Prófaðu að spyrja næsta einstakling sem þú sér og spurðu spurninguna. Flestir munu segja að þetta sé frídagur verkalýðs og ætlaður til kröfugerða. Það er rétt svar en ræturnar liggja dýpra.
Fyrsta maí, var upphaflega forn vorhátíð á norðurhveli jarðar. Líkt og kristnir menn tengdu sínar hátíðar við fornar og heiðnar hátíðir, líkt og jólin, reyndu forystumenn verkalýðs á 19. öld að tengja þennan dag við kröfur.
1. maí tengdist verkalýðshreyfingunni þar með seint á 19. öld eftir að verkalýðsfélög og sósíalistahópar tilnefndu hann sem stuðningsdagur verkafólks fyrir betri vinnuskilyrðum, sanngjörnum launum og styttri vinnutíma.
Árið 1889 tilnefndi alþjóðlegt samband sósíalistahópa og verkalýðsfélaga 1. maí sem dag til stuðnings verkafólki, til minningar um Haymarket-uppreisnina í Chicago (1886). Fimm árum síðar, ákvað forseti Bandaríkjanna, Grover Cleveland, óánægður með sósíalískan uppruna verkamannadagsins, að skrifa undir lög um að gera verkalýðsdaginn - sem þegar var haldinn í sumum ríkjum fyrsta mánudaginn í september - að opinberum frídegi í Bandaríkjunum til heiðurs verkamönnum. Kanada fylgdi í kjölfarið ekki löngu síðar.
Hvernig varð dagur verkalýðsins að almennum frídegi?
Fyrsti verkalýðsdagurinn í Bandaríkjunum var haldinn hátíðlegur þriðjudaginn 5. september 1882 í New York borg.
Í Evrópu var 1. maí sögulega tengdur heiðnum hátíðum í dreifbýli eins og áður sagði, en upphaflegri merkingu dagsins var smám saman skipt út fyrir nútíma tengsl við verkalýðshreyfinguna.
Í Sovétríkjunum tóku leiðtogar nýju hátíðina eða frídaginn að sér og töldu að það myndi hvetja verkafólk í Evrópu og Bandaríkjunum til að sameinast gegn kapítalismanum. Dagurinn varð merkilegur frídagur í Sovétríkjunum og í austurblokkarlöndunum, með áberandi skrúðgöngum, þar á meðal einni á Rauða torginu í Moskvu, undir stjórn æðstu stjórnarliða og kommúnistaflokksins, þar sem verkamanninum var fagnað og hernaðarmátt Sovétríkjanna sýnt. Vestrænir njósnarar töldu leiðtoganna sem röðuðu sig upp til að sjá hverjir voru raunverulega við völd og í hvaða röð.
Í Þýskalandi varð verkalýðsdagurinn opinber frídagur árið 1933 eftir uppgang nasistaflokksins. Það er kaldhæðnislegt að Þýskaland afnam frjáls verkalýðsfélög daginn eftir að fríið var stofnað og eyðilagði þýsku verkalýðshreyfinguna nánast.
Með upplausn Sovétríkjanna og fall kommúnistastjórna í Austur-Evrópu seint á 20. öld minnkaði mikilvægi stórra maíhátíða á því svæði. Í tugum landa um allan heim hefur 1. maí hins vegar verið viðurkenndur sem almennur frídagur og almenningur heldur áfram að halda upp á hann með lautarferðum og veislum á meðan tilefnið ætti að vera mótmæli og fjöldafunda til stuðnings verkafólki. Að vísu brjótast út mótmæli á þessum degi og iðulega eru það róttækir vinstrimenn sem standa fyrir þeim og einstaka sinnum nasistahreyfingar.
1. maí á Íslandi
Á Íslandi göngum við skrúðgöngur niður á torg viðkomandi bæjar eða borgar. Þar hlustum við á ræður stéttafélags forkólfa sem eru oftar en ekki eru ekkert heitt í hamsi. Þeir enda á ofurlaunum í samanburði við skjólstæðinga sína. En svona er goggunnarröðin hjá manninum.
Nóta bene, stéttarbaráttan lýkur aldrei. Það sem hefur áunnist, getur verið tekið í burtu á morgun. Mál málanna hefur verið stytting vinnunnar. Margt hefur áunnist. Áður fyrr unnu menn þar til þeir gátu ekki meir, en svo var ákveðið að eðlileg vinnuvika ætti að vera 40 klst. Menn hafa fært sig í að hafa 36 klst vinnuviku. En það er ekkert sem mælir á móti því að vinnuvikan sé bara 25 klst. Framleiðsluaukinginn er svo mikil að furða vekur að vinnutíminn skuli þó vera þetta ennþá daginn í dag.
Margar byltingar hafa verið í gangi og allar hafa þær leitt til hagræðingar og fækkun starfsfólks. Fyrsta iðnbyltingin notaði vatns- og gufuorku til að vélvæða framleiðsluna. Önnur notaði raforku til að búa til fjöldaframleiðslu. Þriðja notaði rafeindatækni og upplýsingatækni til að gera framleiðslu sjálfvirkan. En fjórða byltingin er í gangi og fáir taka eftir. Gervigreindin og rótbótar eru að taka yfir og þetta þýðir fækkun starfa og styttingu vinnutímans.
En sem betur fer verður alltaf þörf á mannlegum samskiptum. Í heilbrigðisþjónustunni og menntakerfinu svo eitthvað sé nefnt þurfum við á fólki að halda. Það verður alltaf einhverjir sem vinna en það er óþarfi að hið fámenna vinnuafl sé keyrt út í vinnu eins og gerist með heilbrigðisstarfsfólk, lögreglumenn og kennara og aðrar mikilvægar stéttir.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Kjaramál, Stjórnmál og samfélag | 1.5.2024 | 10:44 (breytt kl. 12:38) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Gott að fara dýpra í þetta Birgir. Prýðilegt alveg. Eftir lestur pistils þíns fór ég að íhuga þetta og margt rifjaðist upp sem ég hef lært og jú ég kom upp með heiðnu hátíðina sem tengist 1. maí, og hún heitir vissulega Beltane, og þá hef ég grafið enn dýpra og hjálpað til við að bæta þekkingarmolum við góðan pistil þinn.
Beltane er keltnesk hátíð upphaflega, Írar, Skotar, Mönverjar (eyjan Man) og einhverjir fleiri héldu hana og halda enn. Hún er ævaforn og heiðin og þekkist úr fyrstu ritunum sem eru til á írsku. Ábyggilega var hún haldin mjög víða þótt það sé ekki vitað með vissu vegna skorts á heimildum. Bretar hafa haldið hana til forna eins og miðevrópskir Keltar í Frakklandi, Þýzkalandi og víðar.
Hluti af fjórum gelískum, keltnum meginhátíðum, Samhain, 1. nóvember, Imbolc, 1. febrúar, Beltane, 1. maí, og Lughnasadh, 1. ágúst.
Beltane er sumarbyrjunin.
Ég tel það lítil vafamál að Beltane fær nafn sitt af keltneska sólarguðinum Belenus, sem Sesar taldi samsvara þeirra Apollo. Hann var einn af meginguðum Gaulverja og Kelta.
Frakkar báru upp tillögu um alþjóðlegan frídag verkafólks 1889 á þingi evrópskra verkalýðsfélaga, og var hún samþykkt. Þetta var tengt því að 100 ár voru frá árásinni á Bastilluna.
Annars kemur þú reyndar inná þetta næstum allt í pistlinum, nema ég orða þetta aðeins öðruvísi.
Ingólfur Sigurðsson, 1.5.2024 kl. 12:10
Takk fyrir viðbótarframlag þitt. Athyglisvert! Keltnesk menning er mögnuð og var megin menningin í Evrópu þar til Rómverjar eyðulögðu hana. En í afskekktum dölum og eyjum, tókst Keltum að halda eitthvað af menningu sinni.
Birgir Loftsson, 1.5.2024 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.