Málfrelsi Helga Magnús Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara er málfrelsi mitt og ţitt

Farin er af stađ undirskriftalisti á island.is til stuđnings Helga varasaksóknara. Máliđ er hiđ furđulegasta. Í síđasta mánuđi lagđi rík­is­sak­sókn­ar­inn Sig­ríđur J. Friđjóns­dótt­ir til viđ dóms­málaráđherra ađ Helgi Magnús yrđi leyst­ur frá störf­um tíma­bundiđ vegna ákćru einhverja samtaka út í bć, sem samanstanda af tveimur manneskjum.

Ţađ ţarf ađ vera rík ástćđa til ađ svipta mann atvinnufrelsi sínu og viđvćri. Embćttismenn eru sérstaklega varđir í stjórnarskránni gegn ofríki ríkisvaldsins, í ţessu tilfelli yfirmanns Helga, Sigríđi J. Friđjónsdóttur, sbr. 20 gr. stjórnarskrá Íslands.

Bloggritari er dálítiđ hissa ađ Helgi skuli ekki ákćra Sigríđi fyrir ađförina ađ honum sem embćttismanni. Enn furđulegri eru viđbrögđ dómsmálaráđherra sem ţarf ađ leggjast undir feld, rétt eins og örlög Íslands liggi undir ákvörđun hennar. Hún ţarf ađ leita ráđgjafar í fleiri vikur ţegar máliđ er auđljóst út frá sjónarhorni grunnlaga Íslands - Stjórnarskrá Íslands.

Tjáningarrétturinn er bundinn í stjórnarskránni. Hann hverfur ekki viđ ađ fara úr einu starfi í annađ. Allir borgarar, frá forseta Íslands niđur í korna barn hafa rétt til ađ tjá sig.  Minni hér á stjórnskipunarlög frá 1995. Ţar segir:

11. gr.

73. gr. verđur svohljóđandi:

Allir eru frjálsir skođana sinna og sannfćringar. Hver mađur á rétt á ađ láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verđur hann ţćr fyrir dómi. Ritskođun og ađrar sambćrilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiđa.

Tjáningarfrelsi má ađeins setja skorđur međ lögum í ţágu allsherjarreglu eđa öryggis ríkisins, til verndar heilsu eđa siđgćđi manna eđa vegna réttinda eđa mannorđs annarra, enda teljist ţćr nauđsynlegar og samrýmist lýđrćđishefđum.

Ţingskjal 142, 119. löggjafarţing 1. mál: stjórnarskipunarlög (mannréttindaákvćđi).  Lög nr. 97 28. júní 1995.

Síđan Alţingi var stofnađ 930 e.Kr. hafa menn getađ leitađ réttar síns vegna ćrumeiđinga fyrir dómstóla. Ţađ hefur ekkert breyst. Menn tóku ćrumeiđingar og heiđur sinn mun alvarlegra en í dag. En ţađ var ákveđinn feril sem menn ţurftu ađ fara í gegnum hjá dómstólum til ţess ađ hnekkja ćrumeiđingu. Helgi á rétt á ţessum ferli en ţangađ til er hann saklaus.

Máliđ er auđljóst hverjum ţeim sem fylgir stjórnarskrá Íslands. Nema kannski dómsmálaráđherra og saksóknara Íslands? Sem borgari landsins, hefur Helgi málfrelsi. Ţađ ţarf ađ sćkja hann til saka fyrir dómstól til ađ svipta hann embćtti. Ţangađ til á hann rétt á sinna sínum embćttisstörfum og viđ skulum hafa í huga ađ borgarinn telst vera saklaus uns sekt finnst. Ekkert er í íslenskum lögum ađ málfrelsiđ hverfi viđ ađ starfa ákveđiđ starf. Hins vegar verđur viđkomandi embćttismađur ađ gćta ţess ađ verđa ekki vanhćfur í ákveđnum dómsmálum.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Sept. 2024

S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband