Sjálfsmyndapólitík Kamala Harris kemur aftan að henni

Eins og vitað er, eru vinstri menn önnum kafnir að boða sjálfmyndarpólitík af fullum krafti (e. identity politics). Hugtakið hefur einnig verið kallað merkimiðapólitík. Þessi pólitík hefur ýmis vopn ný-marxismans við hendi. Svo að orðræða andstæðingsins sé haturorðaræða, örárásagirni (e. mini aggresion) o.s.frv. til að herja á andstæðingana.

Kamala Harris forsetaefni Demókrata er nú helsti boðberi þessara stefnu. Segja má að hún hafi fengið núverandi stöðu varaforseta út á tvö einkennismerki sjálfsmyndarpólitíkar. Hún er kona (e. oppressed) og þar af leiðandi af kúguðum hópi og hún er svört....eða hvað?

Kynþáttur Harris kom til sögunnar í nýlegum opnum blaðamannafundi Trumps með svörtum fjölmiðlamönnum. Þar segir Trump að Harris sé nýlega orðin svört, en hún hafi alltaf kennt sig við indverska uppruna sinn. Sagði Harris ný­lega „orðna svarta“  Vísir greinir frá en getur ekki einu sinni farið með rétt mál um fundinn. Segir Trump hafa komið klst. seint en hið rétta er að hljóðnemakerfið virkaði ekki í 35 mínútur og var í ólagi allan tímann. Bloggritari veit þetta því hann horfði á fundinn. Svo sér maður hver heimild Vísis er, CNN! Hvað um það. Áfram með pistillinn.

"Er hún indversk eða er hún svört?“ svaraði Trump. "Ég virði bæði en hún gerir það augljóslega ekki því hún var indversk alla "leið en svo allt í einu snérist hún og varð svartur einstaklingur."

Harris, sem á indverska móður og svartan föður, svaraði Trump á kosningafundi í Texas og sagði um að ræða "sömu gömlu sýninguna." segir Vísir.  Hver er þá sannleikurinn? Hann er því miður ekki hagstæður Harris. Hún er nefnilega kominn af hvítum þrælaeiganda í föðurættinni. Faðir hennar er ekki meiri svartur maður en það að hann á hvíta forfeður. Kíkjum á uppruna Harris.

Væntanlegur frambjóðandi demókrata og varaforseti Bandaríkjanna, Kamala Harris, á sér írskar rætur en ekki á þann hátt sem hún er líkleg til að fallast á.

Harris er dóttir Donald J Harris, sem fæddist á Jamaíka, og Shyamala Gopalan Harris frá Indlandi.

Ættfræðirannsókn sem gerð var af norður-írska sagnfræðingnum Stephen McCracken leiðir í ljós að Hamilton Brown,  föður-langafi Harris, fæddist í Co Antrim árið 1776, ári sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna.

Brown flutti til Jamaíka, sem þá var bresk nýlenda, og varð áhugasamur þrælaeigandi á sykurplantekjunum sem voru uppistaðan í efnahagslífi eyjarinnar. Hann var á móti afnámi þrælahalds um breska heimsveldið árið 1832 og fór til Antrim til að skipta þrælum sínum út fyrir verkamenn frá heimahéraði hans.

Hann gaf nafn sitt til Browns Town á Jamaíka og er grafinn við kirkju St Marks Anglican Church, sem hann byggði fyrir eigin peninga. Brown var hlynntur þrælahaldi og hataði breska afnámsmanninn William Wilberforce sem lagði fram frumvarp um þrælaskrá til að stöðva viðskipti með þræla á milli mismunandi eyja í Karíbahafinu. Brown kallaði hann "klofinn fót" og hræsnara.

Brown fékk tæpar 11 milljónir evra í nútímafé í skaðabætur frá breska ríkinu fyrir þræla sína, samkvæmt skrám sem University College London (UCL) hefur undir höndum.

Faðir Harris, emeritus prófessor í hagfræði við Stanford háskóla, viðurkenndi þrælaeiganda fortíð fjölskyldu sinnar í grein fyrir jamaíkanskt dagblað árið 2018. Forvitnilegt er að ættingjar móður hans eru kallaðir Finegan. Írskir forfeður Joe Biden forseta eru einnig kallaðir Finegan (Finnegan).

Foreldrar hennar, Shyamala Gopalan (dóttir indversk diplómats) og Donald Harris. Báðir fluttu til Bandaríkjanna (frá Indlandi og Jamaíka, í sömu röð) til að stunda doktorsgráður við háskólann í Kaliforníu, Berkeley. Móðir hennar rannsakar krabbamein en faðir hennar er prófessor emeritus.

Kamala Harris reynist því vera af forréttindastétt (sem demókratar hata) sem samkvæmt ný-marxískum fræðum er kúgari (e. oppressor). Ekki nóg með það að hún er ekki komin af þrælum (eins og flestir svartir Bandaríkjamenn) nema að hluta til, heldur kúguðu forfeður hennar svart fólk.  Veit svart fólk í Bandaríkjunum um raunverulegan uppruna hennar?

Talandi um sjálfsmyndarpólitíkina og orðræðu hennar. Nýmarxistar virðast hafa farið í smiðju George Orwells og tekið upp "double speak". Sjá myndband hér að neðan. Þar eru hefðbundin hugtök tekin úr samhengi og hugtök breyta um merkinu allt eftir hvernig vindar blása.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Þegar pólitíkin tekur upp á því að nota fræðihugtök í pólitík sinni þá afbakast þau svo svakalega að það er ekki heil brú í notkun þeirra.

Tökum hugtakið menning sem dæmi. Þetta er fleirtöluorð og endudrspeglar fjölbreytileika sem er síbreytilegur. Pólitíkin þurfti eitthvað að nota hugtakið og skeytti fjöl fyrir framan menningu, eins og það ætti að lýsa betur hugtakinu menning. Nema hvað hugtakið menning lýsir öllu sem fjölmenning á að lýsa. Fjölmenning er því ekkert annað en orðskrípi.

Í Identity pólitík eru fræðileg hugtök afbökuð og óspart beitt fyrir sig fræðunum, þótt engin fræði séu oft á bakvið.

Rúnar Már Bragason, 1.8.2024 kl. 12:40

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Sæll Rúnar. Takk fyrir viðbót þína. Er að bæta við myndband um "double speak" í bók Orwells 1984. Það er eins og nýmarxistarnir hafi lesið þá bók gaumgæfilega.

Birgir Loftsson, 1.8.2024 kl. 13:07

3 Smámynd: Birgir Loftsson

Hér er "Thought Reform" Maó....

https://youtu.be/lCPkWQ6do-A?si=WTfocuAGsJfj1N7C

Birgir Loftsson, 1.8.2024 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Sept. 2024

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband