í.
Tungumálakunnátta nægir ekki til að taka virkan þátt í umræðu, fjölmiðlum eða menntun barna.
Skortur á menningarlægri aðlögun fólk getur orðið ríkisborgari án þess að hafa neina hugmynd um sögu þjóðarinnar eða hlutverk Alþingis.
Ójöfnuður gagnvart íslenskum börnum t.d. þurfa þau að læra íslensku í 10 ár en útlendingur getur tekið einfalt próf og fengið ríkisborgararétt.
Lengja lágmarksbúsetu í 15 ár, nema umsækjandi hafi sýnt fram á djúpa samfélagsþátttöku, vinnu, og íslenskukunnáttu (C1-stig eða hærra).
Skylda próf í íslenskri sögu, stjórnskipun og menningu, svipað og í Bandaríkjunum eða Kanada.
Strangari staðlar um tungumálakunnáttu, sem miða við raunverulegan lesskilning, röklega tjáningu og þátttöku í samfélagslegri umræðu.
Hvað má betur fara?
Endurskoðun á þingleiðinni, þar sem ríkisborgararéttur veittur af Alþingi ætti að krefjast sömu lágmarksskilyrða? Já! Og í raun ætti Alþingi ekki að koma nálægt ríkisborgara veitingu. Mat og veiting ætti að vera í höndum sérfróðra manna, nefndar eða stofnunar sem fer eftir lögum! Sem Alþingi sjálft sniðgengur oft á tíðum við veitingu ríkisborgararéttinda.
Afturköllun ríkisborgararéttar á Íslandi
Á Íslandi er það nánast ómögulegt að afturkalla ríkisborgararétt, jafnvel þótt einstaklingur gerist sekur um alvarlega glæpi, hryðjuverk, eða sýni fullkomna óvirðingu gagnvart samfélaginu.
Þegar ríkisborgararéttur hefur verið veittur, er hann talinn óafturkræfur, nema hann hafi verið fenginn með fölsuðum upplýsingum eða svikum.
Það er engin heimild í íslenskum lögum til að afturkalla ríkisborgararétt á grundvelli hegðunar eftir að rétturinn er veittur sama hversu alvarleg brotin eru. Það átti að gera bragðabót á þessu en vegna afburðalélega þingstjórnun, þingi dróst fram í júlí og flest frumvörp döluðu uppi og urðu ekki að lögum, þá varð hið veiklulega frumvarp um afturköllun alþjóðlegrar verndar vegna glæpa ekki að lögum.
Lokaorð
Góður ríkisborgari er ekki aðeins lagaleg staða heldur siðferðileg og samfélagsleg ábyrgð. Það ætti að vera réttur ríkisins að endurskoða ríkisborgararétt ef hann reynist veittur einstaklingi sem reynist ófær eða óviljugur til að uppfylla lágmarks skyldur við samfélagið. Það vantar úrræði gegn afbrotamönnum og þjóðaröryggishættu sem hafa fengið ríkisborgararétt.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 31.7.2025 | 10:10 (breytt kl. 10:15) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Einfalda svarið er já. Það er marg búið að sanna það,að eistaklingar og heilu fjölskyldurnar hafa fengið Íslenskan ríkisborgararétt, þrátt fyrir að útlendingastofnunin hafi sinnjað þeim og vísað þeim úr landi. Það er bara hringt í einhvern raðamann sem reddar málunum fyrir þetta fólk með einu símtali. Útlendingastofnunin er búin að eiða mánuðum saman með oherylegum kostnaði, en það er ekkert tekið mark á þeim. Spillingin og aðgerðarleysi er ekki nokkru lagi líkt. Allt þetta er á storkostnað skattgreiðanda í landinu.
Haraldur G Borgfjörð, 31.7.2025 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning