Þeir flokkar sem skipta um föt eftir hver nýi eigandi eða stjórnandi er, eru ekki sannfærandi. Svo á við um Samfylkinguna.
Tökum þekkt dæmi: Samfylkingin var fylgjandi opnum landamærum, allir máttu sækja um hælisvist og voru forvígismenn Samfylkingarinnar þar fremst í flokki. Má þar nefna Helgu Völu Helgadóttur, sem rak harðan áróður fyrir þessari stefnu og gott ef hún vann ekki sem lögfræðingur fyrir hælisleitendur. Logi Einarsson var þá formaður.
En nú er kominn annar formaður, Kristrún Frostadóttir og boðar raunsæisstefnu í útlendingamálum. Útlendingastefnan á nú að vera nokkuð hörð. En er hægt að treysta því að flokkurinn fylgi formanninum eða flokkurinn standi við orð sín? Þegar menn eða flokkar eru ekki staðfastir í hugsjónum sínum og gildum, finnur fólk fljótt á sér að ekki sé hægt að treysta viðkomandi.
Annað dæmi eru skattar: Við getum treyst því að Samfylkingin elskar skatta og mun leggja meiri skatta á ef hún kemst til valda. Skattpíndir borgarar sjá þá fram á að fleiri krónur fari í götótta vasa skattayfirvalda. Þarna er Samfylkingin samkvæmd sjálfri sér.
Við getum einnig treyst því að bálknið þennst út, ríkissjóður rekinn með halla árlega og ríkisvaldið með krumlur sínar í hvers manns koppi.
Undir forystu Loga hallaðist flokkurinn til vinstri. Sú stefna naut ekki vinsælda hjá almenningi. Þá var skipt um formann og allt í einu hallast flokkurinn til hægri og nýtur vinsælda fyrir vikið. Er hægri krataflokkur. Er þar kominn upp að hlið Sjálfstæðisflokksins sem er einnig krataflokkur í núverandi mynd.
Hvort er það? Til hægri eða vinstri? Lokuð landamæri eða opin? Meiri skattar eða minni? Bálknið minnkað eða stækkað? Það þýðir ekki að vera eins og vindhaninn á Bessastaðakirkju, snúast eftir pólitískum vindi hverju sinni.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 22.10.2024 | 12:01 (breytt kl. 16:07) | Facebook
Nýjustu færslur
- Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum hafa áhrif á stríðið í Mi...
- Formaður Samfylkingarinnar berst við að gera flokkinn að hægr...
- Alþingis kosningarnar framundan - hvað er að vera Alþingismaður?
- Ákvörðunarfælni Íslendinga í gegnum aldir - vistarbandið
- Það er til betri aðferð en niðurdæling Co2 í berg
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Samfylkingin boðar ekkert annað en að viðhalda verðbólgu og háu vaxtastigi. Til að lækka hvor tveggja þarf aðhald, minnka útlát og helst lækka skatta. Nei Kristrún boðar að hækka skatta og eyða meiru - ávísun á hrun.
Rúnar Már Bragason, 22.10.2024 kl. 18:16
Allir flokkarnir gera bara það sama og þeri hafa alltaf gert. Kunna ekkert annað. Hafa ekki ímyndunarafl til þess að profa neitt nýtt.
Verst (eða kannski ekki) er að það er að koma heimskreppa, og ekkert af þessu liði hefur greind til þess að vinna í svoleíðis umhverfi.
Ásgrímur Hartmannsson, 22.10.2024 kl. 19:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning