Brennsluofn ríkisbálknsins

Nýjasta brennsluefni stjórnmálamanna í brennslu almanna fés er stofnun Mannréttindastofnun Íslands.  Íris Erlingsdóttir skrifar frábæra grein á Útvarpi sögu um þessa nýju ríkishítar stofnun sem nú er komið á fót, á okkar kostnað!:

"Erfitt er að meta hvort er meira hneyksli – að Alþingi Íslendinga hefur, án nokkurrar þjóðfélagsumræðu, stofnað nýtt, óþarfa ríkisbákn, Mannréttindastofnun Íslands (MRSÍ), “með víðtækar heimildir” sem mun árlega kosta skattgreiðendur á þriðja hundrað milljónir króna, eða að ríkisbáknið, sem hefur með höndum það hlutverk að annast umrædda þjóðfélagsumræðu og er þjóðinni álíka gagnlegt og gatasigti er drukknandi manni í ólgusjó, gerði aðeins tvær fréttir um þessa fyrirhuguðu stofnun." 

Hún segir jafnframt:

"Í landinu starfa nú þegar a.m.k. þrjár mannréttindastofnanir. Auk Mannréttindastofu Íslands og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands er  Mannréttinda- og lýðræðisstofa Reykjavíkurborgar, sem hefur með höndum m.a. fötlun, "fjölmenningu og inngildingu" og kynjaréttindi. "Hinsegin" málefnaflokkur sér um að veita fyrirtækjum og stofnunum “regnbogavottun” og tilheyrandi einhyrningaprump."

Bloggritari skrifaði svipaða grein og Íris.  Sjá slóð: Ný mannréttindastofnun fyrir mannréttinda ríkið Ísland nauðsynleg?

Í greininni benti bloggritari á Mannréttindastofnun Háskóla Íslands sem valkost. Óþarfi að hafa tvær stofnanir. Er á því að þetta er peningaaustur, höfum verið í S.þ. síðan stríðslok seinni heimsstyrjaldar án þess að vera með svona stofnun.

Sjálfstæðisflokkurinn reynir að bendla Miðflokkinn við samþykkt stofnunar Mannréttindastofnunar Íslands. Sigmundur Davíð greip til andsvars í fjölmiðlum og sagði þetta:

Vissulega hafi Miðflokkurinn árið 2019 samþykkt að lögfesta sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. En það þýði ekki að af þeim sökum hafi verið nauðsynlegt að stofna "enn eina mannréttindastofnunina".

Sjálfstæðisflokki hafi verið bent á að það væri ekki nauðsynlegt að stofna stofnun til að "stjórna hugarfari og tjáningu landsmanna", til að uppfylla skuldbindingar gagnvar fötluðu fólki. Ísland sé þegar með nóg af mannréttindastofnunum, svo sem Mannréttindaskrifstofu Íslands, mannréttindastofnanir sveitarfélaga og mannréttindastofnun Háskóla Íslands."

Á sama tíma er ríkið rekið með viðvarandi halla á ríkisfjárlögum, bálknið stækkar og stækkar; vegir landsins grotna og eru ekki lagfærðir; heilbrigðiskerfið skorið við nögl og fjársvelt (læknaskortur í landinu); velferðakerfið í heild stendur höllum fæti; lögreglan undirmönnuð og fjársvelt; Landhelgisgæslan fjársvelt; velferðatúrismi handa hælisleitendur í hæðstum hæðum; fatlaðir og öryrkjar vanræktir (nær að láta þessa peninga beint til þeirra í stað ríkisstofnunar með blýant nagandi starfsfólk að gera ekki neitt allan daginn) o.s.frv.

Sumir halda að skynsemin haldist í hendur við meirihluta, að flestir séu skynsamir og sýni ráðdeild í efnahagsmálum og öðrum hagnýtum málum. En svo er ekki alltaf, sjá má þetta þegar meirihluti Alþingi samþykktir alls kyns bábiljur. Bloggritari myndi bara hrista höfuðið og halda áfram með sitt líf, ef vitleysan hefði ekki bein áhrif á hann. Það er ekki hægt að hunsa ruglið sem hefur hefur áhrif á allt og alla í kringum hann.

Ad imperium hoc dico: me solum et vitam meam desere. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég hefði ekkert á móti því að til væri stofnun sem ég gæti leitað til ef mannréttindi mín væru brotin og fengið aðstoð hennar við að fá hlut minn réttan. Vandamálið við þessa stofnun er að hún getur ekki hjálpað neinum í slíkri stöðu því hún hefur engar valdheimildir til þess. En hún á eflaust eftir að búa til fjöldan allan af skýrslum.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.7.2024 kl. 18:54

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Guðmundur, til þess eru dómstólar og þegar er til Mannréttindastofa Íslands. Hvað hafa allar þessar stofur gert annað en að naga blýanta og hafa ríkis apparat í gangi sem kostar skattgreiðendur stórfé (þig líka)? 

Birgir Loftsson, 6.7.2024 kl. 19:08

3 Smámynd: Birgir Loftsson

P.S. Hvort er mikilvægara, mannréttindi eða matur á diskinn? Það eru engin mannréttindi til ef maður sveltur í hel (eða öryrkinn fær ekki lyfin sín).

Birgir Loftsson, 6.7.2024 kl. 19:11

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ef ég þarf að fara með mál vegna mannréttindabrots fyrir dómstóla hjálpar engin stofnun mér við það. Síst af öllu dómstólarnir, það er erfitt og dýrt að reka dómsmál.

Auðvitað er matur á diskinn sennilega mikilvægasta frumþörfin, en það eru einmitt mannréttindi að vera ekki sviptur möguleikanum á að uppfylla frumþarfirnar.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.7.2024 kl. 19:42

5 Smámynd: Birgir Loftsson

Mannréttindastofnun Íslands mun ekki hjálpa þér og á ekki að gera. Dómstólar og stjórnarskrá Íslands er nóg.

Birgir Loftsson, 6.7.2024 kl. 20:16

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eru dómstólar og stjórnarskráin nóg?

Ég vildi óska þess að það væri rétt.

Guðmundur Ásgeirsson, 7.7.2024 kl. 18:29

7 Smámynd: Birgir Loftsson

Íslensk lög eiga að tryggja mannréttindi Íslendinga.

Í lögum um Mannréttindastofnun Íslands segir m.a.: "Mannréttindastofnun Íslands er ekki úrskurðaraðili á sviði mannréttinda og ákvarðanir stjórnvalda eða einkaaðila verða ekki kærðar til stofnunarinnar." Til hvers í ansk...eigum við það að vera með slíkt ríkishíti sem gerir ekki neinn nema að röfla?

Mannréttindastofa Íslands er til, af hverju getur hún ekki tekið við þessu verki og sparað skattborgaranna pening? Og hvað hefur mannréttindastofan gert hingað til? Hjálpað öryrkja og aldraða?

Er ríkisbálknið ekki orðið nógu stórt?

Birgir Loftsson, 8.7.2024 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Okt. 2024

S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband