Björn Björnsson má eiga það að vekja athygli á andvaraleysi íslenskra stjórnvalda í varnarmálum.
Í síðustu grein sinni segir hann:"Blaðamaðurinn segir að í augum Norðmanns sé ekki aðeins skrýtið að á eyju á miðju Norður-Atlantshafi geri menn sér litla grein fyrir hættunni af stigmögnun stríðs heldur einnig fyrir almennu gildi viðbúnaðar."
Það eru aðeins örfáir menn sem vekja athygli á að "keisarinn er í engum fötum". Bloggritari er á meðal þeirra, Baldur Þórhallson í skrifum sínum sem fræðimaður, sem reyndar afneitaði barninu er hann var í forseta framboði en mun væntanlega taka upp þráðinn síðar, Arnór Sigurjónsson er hann var kominn í öryggi eftirlauna með bók sinni Íslenskur her og Björn Bjarnason sem dómsmálaráðherra.
Allir hafa bent á að hér sé enginn íslenskur her en það virðist það vera algjört tabú eða klikkun að minnast á það sé ekki eðlilegt og að landið liggur berskjaldað á miðju Atlantshafi sem er alveg örugg að verður barist um vegna hernaðarlega mikilvæga staðsetningu þess.
Arnór og Björn hafa fundið aðeins til tevatnsins vegna þess en Baldur alveg sloppið sem og bloggritari (ég er of óþekktur til að það sé tekið mark á mér en samt hef ég skrifað tímamóta greinar í Morgunblaðið um varnarmál).
Það sem við eigum allir sameiginlegt er að við sjáum allir að Ísland er ekki lengur stikkfrítt í næstu stór styrjöld. Við verðum í miðjum átökunum en samt láta íslensk stjórnvöld eins og ekkert sé og fela sig á bakvið pilsfald stóru mömmu í vestrinu. En það er ekkert víst að mamma geti sinnt hirðulausa krakkanum í norðri og vill vera eins og Pétur pan, aldrei að vaxa úr grasi sem sjálfstætt ríki.
Öll Evrópa, já bókstaflega öll, er að undirbúa sig undir erfiða tíma, Kaninn er að efla herafla sinn í Evrópu en litla Ísland gerir ekkert. Jú, það eru skrifaðar skýrslur fyrir Þjóðaröryggisráð Ísland, sem er skipað að mestu fólki sem hefur enga þekkingu á málaflokknum.
Kemur þróunin í Evrópu okkur virkilega ekkert við? Er að minnsta kosti ekki lágmark að tryggja matvælaöryggi landsins? Hvetja borgaranna til að eiga matvæli til þriggja daga eins og dönsk stjórnvöld hafa hvatt til og almenningur hefur tekið alvarlega?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Stríð | 1.7.2024 | 11:18 (breytt kl. 11:18) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Það sem mig grunar er að íslenskur her verði vara notaður til þess að berja á íslendingum. Með það í huga væri slæm hugmynd að stofna slíkan her.
Betra væri að koma upp smá þjóðernishyggju, og ýta undir almenna vopnaeign, jafnvel vopanburð á almnannafæri. Lát græjudelluna blómstra, og sjáum þetta sjálfkrafa.
En... athugaðu að fólk er hrætt við ryksugur.
Vildi að ég væri að ýkja, en... https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/08/15/grunsamlegur_madur_med_ryksugu_tilkynntur
Ásgrímur Hartmannsson, 2.7.2024 kl. 16:34
Já það er rétt að íslenskur her kann að vera notaður gegn Íslendingum. En er íslensk þjóð til í dag? Sýnist þetta vera orðinn ósamstæður hópur sem býr nú á þessu landi og margir sem hingað eru komnir til búsetu ekkert sérstaklega "þjóðhollir", jafnvel hættulegir heima friðnum. Glæpahópar og jafnvel hryðjuverkamenn setjast hér að eins og aðrir.
Það þarf að vera til lágmarks mannskapur til að takast á við svona lýð. Og nóta bene, ég haf aldrei talað um hefðbundinn her, heldur vopnaðar sveitir sem geta tekist á við bráða tilfelli eins og erlendar sérsveitir sem sendar eru til að eyðileggja mannvirki, svo sem stíflur. Eða hryðjuverkahóp eða öfluga glæpa hópa sem sum staðar hafa lagt ríki undir, sbr. Mexíkó.
Aldrei að segja aldrei eins og strúturinn sem stingur hausinn í sandinn.
Birgir Loftsson, 2.7.2024 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.