Engin jarðtenging við gerð Fossvogsbrúar?

"Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru hafnar. Bygging hennar er hluti af samgöngusáttmálanum. Umferð um brúna verður ætluð borgarlínu, gangandi og hjólandi vegfarendum." segir á RÚV og áætlaður kostnaður er 8 milljarðar króna, slóð: Framkvæmdir hafnar við Fossvogsbrú

Í sjálfu sér er frábært að það eigi að koma brú yfir Fossvoginn, gott fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæinu en verðmiðinn er galinn. Hann er galinn vegna þess að það hefði mátt gera ódýrari brú, jafnvel helmingi ódýrari.  Þessi brú mun fara yfir kostnaðaráætlun á endanum, þótt jarðvegsfyllingin reynist ódýrari í útboði.  Annað sem er galið við þessa brú er að hún er aðeins ætluð fáum! Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, segir að reiknað sé með að um tíu þúsund manns muni fara um brúna daglega sem eru loftkastala draumar. Gæti trúað því að 10 þúsund manns fari yfir brúna ef almenn umferð væri einnig leyfð en svo er ekki. Það þótt gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað á Kársnesinu og mikil íbúabyggð risið.

Fossvogsbrú mun reynast flotræfilsbrú, líkt og nýja Öflusárbrú sem kostar hátt í 20 milljarða króna (á endanum). Það má alveg hanna ljót mannvirki, ef þau virka og litlir peningar til.

Úr því menn eru á annað borð byrjaðir að brúa voga, þá væri ágætt ef stjórnmálamenn á höfuðborgarsvæðinu myndu kíkja á landabréfakort við og við. Þá myndu þeir sjá ef vegur yrði lagður frá gatnamótum Engidals, Hafnarfirði, yfir í Gálgahraun, þaðan í Bessastaðanes (með landfyllingu eða stutta brú) og þaðan yfir í Kársnes útnes, og þaðan til Fossvogsbrúar, væri kominn hringvegur. Rétt eins og hugmynd Hrafns Gunnlaugssonar var er hann kynnti með eftirminnilegum hætti í sjónvarpsþætti. Allar umferðastíflur frá Hafnarfirði yfir í Kringlumýrabraut væru úr sögunni. En það yrði að byrja á mislægum gatnamótum í Engidal sem bloggritara skilst eigi að gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Blessaður vertu, þessu brú kostar bara 100 milljónir.  Kannski helminginn af því.  Restinni er stolið.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.1.2025 kl. 16:52

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Jep.

Birgir Loftsson, 18.1.2025 kl. 20:12

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hélt að það væri markmið að fækka einbreiðum brúm en ekki fjölga þeim. Svo vil ég nota tækifærið og endurtaka einu sinni enn: Göng en ekki brú! :)

Guðmundur Ásgeirsson, 18.1.2025 kl. 20:41

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Ég er fylgjandi þessari brú, því hún er betri en engin brú. Svo má vonast eftir því í náinni framtíð að vitiborinn stjórnmálamaður komist til valda á höfuðborgarsvæðinu og opni hana fyrir alla umferð.  Ætli göng sé nokkuð dýrari? Þessi brú kostar á við 6 km löng jarðgöng.

Birgir Loftsson, 19.1.2025 kl. 11:21

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi ummæli um göng eiga reyndar frekar við um Sundabraut, það er enn óljóst hvort hún verði í göngum eða á brú.

Guðmundur Ásgeirsson, 19.1.2025 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Apríl 2025

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband