Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið

Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið. Íslendingar vita bara ekki af því. Í Frakklandi eru lýðveldin fimm.  Fjórða lýðveldið var frá 1946-1958. Þekkt fyrir pólitíska óstöðugleika og margra ríkisstjórna skipti. Féll vegna vaxandi krísu í Alsír og öðrum nýlendum: Charles de Gaulle kallaður til valda.

Fimmta lýðveldið hófst 1958 og stendur rétt svo á fótum í dag. Stofnað af Charles de Gaulle með nýrri stjórnarskrá sem færði forsetanum miklu meiri völd en áður. Enn í gildi í dag. Stjórnskipan þess er hálf-forsetahyggja (semi-presidential system), þar sem forseti og forsætisráðherra deila framkvæmdarvaldi (og íslenska stjórnarskráin gerir einnig en aldrei hefur verið farið eftir því). Guðmundur Franklín ætlaði að reyna að láta reyna á þetta forsetavald en hann fékk ekki kjörgengi).

Íslenska lýðveldið var vanskapaður frá upphafi. Það vantar t.d. fullmótaða stjórnarskrá sem hæfir nútímanum. Þrískipting valdsins komst aldrei til framkvæmda. Framkvæmdavaldið veður á skítugum skóm yfir Alþingi og ráðuneytisstjórar stjórna landinu dags daglega.

Endaleg lok lýðveldisins er þegar bókun 35 kemst til framkvæmdar og innganga Íslands í ESB - með góðu eða illu. Skessustjórnin er þó ekki meira trúuð á að Íslendingar láti glepjast, að þjóðar atkvæðisgreiðslan á að vera í lok kjörtímabilsins. Því þegar þjóðin hafnar ESB, verður stjórnin ekki starfshæf! 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvernig væru það endalok lýðveldisins ef lagaregla sem styrkir réttarstöðu almenna borgara kæmist til framkvæmdar?

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2025 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband