Hugtökin "þingrof" og "starfsstjórn" eru bæði í íslenskri stjórnskipan og tengjast því hvernig þing og ríkisstjórn starfa þegar atburðir hafa leitt til slitanna á reglubundnu starfi Alþingis og ríkisstjórnarinnar rétt eins og nú gerðist nýverðis.
Þingrof er sú aðgerð þegar forseti Íslands rýfur Alþingi fyrir tímann, oft í tengslum við vantrauststillögu á ríkisstjórnina eða formaður eins stjórnraflokksins hendir inn handklæðinu eins og Bjarni Benediktsson gerði óvænt, en getur einnig komið til vegna sérstakra aðstæðna. Hér vegna taktískra mistaka Svandísar er hún las pólitíkina vitlaus og ætlaði að pönkast í Sjálfstæðisflokknum í vetur og slíta sambandinu á sínum eigin forsendum og fyrir kosningar. Þegar þing er rofið, er boðað til nýrra kosninga. Aftur að þingrofi. Þetta er eitt af völdum forseta samkvæmt stjórnarskránni, þó það sé í reynd oftast gert í samráði við forsætisráðherra og er gert núna.
Starfsstjórn er sú ríkisstjórn sem situr á meðan beðið er eftir myndun nýrrar ríkisstjórnar eftir kosningar eða þegar núverandi ríkisstjórn hefur sagt af sér eða fengið vantraust. Starfsstjórnin fer með vald og heldur daglegum rekstri ríkisstjórnarinnar áfram, en hún tekur ekki stórar ákvarðanir eða setur nýja stefnu. Hún sinnir eingöngu bráðnauðsynlegum málum þangað til ný stjórn hefur verið mynduð. Það er eins dæmi að einn stjórnarflokkanna neitar að taka þátt eins og VG gera nú. Og það að formaður VG viti ekki hvað starfsstjórn gerir. Guði sé lof að flokkurinn þurrkast væntanlega út í næstu kosningum.
Í framkvæmd hefur starfsstjórn takmarkaða pólitíska getu til að hrinda í framkvæmd nýrri stefnumótun, enda situr hún aðeins til bráðabirgða. Þingrof leiðir hins vegar oft til átakakenndra kosninga þar sem óánægja eða pólitísk átök liggja að baki. Menn munu þó reyna að setja saman fjárlög fyrir kosningar.
Að lokum. Það hlýtur að vera Íslandsmet hversu fljótt nýr formaður stjórnmálaflokks getur klúðrað stjórnarsamstarfi sem flokkurinn er í og leitt til þingrofs og að lokum til útrýmingu flokksins.
Forveri hennar, Katrín Jakobsdóttir hélt að hún væri öskubuska endurborin en hún einnig las vitlaust á pólitísku spilin og spilaði sig úr íslenskum stjórnmálum. Þessi flokkur skilur ekkert eftir sig nema rjúkandi rústir íslenskt efnahagslífs og kveikti um leið í hugsjónablaði sínu, t.d. gagnvart NATÓ. Stefnan var ekki beisin, vera á móti öllu og gera ekki neitt nema að útdeila peningum sem ekki eru til né leyft fyrirtækjum að búa til skattfé fyrir íslenskt samfélag. Þarf að minnast á Hval ehf í því sambandi eða byggðakvóta?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 17.10.2024 | 12:03 (breytt kl. 17:41) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
ÆTLI Svandís verði ekki sendiherra í Danmörku þegar hún dettur út af Alþingi.
Sigurður I B Guðmundsson, 17.10.2024 kl. 12:34
Guð forði okkur frá því Sigurður. Við verum komin í stríð við Dani eftir eins árs sendiherramennsku hennar!
Birgir Loftsson, 17.10.2024 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.