Hæstu skattar á byggðu bóli eru á Íslandi. Þrátt fyrir það sér sósíalistastjórnin sem nú er við völd ástæðu til að leggja meiri skatta á borgara landsins, fyrirtæki og ferðamenn. Það á að skattleggja sjávarútveginn frekar, það á að skattleggja ferðaþjónustan frekar og það á að skattleggja borgaranna frekar með innviðasköttum. Fyrir eru ofurskattar.
Athuga verður að skattlagning er ákveðin valdbeiting. Unnið fé borgarans sem hann vinnur sér inn er tekið að hluta til með valdboði. Skattlagning verður því að vera sanngjörn og réttlát. Þetta er kjarni málsins. Hvað er sanngjörn skattlagning? Kíkjum á rök meistarans, Milton Friedmans.
Friedman segir að skattar dragi úr hvata til vinnu, sparnaðar og fjárfestinga. Háir skattar fækka hvötum til að vinna og frumkvöðlastarfsemi. Þeir draga úr hvata fólks til að taka áhættu eða vinna meira. Friedman líkti skattheimtu við: "A system that rewards doing nothing and punishes doing something."
Svo eru það hin rökin að skattféið sé ekki vel varið af hálfu ríkissins. Hann segir að ríkisvaldið eyði alltaf verra en einstaklingurinn. Þekktasta setning hans á þessu sviði er:
"There are four ways to spend money"
1. You spend your own money on yourself → most efficient.
2. You spend your own money on someone else → less careful.
3. You spend someone elses money on yourself → wasteful.
4. You spend someone elses money on someone else → worst of all (government).
Með öðrum orðum: Ríkisvaldið eyðir peningum með minni skilvirkni en markaðurinn.
Stjórn Trumps er að fara eftir stefnu Friedmans hvað varðar skattastefnu en ekki í tollamálum. Kem inn á það í næsta pistli. En Trump stjórnin boðar skattalækkanir sem Friedman væri hrifinn af.
Friedman segir að skattalækkanir eru efnahagsleg örvun en ekki útgjaldatap fyrir ríkið og væri leið til að virkja markaðinn.
Þegar einstaklingar fá að halda meira af eigin peningum, verður til fjölgun starfa og aukin framleiðsla, sem stundum leiðir til meiri tekna til ríkisins til lengri tíma.
Hugsuðurinn Thomas Sowell er sammála Friedman að mestu leyti. Hann segir að skattar dragi úr virkni efnahagslífsins, sérstaklega hjá frumkvöðlum og millistétt. Sowell segir að há skattlagning refsi vinnusemi og umbunarsöm hegðun. Líkt og Friedman telur hann að ríkið skekki eðlilegan hvata með því að hækka skatta og flytja auð yfir í óskilvirka opinbera geira.
Sowell segir að ríkisvaldið valdi oft fleir vandamálum en það leysir. "The first lesson of economics is scarcity. The first lesson of politics is to ignore the first lesson of economics." Hann gagnrýnir harðlega "lausnir" stjórnvalda á efnahagsvanda sem oft leiða til meiri skuldasöfnunar og tortryggni gagnvart markaðnum.
Lág skattheimta + eignarréttur = siðferðileg grundvöllur frelsis!Sowell telur að efnahagslegt frelsi sé forsenda pólitísks frelsis og það fæst aðeins ef fólk fær að halda því sem það vinnur fyrir.
Sowell og Friedman telja báðir að skattkerfi ætti að vera einfalt, fyrirsjáanlegt og hvetjandi ekki refsing eða jafna niður. Þetta munu íslenskir og erlendir sósíalistar aldrei skilja.
Flokkur: Bloggar | 17.4.2025 | 10:27 (breytt kl. 18:51) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning