Robert Burke, aðmíráll og yfirmaður bandaríska flotans í Evrópu og Afríku, viðraði í viðtali fyrir tveimur árum möguleika á að staðsetja kafbátaleitarflugsveit á Íslandi til þess að fylgjast með vaxandi umsvifum rússneskra kafbáta í Norður-Atlantshafi og hugsanlega koma að hafnarframkvæmdum fyrir leit og björgun á Austurlandi.
Við veltum því fyrir okkur hvort ekki séu einhver verðmæti fólgin í því að hafa lítið, varanlegt bandarískt fótspor á Íslandi, sagði Burke í samtali við Vísir - sjá slóðina: Aðmíráll viðrar hugmynd um sveit bandarískra kafbátarleitarflugvéla á Íslandi.
Hann kom til Íslands í tilefni af yfirstandandi loftrýmisgæslu bandaríska flughersins á landinu.
Burke sagði aðspurður að lítið fótspor gæti falist í því að vera í upphafi með sérhæfða greinendur í tengslum við verkefni kafbátaleitarflugvéla af gerðinni P-8 Poseidon. Þar væri um að ræða 50 manna hóp.
Þá sagði Burke að fótsporið gæti falist í staðsetningu á Íslandi á flugsveit P-8 véla en henni myndu fylgja hundruð manna, byggingaframkvæmdir og húsnæði. Slíkar flugvélar koma nú óreglulega til landsins frá herstöðum í Flórída eða á Ítalíu. Í flugsveit eru að jafnaði 12 flugvélar en fjöldinn getur verið mismunandi að sögn talsmanns bandaríska flotans.
Við höfum rætt þetta sem möguleika og þetta er eitthvað til að skoða betur, sagði Burke. Hann sagði að einnig væri verið að skoða hafnaraðstöðu á Austurlandi með áherslu á leitar- og björgunarstarf.
Þó að Bandaríkjamenn hafi ekki varanlega aðstöðu á Íslandi þá fljúga P-8A kafbátaleitarflugvélar annað veifið til Keflavíkur og þaðan út á Norður-Atlantshafið.
Að jafnaði dvelja 100 300 liðsmenn aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu en vegna þess að alltaf er verið að skipta um sveit, þá er erfitt að kalla þessar sveitir hafi fast aðsetur á Keflavíkurflugvelli.
Það er ekkert sem segir að ekki sé hægt að þjálfa Íslendinga í kafbátaeftirlit og þeir skipi kafbátaeftirlitsflugvélarnar. Íslendingar reka með myndarbragð loftrýmiseftirlit fyrir hönd NATÓ og ættu með réttri þjálfun að geta rekið kafbátaeftirlitið á ársgrundvelli.
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Löggæsla
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Saga
- Samfélagsmiðlar
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Stjórnlagaþing
- Stjórnmál og samfélag
- Stríð
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
Athugasemdir
Sæll Birgir.
Ertu með þessari færslu að taka undir orð og skoðanir Roberts Burke, eða ertu á öðru máli?
Blasir ekki við að einmitt Bandaríkjamenn og þjónar þeirra eru að pressa Rússa út í horn og með hverju endar það öðru en að þeir bíta óþyrmilega frá sér?
Væri ekki skynsamlegast af Rússum að setja upp skotpalla í sjálfstæðum ríkjum í nágreni USA, t.d. á borð við Kúbu eða Venúsúela, til að geta samið, líkt og þeir Krútschef og Kennedy gerðu hérna um árið - eða hvað segir þú um það?
Jónatan Karlsson, 10.3.2022 kl. 11:01
Sæll og góðan daginn Jónatan.Ég tala alltaf út frá hagsmunum Íslendinga. Mér er nákvæmlega sama hvað þessi Burke segir! Hahaha! Ég notaði hann hins vegar sem útgangspunkt í þessari grein sem er röð greina um varnarmál Íslands.
Mér er nákvæmlega sama um stórveldin Rússland, Bandaríkin, Kína eða Indland. Ég bý á þessum bletti sem kallast Ísland og því er mér umhugað hvort hann sé varinn eða ekki. Ef ég flyt annað, þá myndi ég hafa áhyggjur af varnarmálum þess lands eða náttúruvá þess. En sem sagnfræðingur get ég talað um stórveldapólitík og næsta grein verður um útþennslu Rússlands síðan 1552 til dagsins í dag, sögulega séð.
Birgir Loftsson, 10.3.2022 kl. 15:35
Nota bene, einhliða brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi 2006 sannfærði mig endanlega að við Íslendingar gætum ekki treyst neinum er varðar varnir Íslands.
Þegar allt kemur til alls og BNA kæmu undir árás væri Ísland það síðasta sem hershöfðingjarnir myndu hugsa um nema sem VÍGVÖLL....
Íslenskir stjórnmálamenn eru ólæsir á mannkynssögu og hernað mannkyns en svo kallaði siðmenntaða menning hefur staðið í stríðsrekstri í 10 þúsund ár, án hlés. Síðan ríki og borgarsamfélag varð til. Áður börðust ættbálkar um veiði lendur með frumstæðum hætti.
Höfum við eitthvað þroskast á þessum 10. þúsund árum? Held ekki og því er allur varinn góður...
Birgir Loftsson, 10.3.2022 kl. 17:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.