Efnahagslegar afleiðingar valdatöku Trumps (líka fyrir Ísland)

Það eru ekki bara efnahagslegar afleiðingar af komandi valdatöku Trumps heldur líka pólitískar. Óvinaríki eins og Venesúela og Rússland hafa þegar óskað Trump til hamingju með sigurinn.

Snúum okkur að hræðsluáróðrinum sem óvinir Trumps eru þegar byrjaðir að predika. Þeir segja að með því að reka tugir milljónir ólöglegra innflytjenda úr landi, muni það skaða efnahag ríkisins. Þessi postular taka þá ekki með í myndina kosnaðinn af ólöglegum innflytjendum. 

Nú er leitað á náðir ChatGPT:

"Áætlaður heildarkostnaður á ári vegna ólöglegra hælisleitenda: 58-60 milljarðar dollara

Þessi heildarkostnaður inniheldur bæði beinan kostnað (heilsugæslu, menntun, löggæslu) og nokkurn óbeinan kostnað (t.d. samfélagsþjónustu, réttarmeðferð). Hins vegar er rétt að taka fram að þetta er gróft mat, þar sem ekki eru allir óskráðir innflytjendur hælisleitendur og ekki er allur kostnaður beint að rekja til mála sem tengjast hæli.

Hagnaður í tekjum

Á hinni hliðinni leggja innflytjendur án skráningar, þar á meðal hælisleitendur, til milljarða með sköttum, sérstaklega sölu- og eignarsköttum. Fjárlagaskrifstofa þingsins (CBO) áætlaði að að meðaltali greiði óskráðir innflytjendur um 10-15 milljarða dollara árlega í skatta.

Nettókostnaðaráætlun

Ef maður dregur frá áætluð skattframlög gæti nettókostnaður innflytjenda án skráningar, þar með talið hælisleitenda, verið á bilinu 45-50 milljarðar dollara á ári. Þetta er áætluð tala, mjög háð þeirri stefnu sem er til staðar og hvernig kostnaði er stjórnað á ríkis- og sambandsstigi." Tilvísun í ChatGPT endar.

Nú eru vinstrilingarnir farnir að predika að tolla- og efnahagstefna Trumps muni leiða til efnahagshruns. Þessi "snillingar" eru fljótir að gleyma seinustu valdatíð Trumps, þar sem efnahagurinn blómstraði og hörð tollastefna hans leiddi til gífurlegs hagvöxt í Bandaríkjunum, sögulega lága verðbólgu, orkuverð í lágmarki og dagvöruverð í lægstu hæðum.

Efnahagur Bandaríkjanna eftir skattalækkanir og verndatolla

Trump boðar skattalækkanir, það þýðir minni tekjur. Það eru nokkrar leiðir til að mæta tekjutapi fyrir ríkissjóð (sama lögmál gildir fyrir Ísland). Stækka þjóðarkökuna sem Trump ætlar að gera með því að gera Bandaríkin að mesta olíu- og gasríki heims. Það geta Bandaríkjamenn auðveldlega, því að þeir eiga mestu orkulindir heims og hvetur til innlenda framleiðslu aukningu á öllum sviðum.  Svo er það verndartolla stefna Trump sem vinstri menn hafa gagnrýnt harðlega en minnast ekki á að Biden tók ekki þessa tolla af þegar hann tók við völdum. Hann hélt þeim gagnvart Kína! Eru viðskiptin á milli ríkjanna eitthvað verri?

Keðjuverkun mun eiga sér stað. Fólk vill gleyma að orkan (sama hvaðan hún kemur) knýr efnahagslíf þjóðfélagsins. Íslendingar eru mjög heppnir að vera að mestu orku óháðir og geta treyst á innlenda orku. Ef Íslendingar þyrftu að nota erlenda olíu myndi það kosta þjóðfélagið tugir ef ekki hundruð milljarða króna árlega. Ef orkuverð er lágt, er allur fyrirtækjakostnaður lágur, það þýðir lægra vöruverð og hærri laun. Verðbólga helst lág og fjárfestingar í hámarki = þjóðarkakan stækkar.  Er ekki hagsældartímabil framundan ef friður kemst á og efnahagur blómstrar? 

Meira segja Íslendinga græða á þessari efnahagsuppsveifu Bandaríkjanna. Kíkjum á tollakjör Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Ísland hefur "Normal Trade Relations (NTR) duty rate" eða "Most Favoured Nation (MFN) duty rate" stöðu gagnvart Bandaríkjunum. Þetta þýðir að íslenskar vörur njóta lægri toll- eða tollfríðinda, til dæmis á drykkjarvörum, sem eru undanþegnar tolla samkvæmt þessum kjörum. Hins vegar þarf engu að síður að greiða sérstakan vörugjald eða áfengisgjald eins og innlendir framleiðendur í Bandaríkjunum, ef varan fellur undir slíka gjaldtöku.

Þetta stöðugildi tryggir Íslandi ákveðin efnahagsleg kjör í viðskiptum við Bandaríkin, sem er mikilvægt fyrir útflutningsaðila á ákveðnum vörumarkaði.

Áður en við látum tilfinningar okkar gagnvart persónunni Trump leggja þoku yfir skynsemi okkar, ættum við að hafa í huga að samskipti ríkjanna hefur verið gífurleg sterk og ná til seinni heimsstyrjaldar. BNA voru fyrst til að viðurkenna íslenska lýðveldið og hafa lagt sitt til íslensku þjóðarkökuna (Varnarlið var stór hluti af íslensku efnahagslífi um áratugaskeið). Bandaríkin hafa líka verndað okkur og sparað okkur herkostnað en án Bandaríkjanna hefðu Íslendingar neyðst til að stofna íslenskan her. Það væri því heimskulegt að móðgast og vinna gegn stjórn Trumps næstu fjögur árin; það er gegn íslenskum hagsmunum!


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Fyrir hvern dollar sem fer í að henda ólöglegu hyski úr landi sparar kaninn 2 dollara.

Lágmark.

Og það er bara byrjunin.

Þetta verður upphafið af mikilli gullöd, ef þeir taka sig ekki til og kjósa annað sett af kommúnistum yfir sig.

Og við fáum að horfa á, með okkar sett af kommúnistum eyðandi landi og þjóð, og getum bara öfundað þá.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.11.2024 kl. 21:21

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Já, eins og oft áður (eða alltaf), hefur þú rétt fyrir þér.

Birgir Loftsson, 8.11.2024 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband