Hvað er Antifa?

220px-Antifa_logo

Margir sem lesa daglegan fréttaflutning, kannast við hugtakið,, Antifa“ sem útleggst í grófri þýðingu, ,,samtök gegn fasistum.“ En hverjir eru þetta sem kalla sig Antifa og fyrir hverju telja þeir sig standa fyrir?

Antifa er samkvæmt Wikipedia vinstrisinnuð and-rasista stjórnmálahreyfing sem á uppruna að rekja til Bandaríkjanna.

Hreyfingin er mjög dreifstýrt og samanstendur af fjölda sjálfstæðra hópa sem stefna að því að ná markmiðum sínum með því að nota bæði ofbeldislausar og ofbeldisfullar beinar aðgerðir frekar en með umbótum á stefnu. Mesta athygli fjölmiðla vekur ofbeldisaðgerðir hreyfingarinnar.

Stór hluti af antifa pólitískri virkni er þó ekki ofbeldisfullur, felur í sér herferðir veggspjalda og dreifibréfa, gagnkvæma aðstoð, flytur ræður, göngur í mótmælaskyni og endurskipuleggja samfélagið samkvæmt þeirra hugmyndum.

Þeir taka einnig þátt í ákveðinni mótmælatækni og reyna að berjast gegn fasistum og rasistum eins og nýnasistum, hvítum öfgamönnum og aðra öfgamenn til hægri samkvæmt þeira skilgreiningu, og er frábrugðnir öðrum stjórnarandstöðu-hreyfingum vinstri manna vegna vilja þeirra til að takast beint á við öfgahægrimenn og í sumum tilvikum löggæslu.

Þetta felur stundum í sér stafræna aðgerð, einelti, ofbeldi og eignaspjöll gagnvart þeim sem tilgreindir eru tilheyra öfgahægri.Hreyfingin er umdeild fyrir vikið.

Hreyfingin sem slík er ekki gömul og telst hún eiga uppruna sinn að rekja til áttunda áratugarins í Bandaríkjunum en þá kallaði hún sig ,Anti-Racist Action“. Meðlimirnir stunduðu að fara á hljómleika ný-nasista og hleypa þeim upp. Upp úr aldarmótin fór lítið fyrir henni en með framkomu Donalds Trumps, hefur henni vaxið ásmegin á ný

Antifa meðlimir segjast vera gegn ný-nasisitum, ný-fasistum, hvítum kynþáttahöturum og kynþáttahatri almennt og nýjasta nýtt er barátta þeirra gegn svo kallaða ,,alt-right“ sem er stytting á orðinu ,,alternative right“ eða í lauslegri þýðingu ,,annars konar hægri“. Þannig að baráttan hefur orðið víðtækari og náð til þeirra sem teljast til hægri og mörkin óljós.

Antifa meðlimir skera sig úr frá öðrum mótmælendum með því að klæða sig í svört föt, stundum með grímur eða hjálma sem á að skýla auðkenni þeirra frá andstæðum hópum eða lögreglu. Að þessu leyti hafa hreyfingin tekið upp aðferðir andstæðinga sinna en á þriðja og fjórða áratugnum klæddu fasistar og nasistar sig í svört eða brún föt. Svörtu fötin eiga líka að vekja ógn eða ugga í huga andstæðinganna.

Aðferðir Antifa er beinar og oft ofbeldisfullar. Meðlimir hennar stunda að fara á fundi hægri manna og reyna að eyðileggja þá með margvíslegum aðferðum. Það getur verið hróp og köll, kyrjun eða mynda mannlegan vegg og koma í veg fyrir að fundargestir getið horft á eða hlustað á fyrirlesarann flytja mál sitt. Aðrir stunda það að fylgjast með hægri mönnum á netinu og stundum ráðast þeir beint á viðkomandi hægri mann með persónulegum árásum á fjölskyldulíf og það sem almennt telst vera einkalíf viðkomandi.

