Það er mikið áhyggjuefni hvernig er komið fyrir lýðræðinu í Bandaríkjunum. Vegur ríkisins hefur aldrei verið eins lágur og þessi misseri. Það þarf að leita aftur til tíma Víetnam stríðsins til að sjá aðra eins skiptingu þjóðarinnar sem er í raun klofin í herðar niður.
Ekkert gott kom út úr Víetnam stríðinu, Lindon B. Johnson gerði Bandaríkin nánast gjaldþrota og Bandaríkjamenn neyddust til að afnema gullfótinn. Demókratar neituðu að styðja við fallandi stjórn Suður-Víetnam 1975, hún féll og fyrsti stóri ósigur Bandaríkjanna raungerðist.
Sama er upp á teningnum í dag. Niðurlægjandi ósigur Bandaríkjanna í Afganistan hefur haft keðjuverkandi áhrif og litlu einræðisherrarnir fóru á stjá. Ófriður og ófriðarmerki alls staðar um heiminn. Landið er nánast gjaldþrota en samt er eytt eins og enginn sé morgundagurinn í erlend stríð.
Á sama tíma eru Bandaríkin upptekin við að fremja harakiri á eigið stjórnkerfi. Fáheyrðir atburðir eiga sér stað í Bandaríkjunum þessa dagana. Önnur eins spilling og misnotkun valds hefur aldrei sést áður í Bandaríkjunum og var ríkið þó í höndum lobbí-istanna.
Með því að leyfa opið skotleyfi á fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa allar flóðgáttir opnast og hvaða vitleysingur sem er í stétt saksóknara úr röðum demókrata getur hafið málsókn á vægast sagt hæpnum forsendum. Í dag eru fjórar málsóknir á hendur fyrrverandi forsetanum og núverandi forsetaframbjóðanda í gangi. Maður hreinlega gapir af undrun er ákæruatriðin á hendur honum eru lesin. Hrein og bein fabula.
En málið er stærra en ólíkindatólið Donald Trump. Með því að leyfa vitleysunni að grasera, hafa opnast nýjar leiðir í framtíðinni, fyrir báða flokka, að stunda pólitískar ofsóknir og nota réttarkerfið í það. Aldrei áður hefur það verið leyft að leyfa lægri dómstig og staðbundin að herja á pólitíska andstæðinga. Öll vopn notuð og sjálft dómsmálaráðuneytið notað opinberlega. Ef þetta væri að gerast í öðru ríki, væru Bandaríkin búin að setja viðskiptaþvinganir og lýsa yfir að viðkomandi ríki "person non grata" í samfélagi þjóðana.
Landið er nánast stjórnlaust og opin landamæri staðreynd. Innanríkisráðherrann, Alejandro N. Mayorkas hefur verið ákærður af Fulltrúadeildinni fyrir misgjörðir í embætti og viðhalda opin landamæri. Öldungadeildin sem er undir stjórn demókrata tók ekki einu sinni málið upp. Þess má geta að embættisafglapa ákærur eru fátíðar. Fulltrúadeildin hefur hafið ákærumeðferð oftar en 60 sinnum. En það hefur aðeins verið 21 ákæra. Þar á meðal eru þrír forsetar, einn ráðherra í ríkisstjórninni og einn öldungadeildarþingmaður. Af þeim sem voru ákærðir voru aðeins átta embættismenn fundnir sekir af öldungadeildinni og vikið úr embætti.
En þetta er bara eitt dæmi um hversu mikið öngþveiti bandarísk stjórnmál eru komin í. Á sama tíma steyma milljónir hælisleitenda yfir opin landamæri, ríkir fíkniefna faraldur, glæpafaraldur, húsnæðisskortur, almenn fátækt, verðbólga, hátt matvælaverð, skuldasöfnun alríkisins, ríkja og borga og minnkandi áhrif Bandaríkjanna erlendis. Bandamenn hlusta ekki einu sinni á Bandaríkjamenn og Evrópumenn eru orðnir svo áhyggjufullir að þeir eru farnir að hækka framlög til varnarmála af sjálfdáðum og mikið þurfti til.
En sýnna verst er atlagan að tjáningarfrelsinu, stjórnmálafrelsinu og misnotkun réttarkerfisins af hálfu annars stjórnmálaflokks landsins. Slökkt er á vita frelsis í Frelsisstyttunni. Box Pandóru er nú opið.
Flokkur: Bloggar | 23.4.2024 | 09:40 (breytt kl. 11:17) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.