Pólitískt landslag hefur sannarlega breyst á síðastliðnum áratugum. Hinn pólitíski ás, vinstri-hægri er varla lengur marktækur. Hvers vegna? Jú, flokkarnir eru með sparðatíning í sínum stefnuskrám, pínkulítið af vinstri, miðju og hægri stefnumálum. Erfitt er því að flokka flokkanna eftir hægri-vinstri línum.
Tökum dæmi. Flokkur fólksins. Hann er með dæmigerðar sósíaldemókratískar áherslur í velferðamálum en virðist vera harðlínuflokkur í hælisleitendamálum.
Sama gildir um Viðreisn. Stefnuskráin eru ekki nógu skýr. Bloggritari fylgist náið með íslenskri pólitík en á enn í fullt í fangi með að átta sig á stefnu flokksins. Jú, innganga í ESB er á stefnuskránni, en hvað annað? Það vantar að kynna stefnuna skýrara. En svo eru það flokkar sem eru afar skýrir í sínum stefnumálum, Samfylkingin, Miðflokkurinn og VG eru allt flokkar þar sem fólk gekk að vísu hvert stefndu. Mjög auðvelt að kjósa þessa flokka eftir vinstri-hægri ás.
Þessi óvissa endurspeglast í niðurstöðum kosninganna 2024. Fylgið dreifist mjög jafnt yfir þessa sex flokka sem urðu eftir á þingi. Bara ein skýr niðurstaða kom fram frá kjósendum; þeir höfnuðu harðlínu vinstri stefnu VG, Pírata og Sósíalistaflokk Íslands.
Hvort vildu kjósendur stefna til vinstri eða hægri ef litið er á fylgi Samfylkingarinnar (20,8%) og Sjálfstæðisflokksins(19,4%)? Munar aðeins rúmu einni prósentu á milli í fylgi. En ef við flokkum Flokk fólksins (13,8%) og Viðreisn (15,8%) sem demókratíska flokka, þá er niðurstaðan að við erum að fá vinstri stjórn í vinstri landi. Ef litið er á Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn (12,1%) sem einu hreinu hægri flokkarnir, eru hægri menn með 32% sem er ansi slappt frá sjónarhorni hægri afla í landinu. Kannski má túlka niðurstöðuna að fólk hafi ekki verið að kjósa til vinstri eða hægri, bara að fá miðju moð (Framsókn fékk á baukinn og er í skammarkróknum fyrir aðgerðaleysi og stefnuleysi á öllum sviðum) og leiðtoga sem það líkar við.
En svo er það aukaafurð þessara kosninga. Við erum farin að eltast við ESB og bókun 35 verður að líkindum lögum. ESB málið á dagskrá, þjóðinni að forspurðri. Ekki var þetta kosningamál og ESB flokkarnir lofuðu að málið (aðildarumsókn) færi ekki á dagskrá. Korteri eftir kosningar er sagt að málið fari í þjóðarkvæði.
Að lokum. Kjósendur í Bandaríkjunum og Evrópu eru að óska eftir skýra stefnu í öllum málum. Í efnahagsmálum, utanríkismálum og menningarmálum. Valkosturinn er skýr þar. Wokeismi eða íhaldsemi. Bandaríkjamenn kusu hefðbundin gildi og íhaldssemi. Kjósendur í Evrópu eru á sömu skoðun og eru að ýta sósíaldemókratískum flokkur frá völdum eftir áratuga einokun valda. Þeir leita til hægri, en ekki á Íslandi. Hvers vegna?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 30.12.2024 | 13:23 (breytt kl. 13:37) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Ja mandran sem oft er farið er með: Ísland er alltaf nokkrum árum á eftir. Kannski á hún við?
Rúnar Már Bragason, 30.12.2024 kl. 14:45
Held það líka Rúnar! Nema elítan hafi ákveðið að hunsa einu skýru skilaboð kjósenda, enga vinstri öfga. En svo var útkoma hægri aflana lítilborin.
Birgir Loftsson, 30.12.2024 kl. 18:43
Bókun 35 (eða frumvarp kennt við hana) var ekki kosningamál vegna þess að það er ekki kosningamál heldur einfaldlega nauðsynlegur liður í því að fylgja EES samningnum.
Svo má hafa skoðanir á því hvort eigi að gera það yfir höfuð en þá er hinn möguleikin bara að segja samningnum upp. Ég kannast ekki við að neinn flokkur hafi verið með það á stefnuskrá og heyrði enga kjósendur leggja áherslu á það.
Guðmundur Ásgeirsson, 31.12.2024 kl. 01:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning