Skammsýni Íslendinga er með ólíkindum. Þeir gera ekki ráð fyrir að ófrið beri að garði og það þurfi að kveða menn til varnar. Það þarf að vera skýr lagaákvæði í stjórnarskránni til þess að ríkisvaldið - Alþingi með lögum eða ríkisstjórn með reglugerð geti kveðið menn til vopna. Í raun er þetta æðsta skylda borgarans við ríkið, þar sem hann getur látið lífið. Ákvæði um vopnaburð borgarans til varnar ríkisins í stjórnarskránni 1874 og 1920 voru því til staðar. Lítum á ákvæðin í báðum stjórnarskrám.
Í 57. grein stjórnarskránna 1874 er þetta ákvæði: "57. gr. Sjerhver vopnfær maður er skyldur að taka sjálfur þátt í vörn landsins eptir því, sem nákvæmar kann að verða fyrir mælt þar um með lagaboði." Þá var Herfylkingin nýliðin undir lok í Vestmannaeyjum 1869 en liðsmenn hennar höfðu þá skrifað bréf og beðið um að herskylda yrði komin á í Vestmannaeyjum og allur kostnaður greiddur af almannafé. Dönsk stjórnvöld vildu aðeins veita takmarkaðan stuðning og því dó Herfylkingin drottni sínum. En þetta hermennsku framtak Vestmannaeyinga kann að hafa leitt til þess að ofangreint ákvæði var tekið inn í stjórnarskránna þótt það sé ekki hér sannað.
Gott og vel, Danir vita vel að hættur kunna að steðja Íslandi og það þurfi að huga að vörnum. En lítum á stjórnarskránna 1920: "71. gr. Sjerhver vopnfær maður er skyldur að taka þátt í vörn landsins, eftir því, sem nákvæmar kann að verða fyrir mælt með lögum." Nú ber svo við að Ísland er orðið að sjálfstæðu konungsríki en enn er þetta ákvæði inni. Landið lýsti yfir hlutleysi og taldi það vera bestu vörnina sem reyndist vera tálsýn.
En lítum á stjórnarskrá lýðveldisins 1944. Ekkert ákvæði (sem bloggari sér) um landvarnarhlutverk borgarans. Hvers vegna? Voru Íslendingar ekki í miðri heimsstyrjöld og hefði ekki verið þægilegur öryggisventill að hafa þetta ákvæði inni í stjórnarskránni?
Er einhver sem les þetta sérfróður um hvað menn voru að hugsa er þeir voru að semja þessa stjórnarskrá? Vildu menn ekki setja þetta inn vegna þess að landið var þá hersetið? Einhver skýring hlýtur að vera á hvers vegna þetta ákvæði var tekið út en var í tveimur fyrstu stjórnarskránum.
En hvað um það, af hverju ekki að setja þetta ákvæði inn við næstu breytingu á stjórnarskránni? Nú, af hverju?...kann einhver að spyrja.
Jú, þetta verður að vera í grunnlögum landsins svo að hægt sé að kveða menn til varnar landsins ef til stríðs kemur (það kemur fyrr eða síðar). Ef ófriður brýst út, þá hafa stjórnvöld engin tæki til að bregðast við. Ekki hægt að stofna her né heimavarnarlið.....Þá kunna flestir sem lesa þetta að segja, mér er nákvæmlega sama, höfum þetta eins og þetta hefur alltaf verið (reyndar ekki lengra aftur í tímann en 1944). Það er skammsýni og of mikil bjartsýni á að þriðja heimsstyrjöldin brjótist ekki út. Ef eitthvað er öruggt við hegðun mannsins, er það vilji hans til að hefja næsta stríð.
En við Íslendingar eru ekki hluti af mannkyninu kann einhver að segja og við elskum friðinn, alveg sama hvað! Við erum það ekki eins og sjá má af afskiptum okkar af stríðinu í Úkraínu og við verðum ekki stikkfrí í næsta stríði NATÓ. Hlutleysið fór 1949....
Flokkur: Bloggar | 27.4.2024 | 17:21 (breytt 25.8.2024 kl. 14:07) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.