Ummæli fyrrverandi stjórnmála prófessors um forsetaframbjóðanda vekja undrun. Þar kemur hann með fullyrðingu sem hann styður ekki. Hún er eftirfarandi: "Arnar Þór Jónsson er popúlisti af sama skóla og Guðmundur Franklín, segir Ólafur Þ. Harðarson, fyrrverandi prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands." Á hverju hann metur frambjóðandann á þann hátt fylgir ekki sögunni. Á meðan fullyrðing er ekki bökkuð upp af staðreynd (sönnun), er þetta bara skoðun stjórnmála prófessorins.
Prófessorinn þýðir réttilega hugtakið popúlistar sem lýðhyggjumenn. En hvað er lýðhyggja? Hér kemur skilgreining Wikipediu:
"Lýðhyggja vísar til enska orðsins populism ...Lýðhyggja er talin tefla saman hinum almenna eða venjulega einstaklingi gegn því sem kallað er elíta eða yfirstétt í gefnu samfélagi. Lýðhyggja getur birst í stefnum og hugmyndum bæði stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka."
Og ennfremur: "Enska orðið populism hefur stundum verið þýtt sem lýðskrum á íslensku. Stundum er orðið hentistefna einnig notað í sambandi við lýðhyggju. Ef betur er að gáð kemur þó í ljós að hvorugt þeirra er rétt þýðing á hugtakinu lýðhyggja." Populistar geta verið bæði til hægri eða vinstri.
Spurning hvort prófessorinn vilji varpa skugga á frambjóðandann með slíkum stimpli? En hvernig geta Guðmundur Franklín eða Arnar Þór verið popúlistar? Þurfa þeir þá ekki að njóta fjöldastuðing almennings til að geta talist vera slíkir? Frægasti popúlisti í heimi er sjálfur Donald Trump. Hann stýrir grasrótarhreyfingu hægri manna sem kallast MAGA. Hann breytti repúblikannaflokknum í eigin flokk en þess má geta að hann mætti gífurlegri mótspyrnu flokkseiganda elítunnar í flokknum er hann bauð sig fyrst fram.
Guðmundur hlaut 8% fylgi (ekki 7% eins og prófessorinn heldur fram) er hann bauð sig fram. Hann er því ekki popúlisti, þótt hann hafi kannski vilja vera það. Guðni myndi frekar teljast vera populisti vegna fjöldafylgi hans. En Arnar Þór hefur ekkert sagt til um hvað hann er, annað en hann vilji sækja stuðnings sinn til þjóðarinnar.
Þannig á það að vera um alla forsetaframbjóðendur, þeir eiga að leita stuðnings til massans - þjóðarinnar, enda um persónukjör að ræða.
Ólafur segir Guðna hafa sent skýr hugmyndafræðilega skilaboð frjálslyndis og umhyggju í ræðum sínum! Túlka má frekar stefnu Guðna sem óákveðni, vilja til að þóknast öllum og engum. Allir forsetar Íslands tala fyrir hönd þeirra sem minna mega sína. En aðalatriði er, sendir forsetinn skýr skilaboð er varðar stóru samfélagsmálin? Styður hann t.d. íslenska menningu og tungu? Og íslenska nátttúru eins og Vigdís gerði? Stendur hann vörð um íslenska hagsmuni gagnvart alþjóðavaldinu eins og Ólafur Ragnar gerði? Og hefur hann þema??? Hvað er átt við með þema?
Vigdís: Verndun íslensk menningararfs, tungu og lands (skógrækt).
Ólafur Ragnar: Málsvari íslensks almennings gegn yfirþjóðlegu valdi sem birtist í Icesave en einnig verndun norðurslóða.
Guðni....Being there.....ekkert. Ólafur talaði um að Guðni standi fyrir "frjálslynd viðhorf, umburðarlyndi gagnvart t.d. útlendingum og samúð með þeim sem minna mega sín." En það er bara hluti af starfi forsetans að gera það, ekki skýr stefna. Guðni talaði aldrei um verndun íslenskrar menningar og tungu eða lands, það var ekki stefna hans. Né að verja þjóðina gegn ólögum frá t.d. WHO eða EES sem Alþingi Íslands finnst í lagi að innleiða. Hins vegar ef hann myndi skjóta til dæmis bókun 35 til þjóðarinnar, það er skýr stefna. Guðni tók aldrei af skarið í neinu máli, en það telst vera stefna.
Megi næsti forseti Íslands vera popúlisti, það er maður fólksins.
Í blálokin koma spakmæli: Auðvelt er að komast hjá gagnrýni með því að segja ekkert, gera ekkert og vera ekkert.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | 9.1.2024 | 08:36 (breytt 10.1.2024 kl. 08:05) | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Prófessor er þarna ljóslega að ausa menn lofi.
Þeir geta þakkað fyrir það.
Ásgrímur Hartmannsson, 9.1.2024 kl. 15:51
Ólafur virðist vera aðdáandi Guðna og vinstri manna. Er ekki öll háskóla elítan vinstri til vinstri?
Birgir Loftsson, 9.1.2024 kl. 17:48
P.S. Taktu eftir orðunum "forseti Sjálfstæðismanna". Ég hélt að á endanum hafi Ólafur R. unnið hug elskar hjörtu allra Íslendinga.
Birgir Loftsson, 9.1.2024 kl. 17:50
Ólafur Þ. Harðarson er uppáhaldsviðmælandinn í RÚV þegar kemur að pólitík, því hann er jafn vinstrisinnaður og stjórnendur þar. Hæfir kjafti skel, eins og sagt er.
Því miður eru of margir Íslendingar sem lifa í þeirri blekkingu að eitthvað hlutleysi sé á RÚV. Það fór þegar hægrimenn hættu þar að hafa völd.
Ingólfur Sigurðsson, 10.1.2024 kl. 01:06
Þessi álitsgjafar fjölmiðla eru flestir vinsttri sinnar. En við þurfum að vita hverjar skoðanir þeirra eru, svo við sjáum sjónarhornið sem þeir horfa frá. Allir hafa skoðanir, líka álitsgjafarnir.
Birgir Loftsson, 10.1.2024 kl. 08:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.