Antifa hópar styðjast einnig við hefðbundnar aðferðir, svo sem skipulagðar samkomur eða mótmælagöngur. Öfgafyllstu meðlimirnir bera á sig vopn, hnífa, múrsteina, keðjur, piparúða og þeir útiloka ekki ofbeldi þegar þeir fara af stað í aðgerðir.

En hversu ofbeldisfullir eru Antifa hóparnir? Viljir þessara hópa til að beita ofbeldi, afmarkar þá skýrt frá öðrum vinstri sinnuðum aðgerðasinnum en þeir segja að ofbeldið megi skýra að þeir beiti það í sjálfsvörn. Þeir hafa þó dreift og birt skýringarmyndir um hvernig eigi að lemja fasista. Vegna þess hversu fúsir Antifia hóparnir eru að beita ofbeldi (í sjálfsvörn segja þeir), þá eru fáar konur í þessum hópum.

Margar spurningar vakna varðandi þessa hreyfingu sem hefur einhver ítök hér á Íslandi. Svo sem: Hvenær endar vörnin fyrir mannréttindum og ofbeldisdýrkun tekur við? Er réttlætanlegt að berja hægriöfgamenn? Hver var útkoman þegar vinstri aðgerðarsinnar á þriðja og fjórða áratugunum börðust við nasista og fasista á götum úti? Leiddi það ekki til að þeir síðarnefndu notuðu ofbeldið sem afsökun og réttlæting fyrir valdatöku? Höfðu aðferðir Mohandas Gandhi, Nelson Mandela, Dalai Lama, Martin Luther King ekki gefið betri raun?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Eru línur ekki bara farnar að skýrast í Bandaríkjunum?

Er Antifa ekki bara SA (Sturmabteilung) Demokrata?

Jónatan Karlsson, 1.5.2021 kl. 10:52

2 Smámynd: Birgir Loftsson

Allt svo kallað hugsjónafólk, til vinstri eða hægri, er stór hættulegt enda hættir það fylgja eigið hyggivit og lætur hugmyndafræði ráða gerðum sínum.

Móta bene, Antifa  stælir aðferðir  svartstakka Mússólíni og brúnstakka Hitlers og eru meðlimir þess vegna ,,einkennisklæddir". 

Realpolitk eins og Helmut Smith í Vestur-þýskalandi rak er mér að skapi.

Eini raunsæisflokkurinn í íslenskri pólitík í dag er Miðflokkurinn, ótrúlegt en satt.  Enginn hugmyndafræði að rugla þá í ríminu,bara lausnarpólitík.

Birgir Loftsson, 1.5.2021 kl. 18:08

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hvað Miðflokkinn varðar, þá virðist hann réttilega vera þjóðernissinnaður, en með Kænugarðs-kappann Gunnar Braga innanborðs og í stafni, þá mun ég (og örugglega margir aðrir) bíða eftir betri valkosti í komandi Alþingiskosningum.

Allt öðru máli gegnir hér í Reykjavík, en þar er valkyrjan Vigdís Hauksdóttir eina vænlega borgarstjóraefnið.

Jónatan Karlsson, 1.5.2021 kl. 18:49

4 Smámynd: Birgir Loftsson

Rétt Jónatan, það eru óheppilegir einstaklingar í flokknum sem erfitt er að kyngja að séu innanborðs. Veit ekki hvort að flokkurinn sé þjóðernissinnaður eða róttækur yfir höfuð, fer ekki saman við gildi (já gild, ekki hugsjónir) þeirra að vera slíkir. Realpolitik í heildina. Vigdís er valkyrja.  

Birgir Loftsson, 4.5.2021 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgir Loftsson
Birgir Loftsson

Er áhugamaður um sögu og samfélag Íslendinga í nútíð og þátíð og tengslum Íslands við umheiminn. Móttó: ,Hafa skal það sem sannara kann að reynast."

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband