70 þjóðir eru að endursemja sín tollamál við Bandaríkin - en hvar er Ísland?

Trump hefur ítrekað í viðtölum og á blaðamannafundum að "fyrstur kemur, fyrstur fær" stefnu sína. Það þýðir að þeir sem koma fyrstir fá besta samninginn. Þeir sem koma síðast lélegustu kjörin. En það er ekki nóg að koma, í sumum tilfellum verður ekki endursamið og í öðrum verður það gert.

En hvað er Ísland að gera til að tryggja stöðu sína og koma í veg fyrir 10% tolla? Ekkert heyrist af því opinberlega. Hefur enginn hringt í Hvíta húsið? Er íslenski sendiherrann starfi sínum vaxinn? Hver er núna sendiherra? Samningsstaða Íslands ætti að vera sterk, því Bandaríkjamenn flytja meira inn en Íslendingar út til Bandaríkjanna. Varnarsamningurinn er mikilvæg samnings tilboð.

Þessi áhættusama tollastefna virðist vera að borga sig. Aðeins 3 þjóðir hafa boðað tollastríð við BNA.  Held að Kína sé í þeim hópi. 

Kínverjar eru aðalskotmark Trumps. Viðskiptahallinn er stjarnfræðilega hár, Kínverjum í vil. Það eru tollar á bandarískar vöru og hafa alltaf verið. Þeir eru kannski ekki háir, 10-20% en það er ekki það sem veldur vanda. Kína hefur beitt ýmsum tæknilegum viðskiptahindrunum á bandarískar vörur, sérstaklega í tengslum við viðskiptadeilur milli landanna. Þessar hindranir, oft nefndar óbeinar viðskiptahindranir, fela í sér stjórnsýslulegar tafir, auknar skoðanir og kvótakerfi sem takmarka innflutning ákveðinna vara. Rannsóknir sýna að á árunum 2018 og 2019 voru slíkir óbeinir tollar ábyrgir fyrir um 50% af heildarsamdrætti í innflutningi Kína frá Bandaríkjunum.

Ef Kínverjar ætla að fara í viðskiptastríð við Bandaríkin, munu þeir sannarlega tapa því.  Margar af þeim vörum sem áður voru framleiddar í Kína eru nú framleiddar í ríkjum eins og Víetnam. Þessi þróun hófst fyrir löngu og mun halda áfram, sama hvort tollastríð verður eða ekki. Framleiðslukostnaður er orðinn of hár í Kína. Annað sem ógnar framleiðsluyfirburði Kína er gervigreindarvæðingin og vélmennavæðingin. Ódýr vinnuafl, sama hversu ódýrt það er, getur ekki keypt við vélmenni sem vinna allan sólarhringinn kauplaust.  Það er sannarlega að verða iðnbylting (sú fjórða) og hún er ekki hagstæð þjóðum sem bjóða upp á þrælavinnuhald í alþjóðasamkeppni.

Versta fyrir Kína er að vörur sem þeir eru að selja til Bandaríkjanna má kaupa annars staðar. Hún kann að vera dýrari í upphafi en samkeppnin mun lækka þessar vörur á endanum. Framleiðslan verður annað hvort komin til Bandaríkjanna eða annarra ríkja sem hafa hagstæð kjör við Bandaríkin.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er nefnilega málið Birgir, hvar er Ísland?????? Og svo þykja Forsætis- og Utanríkisráðherra vera að vinna að því sem kemur BEST fyrir land og þjóð???  Eru þær svo "STROPAÐAR" að halda að hagsmunum Íslands sé best borgið með einhverju ESB dekri???????

Jóhann Elíasson, 9.4.2025 kl. 22:28

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Þær eru að leita sér að íbúum í Brussel. Samkvæmt síðustu skoðunakönnun er fylgið við aðild að ESB hærra en áður. En þá er ekki tekið með inn að ekki er búinn að opna aðalpakkann, sjávarútveginn. Hvað segir fólk þá?

Birgir Loftsson, 10.4.2025 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2025

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband