Afsakanir Sjálfstæðismanna...og Flokks fólksins manna

Nú eftir kosningar eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins byrjaðir að afsaka slæmt gengi. Það hefur hins vegar verið að reitast af því síðan Bjarni Benediktsson tók við flokknum en ekki er minnst á það.

Það er grein hérna á blogginu sem heitir "Helreið Bjarna Benediktssonar" eftir Friðrik H. Guðmundsson sem lýsir ágætlega forystuleysi og hugmyndaleysi flokksformannsins. Helsta "afrek" Bjarna var að geta ekki komið í veg fyrir klofning flokksins og myndun Viðreisnar. Bloggritari hefur alltaf fundist BB vera búríkrati, væri frábær ráðuneytisstjóri eða sendiherra (sem hann endar líklega sem nú á vormánðuðum). Formaður þarf líka að vera leiðtogi. Það geta allir orðið formenn (þó ekki nema í húsfélagi) en fáir hafa leiðtoga hæfileika og geta leitt stjórnmálaflokk.

Af hverju þetta stöðuga fylgistap? Jú á Útvarpi sögu sagði Sjálfstæðismaður að flokkurinn hafi ekki verið í nógu góðu talsambandi við kjósendur! Og flokkurinn hafi unnið sigra í slæmu ástandi.  Hann sagði að flokkurinn væri í eðli sínu "frjálslindur íhaldsflokkur"! Hvað er eiginlega það? Trúi á frelsi einstaklingsins en undir leiðarljósi kristilegra gilda. Og hann sagði flokkurinn hafi tapað fylgi til þriggja flokka, Miðflokkinn, Flokk fólksins og Viðreisnar.

Til Miðflokksins hafi flokkurinn tapað fólki sem er lengra til hægri og íhaldsamara í menningarmálum. Til Flokks fólksins hafi hann tapað öryrkja og aldraða og til Viðreisnar hægri sinnað viðskiptafólk og Evrópusinna.

Þetta segir manni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki staðið í fæturnar í neinum málaflokki sem skiptir máli! Þetta er nefnilega vandamál flokksins, hann hefur svikið öll kosningaloforð í verki.

Það er ekki nóg að tala, það verður að sýna stefnuna í verki. Það gerði Miðflokkurinn svo sannarlega síðan hann var stofnaður og ein ástæðan þess að ekki einu sinni var reynt að fá hann í stjórnarmyndunar viðræður. Viðreisn og Samfylkingin vissu sem er, að ekki væri vikið af sterkri stefnu í útlendingamálum, svo eitthvað sé tekið.

Þessir flokkar vissu líka að formaður FF vildi fara í ríkisstjórnarsamstarf og það væri nauðsyn. Þarna talaði formaðurinn af sér, því að samkvæmt stjórnarsáttmálanum er gefið ansi mikið eftir af hálfu flokksins og formaðurinn sagði að kosningaloforð væru markmið, en ekki eitthvað væri staðið við þegar komið er í ríkisstjórn, því að margflokka ríkistjórnar kerfi er við lýði á Íslandi. En þá hefði flokkurinn getað sagt nei, við förum ekki í ríkisstjórn nema við náum 450K kr. markinu.

Þetta snýst ekki um að komast í ríkisstjórn, heldur að standa vörð um þau gildi sem flokkurinn heldur fram og kjósendur hans halda að hann standi fyrir. Flokkur fólksins voru andstæðingar bókunar 35 fyrir kosningar en nú á að gleyma stóru orðin fyrir kosningar. En netið gleymir ekki.

Hvernig verður flokkurinn í útlendingamálunum? Hælisleitenda málaflokkurinn er svo umfangsmikill vegna opinna landamæra, að kostnaðurinn hleypur á tugi milljarða á ári og kemur úr tómum ríkiskassa. FF hefur verið nokkuð harður í orði (eins og Sjálfstæðisflokkurinn) gagnvart opnum landamærum, vegna þess að hann veit að velferðakerfið veikist þegar þúsundir manna koma inn í landið árlega sem þarf að þjónusta. Sú þjónusta verður tekin af skjólstæðingum FF ef það er ekki bætt í kerfið. Það hefur hins vegar ekki lagast, ef eitt hvað er, versnað, því engir peningar eru til. Reynið bara að fá tíma hjá heimilislæknir eða fara inn á bráðamóttöku Landsspítalans eða fara á 2 ára biðlista eftir aðgerð. Eða fá inn á hjúkrunarheimili eða fá mannsæmandi framfærslueyri frá hinu opinbera.  Allt í skötulíki á Íslandi og það í einu dýrasta ríki Evrópu með háa verðbólgu, hátt matvælaverð, húsnæðisverð og hátt verðlag yfir höfuð. Svisslendingar eru meiri segja ódýrari en þar er kaupmátturinn meiri.

Sjálfstæðismenn og menningarmál er annar kapituli fyrir sig. Hægri menn, Sjálfstæðisflokkurinn einn áður en Miðflokkurinn kom til sögunnar, hefur ekki tekið slaginn við vinstri menn. Ekki frekar en hægri menn í Bretlandi og í Bandaríkjunum, áður en Trump kom til sögunnar. Hægri menn eru hins vegar vakandi í Evrópu og eru byrjaðir að taka þátt í menningarstríðinu. Þarna verður Sjálfstæðisflokkurinn fara inn í slaginn af hörku, eins og Miðflokkurinn gerir sannarlega, ef hann ætlar að auka við fylgið.

Ekkert er ómögulegt og ef flokkurinn ætlar að lifna við áður en hann verður hundrað ára 2027, verður hann að hætta að vera "frjálslindur íhaldsflokkur" og fara lengra til hægri við miðjuna og fara upp við hlið Miðflokkins. Þá mun fylgið tínast til baka og Viðreisn hefur þá sýnt í verki (væntanlega) að þangað er ekkert að leita. Að sá flokkur er í eðli sínu vinstri flokkur enda flokksmenn fleiri en fyrrum Sjálfstæðismenn.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Bjarni Ben er svo úr tengzlum, að han hélt í alvöru að hann væri að klekkja á komandi stjórn með því að leyfa hvalveiðar.

Ef hann hefði gert þetta *fyrir kosningar* hefði flokkurinn fengið auka prósent, eða tvö.

Ég spái flokknum ekki framtíð.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.1.2025 kl. 13:31

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Frábær greining.

Vandamál ímyndunarhægrifólks á Stórastamörlandi er að það lítur á "flokkinn sinn" sem heilög vé, og sér ekki - frekar en Breskir og Amerískir flokksbræður - að flokkur er sósíalismi.

Við höfum bent á í fáein ár, að eina leiðin til að virkja og rækta hægri stefnu á landinu, er að endurstofna Íhaldsflokks Jóns Þorlákssonar og rækta þau gildi sem hann lýsti svo snilldarlega í ræðu og riti.

... en Ósjálfstæðismenn eru gúngur, sósíalistar, meðalmennskupakk, og aumingjar. Þeir þora ekki að sýna neitt gildismat í verki, og afa látið öfga-kommúnisma hinna flokkanna máta sig með belgingi og fyrirsögnum.

Bestu kveðjur.

e.s. Sjáðu bara hvað hægt er að skrifa vel þegar hernaðarblætið er skorið frá cool

Guðjón E. Hreinberg, 8.1.2025 kl. 15:17

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Flokkur fólksins fékk það inn í stjórnarsáttmála að lögum um almannatryggingar verði fylgt þannig að fjárhæðir bóta taki hækkunum í það sem er hærra af launavísitölu eða vísitölu neysluverðs, en ekki það lægra eins og hafði tíðkast undir yfirráðum Sjálfstæðisflokksins og var lögleysa.

Ég bíð spenntur eftir því að sjá hvenær á kjörtímabilinu þessi breyting til löghlýðni muni leiða til þess að lágmarksbætur eftir skatta hækki yfir 450.000 kr. markið.

Guðmundur Ásgeirsson, 8.1.2025 kl. 18:25

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Takk fyrir innleggið allir þrír. Að vanda góðar athugasemdir. Er hræddur um á hundrað ára afmælinu 2027, verði flokkurinn kominn í hvítvoðungs stærð eða ellidauður. Ekki er um auðugan garð að gresja með næsta formann, bara Jón Gunnarsson er frambærilegur.

Birgir Loftsson, 8.1.2025 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband